Spegillinn - 01.12.1971, Blaðsíða 15

Spegillinn - 01.12.1971, Blaðsíða 15
hugleiðingar. Ég gæti til dæmis byrjað á maraþonverkinu um ævi mína. Upp- lagt að sækja sér hugmyndir til ræðu- mannanna í Hyde Park. Hvað ætti ég að láta bókina heita? Ekki harmsögu ævi minnar, hvernig ég varð ráðherra. Það er of Birkilandslegt. Undarlegur ótti, sem sækir að mér með kvöldinu. Skyldi það vera af því að ég sá hann Ragnar Stefánsson í hádeginu. Alveg er. ég sannfærður um, að þessir vinstri- kommar og hippar í Æskulýðsfylking- unni eiga eftir að gera mér lífið leitt. Já, illt er að binda vináttu við illa ræmdan. Það sannast á okkur Ragn- ari báðum undir lokin. Svei mér þá, ég er hættur að geta verið einn. Ég verð að kalla í hana öddu, áður en hún fer heim. Nú allir farnir. Þá var nú betra að vera á Þjóð- viljanum. Þar voru menn nú ekki roknir heim á mínútunni. Hver er að segja, að ég óttist að vera einn? Ekki óttast ég þögn einverunnar. Bezt að fara að koma sér heim líka. Skyldi mig dreyma nokkuð í nótt? Furðuleg áletrun yfir dyrunum hjá honum Einari Ágústs- syni: „Þér sem gangið hér inn, gefið upp alla von“ (Laciate ogni speranzo voi ch'entrate). Er þetta ekki úr för Virgils með Dante til Helvítis? Nei, nú fer ég og legg mig. Þetta finnst mér einum of gróft, jafnvel þótt Einar eigi í hlut. Gerist áskrifendur að Speg/inum pósthó/f 594 15

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.