Spegillinn - 01.11.1970, Síða 10

Spegillinn - 01.11.1970, Síða 10
SMÁAUGLÝSINGAR Nokkrir línuverðir verða ráðn- ir til vörslu aðalrafstrengsins milli Laxárvirkjunar og Akur- eyrar í vetur. Verða að vera þaulvanir Knúta-sérfræðingar. Stjórn Laxárvirkjunar. Lærið að synda. Ekkert. Lærið að hjóla. Klemens. Tek að mér að gæta hagsmuna Islands gagnvart dótturfyrir- tækjum erlendra auðfélaga. Skilyrði er, að ég fái síðan sæti í stjórnum viðkomandi félaga. Hjörtur Torfason. Ef ykkur vantar forsætisráð- herra, þá munið að velja mann, sem hefur gegnt miklum fjölda opinberra embætta. Gunnar Thoroddsen. Viðtalstími minn í boxunum á pósthúsinu verður framvegis frá 9 til 7. Menn eru vinsam- lega beðnir að hafa með sér stóla. Sverrir Bernhöft. Sem yfirmaður opinberrar eftir- litsstofnunar get ég bætt við mig formennsku í fleiri hags- munasamtökum í fiskiðnaði, Þórður Þorbjarnarson. Þar sem undirritaður er ósköp venjulegur jarðbúi, verður hann að játa, að hann hefur ekki hugmynd um, hvert skáld- ið er að fara með Kristnihaldi. Hættulegt er að höggva eink- um og sérílagi nærri sjálfum sér. Andreu Dóri. Það var ekki ég, sem var rænd- ur úti á Spáni. Tolli. Ljóðabók Eysteins skálds Sig- urðssonará Arnarvatni: „Bless- uð sértu bomban mín“, er komin út. Náttúruvernd. Tveir sýslumenn óska eftir nýj- um stjórnmálaflokki með mikl- um framamöguleikum. Poste restante Borgarnesi og Blönduósi. Tek að mér að skipa fjarstadd- ar húsmæður í skólanefndir. Áskilinn réttur til að draga skipunina til baka umsvifa- laust, ef dagblaðið Vísir fer að röfla. Gylfi Þ. Gíslason. Því miður geta ekki fleiri keypt miða í Happdrætti Alþýðu- blaðsins, þar sem einn stór kúnni kaupir allan lagerinn. HAB. Skipun Auðar Auðuns skiptir engu fyrir rauðsokkur. Tek að mér ráðherraembætti. Vilborg Dagbjartsdóttir. Lfndirritaðir’ 80 kennarar för- um þess á leit við menntamála- ráðherra að hann veiti Gunn- ari Thoroddsen laust embætti teiknikennara á Drangsnesi. Stuðningsmenn í kennarastétt. Félagsmenn eru beðnir að at- huga, að við förum ekki í tvö verkföll á ári nema þriðja hvert ár. Hið íslenzka prentarafélag. Hér með tilkynnist, að sam- kvæmt reglugerð er ekki um neina neyzlu fiknilyfja á íslandi að ræða. Lögreglustjóri. Engeyjarættin auglýsir eftir for- sætisráðherraefni, því að Geir almáttugur er ekki nógu góður og Jóhann ekki nógu þægur. Sveinn Ben. Eftir breytingarnar á Leikhús- kjallaranum sé ég ekki, að neinn maður í landinu sé nógu fínn til að koma þar inn, nema ég. Hefur því þjónustu- pakkið verið rekið og gestum er algerlega bannað að ónáða mig. Svanur. Læknafélag íslands hefur á fundi sínum samþykkt, að það eigi sér aldrei stað, að læknar gefi tilvísanir á eiturlyf. Læknafélagið. Þeir Alþýðubandalagsmenn, sem hyggja á framboð, eru beðnir um að hafa sem fyrst samband við Ferðalaga- og viðtaladeild útvarpsins. Stefán fréttamaður. Þær blómarósir, sem ætla að sitja fyrir á nektarmyndum mín- um vegna dagatals árið 1971, eru beðnar að láta mig vita sem fyrst. Skilyrði, að um spjallaðar meyjar sé að ræða. Gísli Gíslason, Vestmannaeyjum. Vil kaupa notaðar kennslubækur í ensku og dönsku. Glósur verða að fylgja. Tilboð sendist í sam- göngumálaráðuneytið fyrir 1. okt. n.k. merkt „Forsætis-?“ Póstbáturinn Drangur er til sölu strax, ef viðunandi styrkur fæst ekki á næstu fjárlögum. Til- gangslaust er fyrir Norðlendinga eða Guðjón Teitsson að leita eftir kaupum. Upplýsingar á Hótel Barðstúni á Akureyri eða Hótel Borg í Reykjavík næstu vikur. Steindór Jónsson. Tek að mér að koma rótgrónum fyrirtækjum á hausinn fyrir rif- lega þóknun. Er bráðum búinn með Ríkisskip. Get bætt við mig fleiri verkefnum. Tómas. P. Óskarsson. Óska eftir góðri aðstöðu með fögru útsýni fyrir öskuhauga Akureyrar. Ingvar Gíslason. Þar sem menn virðast ekki hafa tekið alvarlega auglýsingu mína um bann við neyzlu áfengis innan veggja bankans í vinnutímanum, eru tilmælfmín hér með itrekuð. Þetta er lokaaðvörun mín. Stefán Hilmarsson. „Ég var erfðaprinsinn" heitir ný- útkomin bók Jónasar Haralz. Fæst hjá öllum vinstrisinnuðum íhaldsmönnum. Smáraútgáfan. Lesið um framhjáhald Martin Luther King í Morgunblaðinu. Erum ávallt á Varðbergi. Árvakur hf. 10

x

Spegillinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.