Stúdentablaðið - 17.06.1962, Qupperneq 7
STÚDENTABLAÐ
Sveittir ræðarar að lokinni keppni. Sigurvegararnir eru í fremri farkostinum.
Fyrsti kappróðurinn milli Upp-
sala- og Lundarstúdenta
ÖRFANDI LYF? — STÓRSIGUR LUNDANNA
Stúdentaráðin við háskólana í
Uppsölum og Lundi hafa nú í
fyrsta skifti í sögunni leitt sam-
an hesta sína í kappróðri. Hefur
einokun brezkra stúdenta á þess-
arri iðju því loksins verið brot-
in á bak aftur. Sveit Lundanna
vann yfirburðasigur á Fyrisánni
í Uppsölum og sigraði sveit Upp-
salastúdenta með yfir tveim báts-
lengdum.
Fulltrúar stúdentaráðsins í
Uppsölum tóku á móti ræðurun-
um frá Lundi með pomp og prakt.
Ræðararnir, sem klæddir voru í
kjól og hvítt, voru siðan færðir,
gegn vilja sínum, á hestum til
Gástrike-Hálsinglands stúdenta-
garðsins, þar sem þeir voru vegn-
ir og reyndist sveitin vega alls
350 kíló.
Þegar kappróðurinn hófst, rak
hver stórviðburðurinn annan. —
Eftir að bátarnir höðfu verið
ræstir, í tryggilegri fjarlægð frá
Kvarnfossinum, þutu bátarnir af
stað undan straumnum. Lang-
fyrstur var bátur dómaranna,
sem þegar í stað hvarf niður ána.
Höfðu dómararnir misst jafnvæg-
ið í plastbát sínum og hafði hann
fyllt af vatni. Voru dómararnir
þar með úr sögunni.
Lundarnir tóku þegar foryst-
una í róðrinum og höfðu 500
metra forskot við snúninginn
norðan Fyrisbaðstrandarinnar.
Uppsaliensamir höfðu að sögn
tekið málin nokkuð létt og varð
þegar ljóst að þeir myndu bíða
lægri hlut. Róðrinum lauk með
sigri Lundanna, þó er talið, að
Uppsaliensar ætli að krefjast
ógildingar á keppninni vegna
þess grunar, að einhverjir kepp-
enda hafi verið undir áhrifum
Gunnar Hafström, nýbakaður lög-
fræðingur í Uppsölum hefur sent
formanni stúdentaráðs þessa frétt.
Gunnar stúderaði í Lundi, en er nú
bæjarþingsnotarius í Uppsölum.
Gunnar kom hingað til lands sum-
arið 1960 og er síðan algjör ís-
landsvinur, eins og lög gera ráð
fyrir. Það skal þó tekið fram, að
Gunnar er bindindismaður.
Gunnar hefur nú stungið upp á
þvi, að hann sendi Stúdentablaði
fréttir frá Svíþjóð af og til og í stað-
inn sendum við honum fréttir af
málefnum okkar, sem hann mun
síðan koma á framfæri við blöð
stúdenta í Svíþjóð. Slík skifti tel-
ur Gunnar líkleg til þess að auka
samvinnu sænskra og íslenzkra
stúdenta, en Gunnar segir m. a. í
bréfi sínu: Som Du vet, ivrar jag
! för, nármare förbindelser mellan
Sverige och Island.
örfandi eða deyfandi lyfja. I
verðlaun hlutu Lundar leyndar-
dómsfulla fallbyssu, og er allt á
huldu um fyrri eigendur fallbyss-
unnar.
Næsti kappróður fer fram í
Malmö að ári. Þar hyggjast Upp-
saliensar hefna harma sinna og
vinna til baka hina gömlu fall-
byssu, sem að áliti kunnugra
hefur átt lögheimili í Uppsölum
í nokkur hundruð ár.
Gunnar Erivan Hafström, J.E.R.
Um lánasjóð stúdenta
Við undanfarnar lánaúthlut-
anir hefur því miður viljað
brenna við, að ágætir kollegar
hafa ekki útfyllt umsóknir sínar
sem skyldi, og valdið þannig út-
hlutunarnefnd nokkrum erfiðleik-
um. Langar mig því til þess að
þetta megi betur fara í framtíð-
inni.
Fyrstu spurningunni, um nafn,
aldur, heimilisfang o. s. frv. svara
allir fullnægjandi, og hirði ég
ekki frekar um þær. En þegar
kemur að tekjunum fer að gæta
nokkurrar ónákvæmni. Sérstak-
lega hafa menn viljað misskilja
spurninguna um tekjur fyrir
aukastörf eftir að kennsla hófst.
Hef ég stundum heyrt menn
halda því fram, að tekjur fyrir
launaða kúrsusa þurfi ekki að
telja fram, ,,af því að kúrsusar
séu skyldustörf en ekki auka-
störf.“ Þetta er auðvitað megn-
asta hártogun, og eiga menn skil-
yrðislaust að telja sér tekjur fyrir
þessa kúrsusa.
Þar sem spurt er um eignir
umsækjenda, er fyrst og fremst
átt við fasteignir (íbúðir, bif-
reiðir), svo og peninga og verð-
bréfaeign. Annars svara ýmsir
þessum lið mjög ýtarlega, eins
og t. d. þetta svar ber með sér:
„Eignir: Eiginkona og barn.
Hvorugt metið til fjár. Arður
enginn“.
Varðandi skuldirnar þykir það
lýsa nokkrum trassaskap að vita
ekki um skuldir sínar við Lána-
sjóð ísl. námsmanna, og þurfa að
vísa til bóka sjóðsins um þær.
Ættu þeir, sem þetta hafa gert,
að afla sér upplýsinga um skuldir
sínar (hjá háskólaritara) eða
þeirri deild Landsbankans, sem
sér um lánin) og geta síðan ekki
aðeins um skuldarupphæðina,
heldur einnig á hvaða tíma er til
hennar stofnað, enda er líka spurt
um það.
Þar sem spurt er um ábyrgðar-
menn syndga líklega hvað flestir.
Ymsir virðast nefnilega haldnir
þeim mikla misskilningi, að hér
sé aðeins um formsatriði að ræða,
og fá því blásnauða samstúdenta
sína til þess að gerast ábyrgðar-
menn fyrir sig. Það gengur alls
ekki, og verða menn að fá sér
tvo ábyrgðarmenn, sem reynzt
gætu borgunmenn, ef til kæmi.
Varðandi síðasta liðinn, þar
sem spurt er um lánsupphæð þá,
sem óskað er eftir, skal þess get-
ið, að flokkarnir eru 4 og fara
hækkandi eftir því sem mönnum
miðar í náminu. Við síðustu út-
hlutun voru flokkarnir sem hér
segir: 1. fl. kr. 10.800,00, 2. fl.
kr. 9.000,00, 3. fl. kr. 7.200,00, 4.
fl. 5.400,00. Hvað háir flokkarnir
verða við næstu úthlutun, er ekki
hægt að segja að svo stöddu, en
þeir verða vonandi a. m. k. ekki
lægri en nú er. Ég vil hér nota
tækifærið og heita á menn, að
sækja ekki um hærri flokk en
þeir telja sig geta minnst komizt
af með.
Enn er eitt, sem vert er að
minnast á, og það er að svara
ekki einföldum spurningum eins
og um tekjur, húsaleigu o. þ. u. 1.
með núllum, strikum oð öðrum
álíka táknum. Ef menn hafa eng-
ar tekjur haft eða greiða enga
húsaleigu, er viðkunnanlegast að
nota móðurmálið til þess að láta
það í Ijós. Hér er að vísu um
smáatriði að ræða, en þessi tákn
setja ljótan svip á umsóknina,
svo að ég læt þetta fylgja með.
f sambandi við næstu úthlutun
má svo geta þess, að þá verður
væntanlega hægt að veita þeim
stúdentum á 4. misseri úrlausn,
sem lokið hafa öllum tilskyldum
prófum.
Að lokum þykir rétt að taka
eftirfarandi fram um lánskjörin:
Lántakandi skal enga vexti greiða
meðan á námstíma -stendur, en
endurgreiða lánin með jöfnum af-
borgunum og 3% % ársvöxtum á
allt að 15 árum. Vaxtagreiðslur
og afborganir hefjast á árum eft-
ir að námi lýkur. Miða skal við
próf eða síðustu lántöku, ef náms-
maður hverfur frá námi.
T. Á.
Grein þessi birtist fyrst í Læknanem-
anum, en þar sem ritstjórar Stúdenta-
blaðs töldu hana eiga brýnt erindi til
stúdenta i öllum deildum, var aflað
leyfis hjá ritstjórn Læknanemans til
endurbirtingar í Stúdentablaði.