Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1961, Síða 13

Stúdentablaðið - 01.12.1961, Síða 13
STÚDENTABLAÐ 13 háskólakennara snertir er um stórfellda hnignun að ræða frá því sem var við stofnun Háskóla Islands og getur ekki við svo búið staðið, ef í framtíðinni eiga að fást frambærilegir kennarar við þessa æðstu menntastofnun landsins. Það verður að vænta þess, að á næstunni verði öll launamál háskólakennara tekin raunhæfum tökum, en hvað sem því líður, þá þarf að vinda bráðan bug að því, að sjá fyrsta hluta læknadeildar fyrir auknum kennslukröftum. Samhliða því þarf svo að gera ráðstafanir til að tryggja honum efni til líkskurðar, og kemur þá til kasta þings og stjórnar að setja lög eða reglu- gerð er lúti að því og mætti í því efni styðjast við reynslu ná- granna þjóða okkar. Hún hefur þó ekki verið með öllu góð á Norður- löndum, því minna hefur fallið til af líkum en nægi þörfum hins ört vaxandi læknanemafjölda svo það hefur þurft að flytja inn lík, en útvegun þeirra hefur gengið mis- jafnlega, einkum á seinni árum. Það má vera að læknadeildin gæti að einhverju leyti bjargast á að- fluttum líkum til líkskurðar, um það skal ekki dæmt að órenydu, en það yrði þá að sjá henni fyrir f járveitingu í því skyni. Ef ókleift reyndist að sjá læknadeild fyrir nægjanlegum fjölda líka eftir of- angreindum leiðum, þá yrði að grípa til þess næst bezta sem er líkskurður á dýrum. Niðurstaðan af þessum hugleið- ingum mínum verður sú, að ég tel eftirfarandi leið vænlegasta til þess að með sem skjótustum hætti megi koma líkskurði lækna- nema í viðunanlegt horf. 1. að stofnað verði, eins fljótt og við verður komið, embætti aðstoðar- kennara í líffærafræði með við- unandi launakjörum og síðan verði álitlegasti umsækjandinn um stöðuna kostaður til að full- komna sig í greininni. 2. á meðan vinni læknadeildin að sem heppi- legastri lausn á vandanum við út- vegun efniviðar til líkskurðar. Húsnæði það sem fyrir hendi er ætti að nægja fyrst í stað, en bæta þarf við eitthvað af tækjum og því er svo ekki að leyna að vel verður ekki séð fyrir verklegri kennslu í líffærafræði fyrr en komið er í rúmbetra húsnæði og með enn meiri kennslukrafti. Aldarafmæli Hannesar Hafstein ÁSTARJÁTNIN G (til íslands 1880) Ég elska þig bæði sem móður og mey, sem mögur og ástfanginn drengur, þú forkunnar tignprúða, fjallgöfga ey! Ég fæ ekki dulizt þess lengur. Þú háa meydrottning, heyr þú mig: Af hug og sálu ég elska þig. Hinn 4. desem- ber n. k. eru 100 ár liðin frá fœð- ingu Hannesar Hafsteins. Þykir því hlýða að birta hér eitt af kvœðum hans. Fyrir valinu varð Astarjátning, ort til Islands árið 1880. — Túlkar kvœði þetta bezt þá ást, er skáld- ið hafði á fóst- urjörð sinni. Sem móðir þú hefur mig faðmað og fætt og frætt mig og skemmt mér við sögur. I anda mér hefur þú eldsneista glætt sem yngismey töfrandi fögur. Ég grátbæni drottin að gefa mér, að geti ég aftur hugnazt þér. Ég veit ekki, hvernig mín ást til þín er, hvað einkum svo til þín mig dregur, hvort móðirin blíð eða mærin í þér á metunum drjúgara vegur. Ég finn aðeins hitt, hvernig hjarta mitt slær, er hugsa ég til þín, sem ert mér svo kær. Ég óska þess næstum, að óvinaher þú ættir í hættu að verjast, svo ég gæti sýnt þér og sannað þér, hvort sveinninn þinn þyrði’ ekki að berjast. Að fá þig hrósandi sigri að sjá er sætasta vonin, er hjarta mitt á. Ef verð ég að manni, og veiti það sá, sem vald hefur tíða og þjóða, að eitthvað ég megni, sem lið má þér ljá, þótt lítið ég hafi að bjóða, þá legg ég, að föngum, mitt líf við þitt mál, hvern ljóðstaf, hvern blóðdropa, hjarta og sál.

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.