Fréttablaðið - 21.09.2009, Síða 11
MÁNUDAGUR 21. september 2009 11
Nánari upplýsingar á expressferdir.is eða
í síma 5 900 100
London
2.-4. október
9.-11. október
3.-6. desember
Malmö
2.-4. október
9.-11. október
Flug til Kaupmannahafnar
Aðeins bókanlegt á www.expressferdir.is og greiðist með VISA kreditkorti.
Sölutímabil: 21.09.2009-30.09.2009
Berlín
9.-12. október
23.-26. október
13.-16. nóvember
Verð frá:
49.900 kr.
m.v. 2 nætur á mann í tvíbýli
á Baywater Inn *** 2.-4.
okt. Innifalið: flug með
flugvallarsköttum og öðrum
gjöldum ásamt gistingu með
morgunverði.
Verð frá:
59.900 kr.
m.v. 2 nætur á mann í tvíbýli á
Stayat Malmö, 2.-4. okt. Innifalið:
flug með flugvallarsköttum og
öðrum gjöldum ásamt gistingu
með morgunverði. Lestarferð til
Malmö ekki innifalin.
Verð frá:
59.900 kr.
m.v. 3 nætur á mann í tvíbýli
á Hotel Gates**** 9.-12.
okt. Innifalið: flug með
flugvallarsköttum og öðrum
gjöldum ásamt gistingu með
morgunverði.
Sértilboð fyrir VISA kreditkorthafa á
helgarferðum með Express ferðum
SÖFNUN Fulltrúar frá Ásbirni
Ólafssyni ehf. færðu Mæðra-
styrksnefnd 1.677 matvörur fyrir
helgi. Styrkurinn tengist strika-
merkjaleik sem fyrirtækið stend-
ur að fyrir vörumerkið Knorr.
Leikurinn gengur út á að safna
tíu strikamerkjum af Knorr-
vörum og setja í söfnunarum-
slag sem send hafa verið inn á öll
heimili. Dregið verður úr nöfnum
allra þátttakenda hinn 30. októb-
er og hljóta fimm heppnir safnar-
ar 100.000 króna verslunarferð í
Kringlunni.
Fyrir hvert innsent umslag
gefur Ásbjörn Ólafsson ehf. eina
matvöru til Mæðrastyrksnefnd-
ar. - kg
Ásbjörn Ólafsson ehf.:
Færðu Mæðra-
styrksnefnd
matvörur
FULLT HÚS MATAR Fulltrúar Ásbjörns
Ólafssonar ehf. gáfu matvörur.
REYKJAVÍK „Þetta hús skiptir miklu fyrir sögu
Reykjavíkur. Það er þarft að heiðra minningu
Benedikts Gröndal og alls
sem hann stóð fyrir varð-
andi bókmenntir og vísindi,
og eins hefur húsið mjög
sérstaka þýðingu í bygg-
ingarsögulegu tilliti. Því er
mjög ánægjulegt að húsinu
verði gert hátt undir höfði,“
segir Svanhildur Konráðs-
dóttir, sviðsstjóri á menn-
ingar- og ferðamálasviði
Reykjavíkurborgar.
Gröndalshús við Vest-
urgötu verður gert upp sem hluti af atvinnu-
átaksverkefninu Völundarverk á vegum
borgarinnar. Í kjölfarið verður settur aukinn
kraftur í að finna húsinu lóð nálægt núverandi
staðsetningu, að sögn Svanhildar.
Húsið hefur verið í umsjá Minjasafns
Reykjavíkur síðan 2006. Upphaflega stóð til
að það yrði flutt í Árbæjarsafnið. Samkvæmt
samþykkt menningar- og ferðamálasviðs flyst
eignarhald hússins nú frá Minjasafninu yfir
til framkvæmda- og eignasviðs borgarinn-
ar. Endurgerð hússins fer fram í verkefninu
Völundarverk, þar sem atvinnulausum fag-
mönnum er boðið upp á námskeið og tíma-
bundna vinnu við að gera upp gömul hús.
Að sögn Svanhildar verður ytra byrði húss-
ins endurgert við Vesturgötu, til að hægt verði
að flytja það á öruggan hátt. Endurgerðin fari
svo að mestu leyti fram á nýjum stað. Ekki
liggi fyrir hvar húsinu verði fundin lóð, en til
greina komi að flytja það vestur á Granda. - kg
Sögufrægt hús verður hluti af atvinnuátaksverkefninu Völundarverk:
Gröndalshús verður gert upp og flutt
SVANHILDUR
KONRÁÐSDÓTTIR
GRÖNDALSHÚS Ekki liggur fyrir hvert húsið verður flutt.
LÖGREGLUMÁL Lögreglan hafði
afskipti af tveimur ungum
veggjakroturum í Kópavogi
fyrir helgi. Þetta voru fjórtán
og fimmtán ára piltar með tvær
töskur fullar af úðabrúsum. Haft
var samband við forráðamenn
þeirra og lagt hald á brúsana.
Fjórtán ára stúlka var staðin að
þjófnaði í Kringlunni fyrir helgi.
Hún fór í mátunarklefa með tvær
flíkur en skilaði bara annarri
til baka. Hún var í hinni innan
klæða og ætlaði út án þess að
borga. Forráðamaður stúlkunn-
ar var látinn sækja hana. Þá var
stúlka á líkum aldri tekin fyrir
þjófnað í verslun á Laugavegi.
Henni var ekið til síns heima en
þar var rætt við foreldra hennar.
- jss
Höfuðborgarsvæðið:
Veggjakrotarar
og þjófar teknir
VEGGJAKROT Krotarar voru með fulla
tösku af úðabrúsum.
UMHVERFISMÁL Hafís norður-
skautsins bráðnaði minna í sumar
en gerst hefur í tvö ár, að sögn
rannsakenda hjá bandarísku
ísrannsóknastöðinni.
Kaldara var á norðurskaut-
inu á þessu ári en undanfarin
ár og telja vísindamenn þessa
þróun helgast af því. Ísþekjan
þakti rúmar fimm milljónir fer-
kílómetra núna í september en
minnst hefur umfang hennar
orðið 4,1 milljón ferkílómetra
árin 2007 og 2008.
Ein af ástæðunum fyrir aukn-
um kulda er talin vera sú að skýj-
aðra var á svæðinu í sumar en í
meðalári. - asg
Hafís á norðurskauti bráðnar:
Minni bráðnun
en síðustu ár