Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 01.12.1961, Qupperneq 7

Stúdentablaðið - 01.12.1961, Qupperneq 7
STÚDENTABLAÐ 7 Hugmyndin um víðtæka efna- hagssamvinnu Evrópuþjóðanna var ekki ný, er hafizt var handa eftir heimsstyrjöldina síðari, en segja má að þá fyrst hafi hún fengið raunverulega þýðingu. Ev- rópuríkin voru úttauguð eftir hildarleikinn og efnahagur þeirra í rústum. Enginn evrópskur gjald- miðill var til, er nothæfur væri í alþjóðaviðskiptum. Hverskyns tollmúrar og höft torvelduðu við- skipti milli landanna. Þessu breytti Marshalláætlunin og starf- semi OEEC og undirstofnana, svo sem Greiðslubandalags Ev- rópu. Pólitísk og hernaðarleg samvinna var síðan tekin upp á árinu 1949. Allt þetta samstarf var byggt á samvinnu sjálfstæðra rikja. Með efnahagssamvinnunni náð- ist skjótlega góður árangur. Framleiðslan jókst, verzlun og viðskipti döfnuðu, lifskjörin bötn- uðu ört og stöðugt. Hins vegar voru samvinnunni takmörk sett í þvi formi, sem skapað hafði ver- ið með OEEC. Þrátt fyrir sam- vinnuna varð skipting álfunnar i mörg smáriki, sem hvert um sig hélt sínum tollmúrum og við- skiptahöftum að nokkru til að hindra sérgreiningu framleiðsl- unnar, fjöldaframleiðslu og notk- un dýrra tækninýjunga. I saman- burði við risana tvo, Bandaríkin og Sovétríkin, voru flest ríki Ev- rópu sem dvergar. Ýmsir framá- menn þessara þjóða sáu og skildu, að við svo búið mátti ekki standa, að sundruð Evrópa mundi glata virðingu sinni og áhrifum og e. t. v. sjálfstæðinu lika. A árinu 1952 var fyrsti grund- völlurinn lagður að víðtækari samvinnu, er Kola- og stálsam- band Evrópu (ECSC) tók til starfa. Að því stóðu sex ríki, þau hin sömu er síðar stóðu að Efna- hagsbandalagi Evrópu, þ. e. Bene- luxlöndin, Frakkland, Italía og Þýzkaland. Á árinu 1955 hófust samningar sömu ríkja um stofn- un algjörs tollabandalags, sem leiddu til undirritunar Rómar- sáttmálans í marz 1957, og gild- istöku hans 1. jan. 1958. 1 lengstu lög héldu menn i þá von, að ekki þyrfti að koma til efnahagslegs klofnings í Evrópu, og að takast mættu samningar um stofnun fríverzlunarsvæðis milli efnahagsbandalagsrikjanna sex og annarra aðildarríkja OEEC. Samningaumleitanir um þessa lausn mistókust hins vegar og gengu þá sjö riki til samstarfs á fríverzlunargrundvelli og stofn- uðu Fríverzlunarbandalag Evrópu (EFTA) i Stokkhólmi 1959. Þetta bandalag hafði það að öðru aðal- markmiði að hefja samninga um myndun stærri viðskiptaheildar við Efnahagsbandalagið. Ég rek ekki þessa sögu lengra í einstökum atriðum, en nú er svo komið, að fyrir dyrum standa samningar um aðild Bretlands, Danmerkur og væntanlega Ir- lands að Efnahagsbandalaginu. Fyrr á þessu ári var undirritaður samningur um aukaaðild Grikk- lands og biður sá samningur nú fullgildingar. Búizt er við, að margar, ef ekki allar þjóðir innan OEEC, sæki um aðild á næstunni í einni eða annarri mynd. Að öllu þessu athuguðu, má með nokkrum rétti halda því fram, að þróunin til samstarfs á sviði efnahagsmála í Vestur-Ev- rópu, sem leitt hefur til stofnun- ar hinna tveggja bandalaga og væntanlegs samruna þeirra, eigi í ýmsu rót sina að rekja til sivax- andi gengis og áhrifa stórveld- anna i vestri og austri og ótta um það, að Evrópa, er klofin væri í smáriki, mundi ekki verða hlut- geng í veröldinni, hvorki efna- hagslega eða pólitískt. Jafnframt hafa menn séð og skilið kosti þá, sem stór markaður getur boðið, með tækifærum til sérgreiningar og fjöldaframleiðslu. Til grundvallar því efna- hagssamstarfi eða samruna, sem nú á sér stað i álf- unni, liggur samningurinn um stofnun Efnahagsbandalagsins — Rómarsáttmálinn. Ég mun i stuttu máli rekja markmið hans og efni, sem jafnframt verður þá lýsing á skuldbindingum þeim, sem aðildarríkin taka á sig, að svo miklu leyti, sem um það er hægt að segja á þessu stigi málsins. Ég ætla mér samt ekki þá dul að gefa á viðhlýtandi hátt skýringar á hinum fjölmörgu ákvæðum sátt- málans. Sum þeirra þarfnast lit- illa skýringa. Önnur eru nánast stefnuyfirlýsingar, sem ekki er vitað hvernig munu verða fram- kvæmdar, t. d. ákvæðin, sem fjalla um landbúnað og fiskveiðar, og um frjálsan vinnumarkað. Rómarsáttmálinn er samning- ur um stofnun efnahagsbanda- lags. Enda þó myndun sameigin- legs markaðs með sameiginlegum tolli gagnvart löndum utan bandalagsins og afnámi tolla á milli aðildarríkjanna, sé e. t. v. mikilvægasti hluti sáttmálans, er hann þó miklu viðtækari eins og nafnið, Efnahagsbandalag Evrópu (European Economic Communi- ty), ber með sér. Stefnt er að víð- tækari samvinnu á sem flestum sviðum efnahagsmálanna, eða eins og segir orðrétt í 2. gr. sátt- málans. ,,Það skal vera markmið Bandalagsins, með stofnun sam- eiginlegs markaðar, og stöðugri viðleitni til samræmingar á stefn- um aðildarrikjanna á sviði efna- hagsmála, að vinna að jafnari efnahagslegri framþróun hvar- vetna i Bandalaginu, samfelldum hagvexti samfara jafnvægi, aukn- um stöðugleika efnahagslifsins, örari bata lífskjara og nánari sambúð aðildarríkjanna“. Leiðin að þessum markmiðum er vörðuð í 3. gr. sáttmálans. „Vegna þeirra markmiða, sem getið er i næstu grein hér á und- an, skal til starfsemi Bandalags- ins heyra eftirfarandi, með þeim skilyrðum og tímaákvæðum, sem getið er í samningnum: (a) brottnám tolla og beinna viðskiptahafta á innflutning og útflutning vara milli aðildarrikj- anna, svo og annara ráðstafana, sem svipuð áhrif hafa; (b) setn- ing sameiginlegs tolls og sameig- inlegrar viðskiptastefnu gagnvart löndum utan bandalagsins; (c) niðurfellingu á tálmunum á frjáls- um hreyfingum vinnuafls, þjón- ustu fjármagns milli meðlima- rikjanna; (d) setning sameigin- legrar stefnu i landbúnaðarmál- um; (e) setning sameiginlegrar stefnu á sviði flutningamála; (f) stofnun kerfis, sem tryggi að sam- keppni sé ekki aflöguð innan Sam- eiginlega markaðsins; (g) ráð- stafanir, sem geri kleift að sam- ræma stefnur meðlimalandanna á sviði efnahagsmála og leiðrétta misvægi á greiðslujöfnuði þeirra; (h) samrýming á sveitastjórnar- lögum þeirra, svo sem nauðsyn- legt er starfsemi Sameiginlega markaðsins; (i) stofnun Félags- málasjóðs Evrópu í því augnamiði að bæta atvinnumöguleika verka- manna og lífskjör þeirra; (j) stofnun Fjárfestingarbanka Ev- rópu með það fyrir augum að auð- velda efnahagslegar framfarir Bandalagsins með sköpun nýrra auðlinda; (k) tengingu Banda- lagsins við lönd þess og landa- svæði í öðrum heimsálfum með það fyrir augum að auka viðskipti við þau og keppa í sameiningu að auknum efnahags- og félags- legum framförum þeirra“. Samkvæmt þessum ákvæðum samningsins er brottnám við- skiptatálmana, tolla og hafta, meginverkefni bandalagsins. — Samtímis þessu skal ske sá samruni, sem svo mætti kalla, sem getið er um í 3. grein hér að ofan, þ. e. með frjálsum vinnu- og fjármagnsmarkaði, sameigin- legri stefnu í landbúnaðarmálum, flutningamálum og að því er varð- ar samkeppnisreglur, samræm- ingu stefna á sviði efnahagsmála og löggjafar,. og með stofnun Fé- lagsmálasjóðs og Fjárfestingar- banka. Svo sem ljóst er af ákvæðun- um um niðurfellingu viðskipta- tálmana, eru þar að lútandi kvað- ir mjög nákvæmlega skilgreindar. Þetta gildir hins vegar ekki um samrunann á öðrum sviðum en viðskiptum. Á þeim sviðum eru kvaðirnar öllu fremur almennar stefnuyfirlýsingar. Markmiðin eru í aðalatriðum skilgreind, en hvernig að þeim skuli keppt í framkvæmd, er látið i umsjá stofnana bandalagsins. Sú ástæða er talin vera fyrir þessu, að vegna hins þýðingarmikla og víðtæka hlutverks bandalagsins, hafi ekki verið kleift að koma inn í sjálfan samninginn í smáatriðum öllum þeim reglum, sem setja þarf. Samruni sá, sem ætlunin er að stofna til með sjálfum Rómar- samningnum er einvörðungu efnahagslegur. I samningnum sjálfum eru engin ákvæði um stjórnmálalegt samstarf þátt- tökuríkjanna. Á hinn bóginn hafa 6-veldin þegar hafið um- ræður um samvinnu með það fyr- ir augum að skapa meiri stjórn- málalega einingu. Stjórn bandalagsins er falin stofnunum með víðtæku valdi, en þær eru þessar:

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.