Spegillinn - 01.12.1971, Side 30
YFIRLÝ SINGAR
sem alltaf endurtaka sig
Annó Steinöld
Hellítis bjánar eru þi. Hverjum dettur í hu, að þa
sé betra þetta asnaliga - hjúl—. Vi bara mótmælum
þessari vitleysu Eins o þa sé ikki bitra að láta okkur
draga sig á sleðum. Við viljum ikki þessi hjúl. Við
banna hjúl.
Heimsíélag sleðadráttarmanna.
Studdarar: Fílag sleðaframleiðenda.
Annó 1440
Félag vort mótmælir þeirri árás á stétt vora, sem
felst í hinni bölvuðu prenttækni Gutenbergs og
þeirri ískyggilegu fækkun, sem yfírvofandi yrði í
stétt vorri. Mælumst vér því til, að þeir sem telja
sig þurfa á skrifelsi að halda, snúi sér nú sem hing-
að til til okkar með þarfír sínar. Mótmæjum vér
því harðlega þessari svívirðulegu vél Guttenbergs.
Handskrifarafélag Vesturálfu.
Stuðningsmenn: Steinhöggvarafélag Alheimsins.
Annó 1767 1836
Félag seglasaumara mótmælir harðlega ofsóknum
þeim, sem það hefur orðið fyrir af hendi ófyrirleit-
inna spekúlanta, sem af einskærri öfund og illgirni
hafa lagt á sig mikla vinnu og erfíðleika til að
klekkja á félögum vorum með heimskulegum upp-
götvunum (gufuvélar, skipsskrúfur).
Að gefnu tilefni vill félagið taka það fram, að upp-
hafsmenn þessara hugsmíða óskuðu eftir inngöngu
í félag vort, en var synjað.
Félag seglasaumara.
Annó 1971
Prentarafélag Grímseyjar mótmælir harðlega
þeirri svívirðilegu árás á stétt sína, sem felst í hinni
bölvuðu offset-prenttækni. Þessi hörmulega aftur-
för prentlistarinnar hefur sem fylgifiska færri prent-
ara, subbulegan frágang (að okkur finnst), leiðin-
lega hraðvirkni, gerir kröfur til setjara, setjarar
óþarfír (oj, bara), alltof skýrar ljósmyndir, auk
þess sem hið fagra yfirbragð svart-hvítu dagblað-
anna á á hættu að þoka fyrir glaumgosalegu yfír-
bragði stælblaða á borð við Playboy. Megum við
heldur biðja um eitthvað stabílt eins og Alþýðu-
blaðið.
Lýsum við því hér með yfir, að slíkar tækninýjung-
ar er tilgangslaust að bera á borð fyrir okkur, fyrr
en við komumst á eftirlaun.
F.h. Prentarafélags Grímseyjar:
Handsetjaradeild (Mjög kröftug mótmæli)
(Kemur ekki til mála)
(Við verðum að vera með)
(Hvað yrði um okkur)
(Ritskoðunardeild)
fyrrverandi loftsiglinga-
fræðinga hjá Háloftamígum,
Félag prentsvertuinnflytjenda,
Blýinnflutningsgrósserafélag
íslands.
Steinaldardeild
Umbrotsdeild
Linotypistadeild
Lithoprentarar
Stuðningsmenn: Félag
30