Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.10.1985, Blaðsíða 27

Stúdentablaðið - 01.10.1985, Blaðsíða 27
samræmi hlutanna horfir beint fram án þess að sjá og orðin hreyfast en lest ekki sjónin þenst út allt í einu eru þeir komnir á meðan afkynningartextinn sytraði yfir glerið fikruðu þeir sig í sjónmál úr öllum áttum í einu allt einsogþaðáaðvera: borðið traustum fótum á teppinu stólarnir bækurnar í hillunum vasarnir stytturnar loks sjálfur illa gerður í fullkomnu samræmi hlutanna stekkur á fætur slekkur dagskrá kvöldsins á enda góða nótt í blárri mállausri stofunni einsog annar endir þessi nístandi kaldi sónn og leiftrið tíminn að hnipra sig saman þegar skjárinn myrkvast Kristján Kristjánsson er höfundur ljoðanna hér á síðunni. Hann er bókmenntafræðinemi á þriðja ári. Arið 1984 gaf hann út bókina Svartlist ásamt Aðalsteini Svan myndlistarmanni. Auk þess fæst hann við barnaupp- eldi.... STÚDENTABLAÐIÐ 27

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.