Fréttablaðið - 21.09.2009, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 21.09.2009, Blaðsíða 17
MÁNUDAGUR 21. september 2009 3 „Þetta er nú bara gæluverkefni, sem við Páll félagi minn höfum verið að dunda okkur við. Mjög skemmtilegt og gefandi,“ segir Erlendur Sigurðs- son húsgagnabólstrari sem hefur, ásamt nýútskrifuðum starfsbróð- ur sínum, Páli Júníusi Valssyni, verið að dytta að gömlu barokk sófasetti síðasta mánuðinn. Settið fundu þeir í Góða hirðinum. „Við vorum á höttunum eftir ant- íkgrip og fundum sófasettið þar. Áklæðið var rifið þannig að það kost- aði alls ekki mikið. Við höfum verið að pússa það, sprautulakka svart og bólstra með svörtu leðuráklæði. Mark- miðið er að gera þetta svolítið öðru- vísi heldur en venjan er með svona gömul húsgögn.“ Erlendur segir húsgagnaviðgerðir sínar ær og kýr. Hann rekur verslunina GÁ húsgögn ehf. í Ármúla sem var stofnað árið 1975, en þar á bæ er áhersla lögð á alhliða húsgagnframleiðslu og -viðgerðir. „Við vinn- um fyrir fyrirtæki, veitingastaði og heimili og erum líka mikið að gera upp fyrir við- skiptavinina,“ útskýrir hann og bætir við að eftirspurn hafi ekki minnkað. „Nei, enda sveiflast verð á íslenskum húsgögnum ekki eftir genginu.“ Talið berst þá aftur að settinu, sem Erlend- ur segir tilbúið. Og hvað stendur svo til að gera við gripinn? „Ja, það er nú spurning. Ætli hann verði bara ekki seldur á barna- land.is,“ segir hann og hlær. roald@frettabladid.is Betrumbætt barokksófasett Húsgagnaviðgerðir eru eitt helsta áhugamál félaganna Erlendar Sigurðssonar og Páls Júníusar Valssonar. Nýverið duttu þeir niður á sófasett í barokkstíl í Góða hirðinum sem þeir hafa verið dytta að. Mikil vinna var lögð í öll smáatriði.Erlendur segir markmiðið hafa verið að gera sófa- settið öðruvísi upp en venjan er. Sófasettið fékkst í Góða hirðinum og var í bág- bornu ástandi að sögn Erlends. „Hjá GÁ-húsgögnum er mikil áhersla á húsgagnaframleiðslu þannig að okkur hefur þótt gaman að vera líka í viðgerðunum,“ segir Erlendur, hér til vinstri, ásamt starfsbróður sínum Páli. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.