Fréttablaðið - 21.09.2009, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 21.09.2009, Blaðsíða 30
 21. SEPTEMBER 2009 MÁNUDAGUR16 ● fréttablaðið ● híbýli og viðhald Eftir stopp um stundarsakir eru framkvæmdir við Hljómahöllina í Reykjanesbæ hafnar á nýjan leik. Þar er átt við endurbætur á hinu fornfræga samkomuhúsi Stapan- um og viðbyggingu við það. Farið verður mun hægar í framkvæmd- irnar en upphaflega var áætl- að þar sem fjármögnun verksins er ekki lokið en unnið verður að lóðaframkvæmdum og nýja húsið klárað að utan. Einnig stendur til að ljúka framkvæmdum við Stap- ann. Upphafleg kostnaðaráætl- un nam rúmum 1.250 milljónum króna auk búnaðar í allt húsið. Vegna aðstæðna nú hefur verið dregið úr kostnaði með því að hætta við byggingu kjallara auk gryfju undir sviðinu í Stapa. Heimild: www.vf.is - gun Hljómahöllin skal upp Teikning af Hljómhöllinni í Reykjanesbæ. Hægt verður að horfa út til Drangeyjar og Málmeyjar úr hinni nýju sundlaug á Hofs- ósi sem nú er í smíðum. Fram- kvæmdum miðar vel og mun að líkindum ljúka um miðjan nóv- ember að sögn Sveinbjörns Sig- urðssonar, framkvæmdastjóra hjá Sveinbirni Sigurðssyni hf. sem sér um bygginguna. Þar sem laugin stendur á sjávarbakka er Sveinbjörn spurður að því hvort tröpp- ur verði gerðar niður bakk- ann fyrir þá sem vilja skella sér í sjósund. „Við höfum að minnsta kosti ekki verði beðnir um þær,“ svarar hann. „Bakk- inn er friðaður hér í kring því stuðlaberg er í sjávarmálinu og til samræmis við það verð- ur umhverfið kringum laugina mótað af stuðlum,“ lýsir hann. Sveinbjörn segir grjótið tekið úr námu í landi Bæjar á Höfða- strönd, verkkaupinn, sveitarfé- lagið Skagafjörður, sjái um það. - gun Með útsýni til Drangeyjar Arkitekt að lauginni á Hofsósi er Sigríður Sigþórsdóttir. Sala á sumarhúsum hefur gengið framar björtustu vonum hjá fyrirtækinu GS hús á Sel- fossi, að sögn Kára Helgason- ar, framkvæmdastjóra og eins af eigendum fyrirtækisins. „Auðvitað er mikil breyting frá síðustu árum en miðað við það sem maður hafði reiknað með þá er þetta ágætt,“ segir hann. Eftirspurn er meiri eftir einfaldari húsum nú en á upp- gangstímanum að hans sögn. „Við bjóðum húsin á ýmsum stigum, til dæmis bæði með einangrun og fokheld, og það er meira um það nú að fólk taki byggingu sumarhúsanna í áföngum, skipti henni niður og fari skemur í hverju þrepi en áður. Byggja jafnvel lítið í byrjun en með stækkunar- möguleika síðar,“ lýsir hann og segir líka viðhaldsvinnu við sumarhús hafa aukist mikið við þær breytingar sem urðu í vor þegar virðisaukaskatt- ur var felldur niður af slíkri vinnu tímabundið. - gun Einfaldleiki eft- irsóttari en áður Sjötíu til níutíu fermetra sumarhús eru vinsæl hjá GS húsum en sumir byggja þau í áföngum. 4

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.