Spegillinn - 01.12.1971, Blaðsíða 19

Spegillinn - 01.12.1971, Blaðsíða 19
bundinn enda á það ófremdarástand, sem ríkt hefur í lokunarmálum, öllum neytendum, einkum Albert, til mikils ógagns. Undanfarna tvo mánuði hefur skrifstofa borgarinnar eingöngu sinnt þessu merkilega, flókna og veigamikla viðfangsefni. Sjálfur tel ég þetta vera hápunktinn á glæsilegum borgarstjóraferli mínum, merkari tímamót en hið erfiða val milli Benz og Volvo. Reglugerðin hefur hlotið einróma lof allra, sem til þekkja. Enda er hér um að ræða plagg, sem að öllu leyti er þrauthugsað. Takið t. d. listann um þær vörur, sem heimilt er að selja í sjoppum á kvöldin. Þar hefur verið safnað saman á einn stuttan lista öllum helztu skyndinauð- synjum meðalvísitöluíjölskyldu, allt frá bolluvöndum upp í flugelda. Við höf- um einnig gætt þess að frumkvæði borgarlæknis að hafa engar óhollar vörur á boðstólum. Harðfiskur er t. d. ekki til sölu vegna kvartana um, að tennur brotni af áti hans. Mjólk, skyr, smjör og ostur er náttúrlega ekki Leyfðar sjoppuvörur Sælgæti, súkkulaðikex alhúðað, öl og gosdrykkir, blöð og tímarit, ís, ískökur, íssósur, heitar pylsur, raf- hlöður, skyndiplástur, blöðrur, flug- eldar, saltstengur, salthnetur, öryggi, eldspýtur, dömubindi, rakblöð, sól- gleraugu, kort, frímerki, bolluvend- ir, spil, greiður, hárlakk, hárkrem, filmur, stílabækur, reiknibækur, blý- antar, vinnuvettlingar, rakspíritus. raksápa, sokkar, sokkabuxur, kaffi. til sölu, því að þá færi til ónýtis mikil fjárfesting í uppáhaldsfyrirtæki Reyk- víkinga, Mjólkursamsölunni. Takið eftir því, að leyft er að selja al- húðað súkkulaðikex en ekki hálfhúðað. Vísast í því sambandi til doktorsrit- gerðar borgarlæknis um abnormitae ranuncule acre erroribum, er birtist í tímaritinu Satt. Er Reykjavík fyrsta borgin, sem stígur þetta merka skref á heilbrigðismálaþróunarbrautinni. í sömu ritgerð er að finna skýringu á því, hvers vegna selja má saltstengur en ekki ostastengur. í greinargerðinni er óþarfi að fara mörgum orðum um, að við höfum í reglugerðinni tekið tillit til álitsgerðar trimmstjóra okkar, Sigurðar kaup- manns og Gunnlaugs Þórðarsonar doktorjúris. Þeir leggja til, að á kvöld- in fari verzlun ekki fram í heitum og loftþungum verzlunum, heldur utan dyra, svo að tryggt sé, að neytendur fái gott loft á skallann, þegar þeir verzla. Verða því að vera til staðar hér og þar um borgina sérstakar kompur, sem ekki mega vera stærri en 2x3 m að flat- armáli og með einu gati, sem ekki má vera stærra en 40x50 sm að flatar- máli, svo að viðskiptavinir stingi höfð- inu ekki óþarflega langt inn, hitni um of á skallanum, andi að sér fúlu inn- anbúðarlofti og aftrimmist þarafleið- andi. Hins vegar var ekki tekin til greina fyrri tillaga þeirra félaga um, að öll verzlun færi fram á þennan holl- ustusamlega hátt. Neytendur hafa sumir verið að kverú- lera um, að borgin eigi að taka upp hagsmuni þeirra á ýmsum sviðum. Tal- að hefur verið um, að borgin eigi að taka af skarið um, að mjólkursala verði heimil í almennum búðum, sem hafa kælikistur. Hin nýja reglugerð leysir þetta mál, því að framvegis verða venju- legar búðir ekki opnar lengur en mjólkurbúðir. Getur þá fólk ekki leng- ur kverúlerað út af þessu, og má telja það mikinn sigur í þessu baráttumáli neytenda í mjólkursölumálunum. Það er stefna okkar í borgarstjórrtinni, að reglugerðir og tilskipanir verði á öllum sviðum mannlegs lífs, svo að líf manna geti verið í sem traustustu og öruggustu skorðum. Fenginn hefur verið danskur prófastur til að semja fyrir Reykjavík aðalskipulag mannlífs fram til 1983. Einstaklingsbundin sér- vizka verður jafnframt að leggjast nið- ur í því nútímaþjóðfélagi, sem við stefnum að. Ég er fylgjandi félagslegri lausn allra vandamála. Geir Hallgrímsson. 19

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.