Fréttablaðið - 21.09.2009, Page 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
Í dag er mánudagurinn 21. sept-
ember 2009, 264. dagur ársins.
7.08 13.21 19.32
6.52 13.06 19.17
Aðein
s
í dag!
*8.900 kr.
Verð frá:
Rödd skynseminnar hér.
Það er nauðsynlegt að vera á
tánum þegar góð tilboð detta inn...
með ánægju
Í dag býður Iceland Express fjölda flugsæta til
Evrópu á frábæru tilboðsverði, frá 8.900 kr.,
aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum.*
Bókunartímabil: Frá kl. 12:00 á hádegi til kl. 23:59, 21. september
Ferðatímabil: 1. október – 10. desember 2009
Áfangastaðir: London Stansted, London Gatwick, Kaupmannahöfn,
Berlín og Varsjá
Þú bókar á www.icelandexpress.is!
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
3
0
5
6
0
*Aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum. Takmarkað sætaframboð, valdar dagsetningar
og valin flug. Athugið að flugvallaskattar geta verið mismunandi eftir áfangastöðum.
www.icelandexpress.is
Opið 07 til 01
Lyfja Lágmúla
- Lifið heil
www.lyfja.is
Kvöld eitt hér um árið hringdi ég til systur minnar og bað
hana að lána mér hrærivélina
sína, því þá átti ég enga sjálf.
Þetta var auðsótt mál, systir mín
sagði að ég skyldi bara skreppa
og sækja hana. Þau hjónin væru
reyndar stödd í útlöndum en úti-
dyrnar væru ólæstar auðvitað
eins og venjulega, svo ég gæti
bara haft mína hentisemi. Þessi
notalega gestrisni sem kom af
sjálfu sér á upphafsárum búskap-
arins í dreifbýli reyndist aldrei
kosta þau hjónakorn eftirsjá.
SVONA gamaldags hugsunar-
háttur gæti átt heima í sögu frá
þarsíðustu öld, því bara tæpum
áratug síðar hefur elskulegt
traust á náunganum gufað upp
úr flestum. Daglegar fréttir af
fólki sem kemur að heimili sínu
svívirtu af harðkjarna innbrots-
þjófum hafa svipt okkur því sak-
leysi sem mörgum var eðlislægt
fyrir stuttu. Nú skreppur ekki
nokkur maður svo mikið sem út
í bakarí án þess að hespa alla
glugga vandlega aftur, melda sig
til nágrannans og virkja þjófa-
varnarkerfið. Dagleg bölsýni
fjölmiðla hefur hrætt líftóruna
úr okkur öllum. Ofan á hroðaleg-
ar fjármálafréttir, sorgarsögur
og heimsendaspár er nú í hugan-
um ekki þverfótandi lengur fyrir
pólskum þjófaflokkum sem bíða
þess eins að rýja okkur endanlega
inn að skinninu.
HUNDUR sem bættist við fjöl-
skylduna fyrr á þessu ári reynd-
ist í kaupbæti vera lifandi þjófa-
varnarkerfi og tekur hlutverk sitt
ákaflega alvarlega. Í hvert skipti
sem einhver vogar sér fram hjá
húsinu eftir að honum finnst að
fólk eigi að vera farið að sofa, lyft-
ir hann eyra og augnloki og urrar
aðvarandi. Stjákli einhver um lóð-
ina eftir myrkur rýkur hann upp
í vígaham, æstur og geltandi og
framfylgir þannig embættis-
skyldum sínum af fullri einurð.
Skiptir þá engu máli hvort á ferð
eru strangheiðarlegir nágrannar
eða samviskusamur blaðberi.
ALVÖRU þjófar fengju líklega
að finna til tevatnsins. Líkt og
sá óheppni ræningi sem ætlaði
samkvæmt fréttum um daginn
inn um svaladyr á húsi en mætti
þá vígreifum varðhundi heimil-
isins. Það eina sem þjófurinn sá
skildi eftir sig, var blóðslóð á ver-
öndinni og sigri hrósandi seppi.
Merkilegt reyndar að hundurinn
og eigandi hans hafi ekki verið
kærðir fyrir líkamsárás, miðað
við þá lagalegu samúð sem stór-
þjófar virðast njóta á Íslandi.
Horfið sakleysi
BAKÞANKAR
Þórhildar Elínar
Elínardóttur