Spegillinn - 01.11.1970, Síða 6

Spegillinn - 01.11.1970, Síða 6
Liðsafnaðurinn var engu minni en hersveit Júlíusar Hafsteins um árið, þegar Þjóðverjarnir komu í heiðina. Og vígaskjálft- inn engu minni, vopnin ennþá hvassari, skóflur og hakar. Starra hraus hugur í brjósti. Hann mun eiga eftir að yrkja úr þessu dýnamiskan Leirhaus. Og þegar sól var sezt, hófst bar- daginn. Hersveitin tók í einu áhlaupi öll vopnabúr íjandmann- anna. Réðust Mývetningar inn í hella og skúta með bauki og bramli og höfðu þaðan út sprengjur og þræði. Áhlaupið var enn sneggra en hjá ísraels- mönnum um árið. Reyk lagði uppaf Miðkvíslarvirkinu. Mafiu- •foringjar Laxárvirkjunar stumr- uðu yfir jeppum sínum úti í mó- um og veifuðu friðarblæjum. Flestir héldu þeir sig þó í fjar- lægð og horfðu á mökkinn stíga upp af rústum sínum. Mývetningar grétu. Þeir þó mest, sem fjarri voru þessum stór- merkjum, svo sem Þráinn Skútu- staðaskólastjóri. Allir gengu vel fram í bardaganum. Mönnum kom saman um, að klerkurinn hefði þó verið skotdjarfastur. Mun hans framganga lengi í minnum höfð. Þeir sveitungar höfðu skamma viðdvöl þar við Kvíslina, storm- uðu heim á næstu bæi og lýstu vígum á hendur sér. Einn fyrir alla og allir fyrir einn. öllum mátti ljóst vera, að þar yrði við ramman reip að draga um eftir- málin. Seint um síðir risa þeir Lax- virkjar úr rekkju. Það var fá- mennt lið og óburðugt. Láta þeir boð út ganga um sveitir norðanlands og kalla menn til liðs við sig. En fáir vildu eiga yfir höfði sér reiði Mývetninga. Þar voru Óttastaðir kallaðir, hvar þeir Laxvirkjar höfðu búið um sig. Knútur skalf. Nú voru góð ráð dýr. Hvernig mátti hrinda ysttí’/yc’^Þ/y/G/ ro ///£■;/ljás //oA/urr. þessari árás spellvirkjanna úr Mývatnssveit. Ákallaði hann nú landsins drottna, ráðherra og þingmenn og bað þá senda fógeta á andskota þessa. Lengi virtist engum lögum yfir Þingeyinga komið. Fógeti þeirra stóð fastastur fyrir og sagðist engin lög vilja hafa utan hnefa- réttinn. Loks fékkst strákur nokkur til ferðar norður til að koma lögum yfir spellvirkja. Hann hafði um langan aldur hírzt undir handar- jaðri Gaflara og ekki fengizt við annað en smáglæpi og barna- JaexkuK/NM iár skotdjarfastur 6

x

Spegillinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.