Fréttablaðið - 21.09.2009, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 21.09.2009, Blaðsíða 10
10 21. september 2009 MÁNUDAGUR www.rannis.is/visindavaka Handbók fyrir ráðvillta nútímaþjóð Dr. Guðrún Nordal forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar fjallar um hvernig fíkn ungra karlmanna í völd og fé réði miklu um fall í íslensku samfélagi í tíð Sturlunga. Þetta þykir mörgum ríma óþægilega við atburði nútímans. Alvarlegt málefni með léttum undirtóni! er í kvöld Fyrsta VÍSINDAKAFFIÐ Laugavegi 13, 101 Reykjavík sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is Menntamálaráðuneytið Iðnaðarráðuneytið Sturlunga: 21.september kl. 20:00 - 21:30 Súfi stinn Iðuhúsinu STJÓRNSÝSLA Umboðsmaður Alþing- is segir óheimilt að taka gjald af gestum sem gista á sjúkrahóteli á Rauðarárstíg. Líka sé ólöglegt að láta ósjúkratryggða greiða hærra gjald en sjúkratryggða. Landspítalinn samdi í desember 2004 við Fosshótel ehf. um rekst- ur sjúkrahótels á Rauðarárstíg 18. Áætlaður rekstrarkostnaður var tæpar 107 milljónir króna á ári og var þá miðað við að fjöldi gisti- nátta yrði 15.190. Auk þess sem Landspítalinn greiddi Fosshótel- um fasta upphæð var samið um að hótelið gæti tekið 800 króna gjald af sjúklingum fyrir hverja gisti- nótt og að aðstandendur þeirra myndu greiða 2.500 krónur en að 5.000 króna gjald yrði tekið af ósjúkratryggðum – sem yfirleitt eru erlendir ríkisborgarar. Maður sem gisti á sjúkrahót- elinu eftir bílslys kvartaði til umboðsmanns Alþingis yfir því að vera krafinn um greiðslu fyrir dvölina. „Er það niðurstaða mín að ekki hafi verið til að dreifa viðhlítandi lagaheimild fyrir því fyrirkomu- lagi í samningi Landspítalans og Fosshótela ehf. frá 23. desember 2004, að verksala væri heimilt að innheimta gjöld af gestum sjúkra- hótels Landspítalans að Rauðarár- stíg 18 í Reykjavík fyrir gistingu á hótelinu,“ segir umboðsmaður í áliti sínu. Umboðsmaður sagði gistingu sjúklinga á sjúkrahótelinu vera í órjúfanlegum tengslum við lög- skylda og opinbera heilbrigðis- þjónusta sem veitt væri af hálfu Landspítalans og sú þjónusta væri jafnframt eini tilgangur fyrir dvöl sjúklinganna á hótelinu. Gjaldtaka fyrir gistinguna væri því undir- orpin almennum reglum um gjald- töku hins opinbera. Þá bætti umboðsmaður því við að ekki hefði heldur verið í sam- ræmi við lög að innheimta hærra gjald af ósjúkratryggðum ein- staklingum en sjúkratryggð- um fyrir sambærilega þjónustu. Ráðuneytið rökstuddi mismun- unina með því að ósjúkratryggð- ir þyrftu ekki að greiða sérstak- lega fyrir þá heilbrigðisþjónustu sem veitt væri á hótelinu. Þessu hafnar umboðsmaður. „Í skýr- ingum ráðuneytisins að öðru leyti kemur á hinn bóginn fram, eins og að framan er rakið, að umrædd- um gjöldum sé einungis ætlað að standa undir kostnaði við „gist- ingu“ á sjúkrahótelinu,“ segir í álitinu. Í yfirlýsingu frá Fosshótelum kemur fram að hótelið sé hætt að innheimta áðurnefnt gjald af sjúklingum. Umboðsmaður bein- ir því til heilbrigðisráðuneytisins að láta endurskoða lagagrundvöll gjaldtökunnar á sjúkrahótelinu. gar@frettabladid.is Innheimtu ólöglegt gjald á sjúkrahótelinu Rauðarárstíg Engar lagalegar forsendur eru til að láta gesti á sjúkrahóteli greiða gjald. Umboðsmaður Alþingis segir þess utan engar forsendur til að láta ósjúkratryggða greiða hótelinu hærra gjald en þá sem eru sjúkratryggðir. RAUÐARÁRSTÍGUR 18 Fosshótel eru hætt í bili að taka gjald af þeim sem gista á sjúkrahótelinu sem hótelkeðjan rekur á Rauðarárstíg samkvæmt samningi við Land- spítalann. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SVEITARSTJÓRNIR Verið er að leggja lokahönd á að gera gamla vatnsból- ið á tóftasvæðinu suður af Egils- braut í Þorlákshöfn sýnilegt. Að því er Barbara Guðnadóttir segir á vef sveitarfélagsins Ölfuss er brunnurinn hlaðinn og heill niður á um þriggja metra dýpi. Sjávar- falla gætir í brunninum. „Litlar heimildir eru til um þennan brunn, en líklega hefur hann þjónað sjóbúðinni Hrauns- búð, sem sér vel móta fyrir beint á móti brunninum, hinum megin við Nesbrautina,“ segir Barbara sem kveður uppbyggingu brunnsins hluta af stærra verkefni sem miði að því að vekja athygli á sögu Þor- lákshafnar sem fornrar verstöðv- ar. - gar Menningarverðmæti í Ölfusi: Endurbyggja brunn VATNSBÓLIÐ Stígur er lagður að gamla brunninum og varnargrind komið þar fyrir. MYND/BARBARA GUÐNADÓTTIR KÖNNUN Um 75 prósent aðspurðra segjast bera mikið traust til fréttastofu RÚV samkvæmt nýrri skoðanakönnun MMR. Um 37 prósent segjast bera mikið traust til fréttastofu Stöðvar 2. Morgunblaðið nýtur mests trausts meðal dagblaða en um 58 prósent svarenda segjast bera mikið traust til blaðsins. Frétta- blaðið nýtur mikils trausts meðal um 38 prósent svarenda. Meðal netfréttamiðla nýtur Mbl.is mests trausts, en tæp 60 prósent segjast bera mikið traust til Mbl. is. Tæp 27 prósent segjast bera mikið traust til Vísir.is. Könnunin var gerð 9. til 14. september. Hringt var í 909 ein- staklinga og tóku 97,4 prósent þeirra afstöðu. Skoðanakönnun: Flestir treysta fréttastofu RÚV FÆREYJAR Þingmaður Sjálfstýr- isflokksins, Kári á Rógvi, hefur stefnt vinnustað sínum, færeyska Lögþinginu, og krefst þess að það fari eftir jafnréttislögum. Kári eignaðist son í nóvember í fyrra og fór í fjögurra vikna launalaust fæðingarorlof. Fær- eyskar þingkonur fá hins vegar barnsburðarleyfi sitt greitt. Kári fer fram á fimmtíu þúsund krón- ur danskar, eða um 1,2 milljón- ir íslenskra króna, í skaðabætur, með vöxtum. Færeysku jafnréttislögin áttu að styrkja stöðu kvenna og banna mismunum út frá kyni. En sam- kvæmt eldri löggjöf um opinbera starfsmenn, sem starfskjör þing- manna byggja á, hafa konur annan og betri rétt til fæðingarorlofs en karlar. Færeyska jafnréttisnefndin gleðst yfir því að spurningin um rétt karla til fæðingarorlofs fari nú fyrir dóm. Kristianna Winter Poulsen, for- maður nefndarinnar, segir í við- tali við færeyska ríkisútvarpið að nefndin hafi einmitt fengið marg- ar fyrirspurnir um þennan mun á rétti karla og kvenna. Þess má geta að Kári á Rógvi lauk doktorsprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands. - kóþ Færeyskir karlmenn á þingi fá ekki greidd laun í fæðingarorlofi, ólíkt þingkonum: Færeyska þingið fyrir dómstóla LÖGREGLUMÁL Tveir menn voru handteknir í miðborg Reykjavík- ur í fyrrinótt eftir að hafa ógnað dyraverði með skrúfjárni. Menn- irnir voru færðir í fangageymslur lögreglunnar. Þá leitaði maður sér aðstoðar vegna fótbrots eftir að hafa orðið fyrir líkamsárás. Árás- armaður er talinn hafa verið einn að verki. Þrír ungir piltar brutu rúðu í Seljaskóla. Íbúi í hverfinu til- kynnti lögreglu um ferðir pilt- anna. Þegar lögreglan kom á vett- vang hröðuðu piltarnir sér á brott á hlaupum, tveir komust undan en lögreglan náði þeim þriðja. Hann fékk tiltal og var svo sleppt. Erill hjá lögreglunni: Dyraverði ógnað með skrúfjárni FORSETAFRÚ Á MARKAÐ Michelle Obama, eiginkona Baracks Obama Bandaríkjaforseta, leit við á matvæla- markaði í Washington fyrir helgi og keypti ferskt grænmeti. NORDICPHOTOS/AFP Nýr formaður UVG Snærós Sindradóttir var kjörinn formaður Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu á aðalfundi um helgina. Hún tekur við af Brynju Halldórsdóttur. STJÓRNMÁL RÍKISÚTVARPIÐ Útvarpshúsið Efstaleiti. ÞÓRSHÖFN Þingmaður í Sjálfstýr- isflokknum hefur stefnt færeyska Lögþinginu.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.