Spegillinn - 01.12.1971, Blaðsíða 5
Innanhússpóstur í Stjórnarráðinu
ÖRY
ÞJONUS
UNNAR
Sæll gamli.
Vorum að ljúka við að
þýða dulmálsskýrslu frá
0007, póstlagðri í Kairó
fyrir tveim dögum. Fjári
stóð Dóri sig vel í eldhúss-
umræðum - það munaði
minnstu að honum tækist
ekki að sannfæra lands-
skrílinn um að það væri
eiginlega Mangi á Mel, sem
hefði samið fjárlagafrum-
varp ríkisstjórnarinnar, og
því væri ekki von á því
betra. Svei mér, ef Láfi má
ekki fara að vara sig á
honum. Hefurðu annars
heyrt brandarann um
göngulag ríkisstjórnarinn-
ar - að Hannibal valhoppi,
Magnús Torfi lulli, Einar
fari klyfjagang, Mangi læð-
ist, Halldór sé bæði staður
og ramvíxlaður og Láfi tví-
stigi. Það hefur flogið fyrir
að þessi brandari sé smíð-
aður í okkar eigin herbúð-
um og vissara að hafa lágt
um það. En hér kemur
skýrslan.
„Ég hef verið á sífelldu
flandri um svörtu Afríku,
samkvæmt beiðni öryggis-
þjónustunnar, ef vera mætti
að mér tækist að hlera eitt-
hvað um orsakir þær, sem
liggja að baki hinnar svo-
kölluðu „svörtu innrásar“,
sem valdið hefur ríkisstjórn-
inni nokkrum áhyggjum.
Einnig ferðaðist ég um
nokkur arabísku ríkin, sam-
kvæmt beiðni fjármálaráð-
herra, í því skyni að kynna
mér hvernig framámenn þar
verðu olíugróðanum, ef
vera kynni að olía fyndist
innan skamms á landgrunn-
in heima. Sendi ég honum
sérstaka skýrslu um það,
en tek honum vara fyrir að
láta flugmálaráðherra kom-
ast í hana - vegna smá-
klausu, sem ég skrifa þar
um kvennabúr nefndra
framámanna. Um hin
svörtu ríki ferðaðist ég í
gervi skreiðarsala, en um
Arabaríkin í gervi þokka-
dísamiðlara á vegum feg-
urðarsamkeppni nnar
nema í íran, þar sem ég brá
mér í hempu eins höfuð-
borgarprestsins heima og
flutti erindi í sambandi við
hátíðarhöldin miklu um
„klámið í Kóraninum“, við
mikinn fögnuð hinna tignu
áheyrenda, sem velflestir
voru afkomendur spá-
mannsins, en ég tek það
fram að ég flutti erindið á
íslenzku.
í svertingjaríkjunum var
mér yfirleitt mjög vel tekið,
og einkum af kvenþjóðinni
- og ekki meira um það.
Þar er menningin í öruggri
framsókn - sums staðar eru
til dæmis komnar upp sjón-
varpsstöðvar, sem senda
rnikinn hluta dagsins,
nema ef það hendir að
starfsmennirnir fá allir í
magann, en það gerir þá
ekkert til, því að engin
sjónvarpstæki hafa verið
flutt inn enn, og verður því
enginn þess var. Mér var að
detta í hug, hvort ekki
væri því tilvalið fyrir sjón-
varpið heima að pranga
inn á þessar stöðvar nokkr-
um þáttum - t.d. leikriti
Odds Björnssonar. í stað-
inn mætti svo til dæmis fá
fílabein, og smíða úr því
turn, sem forsætisráðherr-
ann gæti flúið í þegar blaða
snáparnir gera sem harð-
asta hríð að honum.
Ég minnist þó ekki á
þessar sjónvarpsstöðvar
eingöngu eða fyrst og fremst
vegna þess arna, heldur
vegna þess að ég tel, að þar
hafi ég - ef til vill, má vera
og þó ekki útilokað að svo
reynist ekki, svo notað sé
orðalag forsætisráðherra -
komizt að hinni eiginlegu
orsök hinnar margum-
ræddu „svörtu innrásar".
Það er nefnilega ekki ná-
kvæmlega rétt með farið
enn orðalag fs. - að engin
viðtæki hafi verið flutt inn
þarna; þeir allraæðstu, sem
eru múhameðstrúar, hafa
fengið viðtæki og sett upp
í kvennabúrum sínum. Ég
komst fyrir óvæntar ástæð-
ur inn í eitt slikt búr, þegar
hinn voldugi eigandi þess
var fjarverandi - auðvitað
- og hvernig sem ég reyndi