Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.1961, Page 14

Stúdentablaðið - 01.12.1961, Page 14
14 STÚDENTABLAÐ /Æ UPPHAF Lífið glœðir iðu alda, orð og gerðir, stórt og smótt. Má í hafgný hárra falda heyra átök máttarvalda, óskir þeirra, andardrátt. Nýrri sköpun vizkan veldur. Vatn og loft og jörð og eldur skulu yngd og endurskírð upprisunnar páskadýrð. Á hverju vori laufgast limið. Lítið upp og hlustið, skimið. Heyrið gnýinn, gneistabrimið. II ÆTTJÖRÐ Úr útsœ rísa íslandsfjöll með eld í hjarta, þakin mjöll, og brim við björg og sand. Þó mái tíminn margra spor, þá man og elskar kynslóð vor sitt fagra föðurland. Við tölum íslenzkt tungumál. Við tignum guð og landsins sál og fornan œttaróð. Þeir gjalda bezt sinn gamla arf, sem glaðir vinna þrotlaust starf til vaxtar vorri þjóð. Á meðan sól að morgni rís og máni silfrar jökulís og drengskapur er dyggð, skal fólkið rœkta föðurtún og fáninn blakta efst við hún um alla íslandsbyggð. III DÖGUN Dagurinn kemur, guðar á glugga og gistir vorn háa sal. Hann er tákn þess, sem œskan elskar og alls, sem koma skal. Að morgni svœfir hann brúði bleika á bak við sinn stjörnugeim. Svo lyftir hann sínu logandi blysi, sem lýsir um allan heim. EFTIR Davíð Stefánsson FRÁ FAGRASKÓGI IV GRÓÐUR Inn í musteri lífs og lista leitar andinn um fjöll og sanda. Inni kviknar í muna manna máttur, sem veldur nýjum háttum, eggjar sál til hœrri hyggju, höndina til að nema löndin. Mannsins líf er enn sem áður œðsti gróður lands og þjóðar. V ÍSLENZK FRÆÐI Líkt og magnað kraftakvœði knýja hugann íslenzk frœði þangað inn, sem œtt og saga eiga sína liðnu daga. Stríðir enn við stormanœtur stofn, sem á sér djúpar rœtur, frjóa mold og fastan grunn. Þar á fólkið, þjóðarsálin, þúsund ára brunn. Ennþá tala tungu Snorra tign og hreysti feðra vorra. Frelsi, nám og höfðingshœttir heilla landsins beztu œttir. Fólk, með eld og brim í blóði, brýnt til stáls af sögn og Ijóði yfirstígur allar spár, nýtur veiga nornabrunnsins nœstu þúsund ár. VI TRÚ Hver er þessi hvíti seiður, hví eru loftin tœr og blá? Hví á friðlaus fuglinn hreiður, fleyga vœngi, himinþrá? Trúin er vor tign og heiður, testamenti, völuspá. VII LÖGVÍSI Lífið hefur lög og rétt lifendum og dauðum sett. Þegar allir þetta skilja, þá mun lotið einum vilja, bölið sigrað, byrðin létt. Öldin, sínu eðli háð, uppsker það, sem til var sáð. Enn er eins og garður granna geti scett — og heillum spáð. Æðstu lögmál allra manna eru þeim í hjörtu skráð. VIII LÆKNISLIST Þar myrkvast loft sem miskunnsemin deyr, en mátt hins góða styrkja Ijóssins andar, og sali vora gistir gyðjan Eir, sem grœðir sár og töfradrykkinn blandar. En oft er hold vort hörðum eggjum rist og hjálpin veitt af þeim, sem til þess kunna Sú mennt er há að beita lceknislist og leita uppi nýja heilsubrunna. IX TÆKNI Þó að gammar grárra skýja gini yfir nýrri bráð, Völundur og Vúlkan knýja vötn og eld og kynslóð nýja til að magna mannsins dáð. Gcefan hefur gefið mörgum gáfu, sem er rík og sterk. Þar sem tœknin byltir björgum, birtast andleg kraftaverk.

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.