Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.10.1985, Blaðsíða 11

Stúdentablaðið - 01.10.1985, Blaðsíða 11
STÚDENTABLAÐIÐ Astrún Agústsdóttir útskýrir fjármálin fyrir Hjónagarðsbúum. tryggingarféð sem leigjendur leggja fram skyldi aukið úr sem svaraði til einnar mánað- ar leigu í tveggja mánaða leigu. Rök F.S. fyrir þessari breytingu cru þau að alltaf sé eitthvað um það að menn hverfi úr húsnæðinu án þess að gera upp við Félags- stofnun fyrst. Hyrfu menn gjana til útlanda þar sem ógjörningur væri að hafa uppá þeim. Ekki voru Garðsbúar almennt sáttir við þetta. Hitt atriðið var að bundið er í samningi þessum að leig- an skuli hækka til samræmis við hækkun á lánskjaravísi- tölu á 3ja mánaða fresti. Töldu Garðsbúar þetta órétt- látt þar sem sú vísitala hækk- aði oftast mun meira en t.d. húsalciguvísitala. Rökin sem F.S. færði fyrir þessu voru á þá leið að hluti af leigugrunn- inum (þ.e. þeim kostnaði sem er við rekstur allra garðanna) er fjármagnskostnaður sem bundinn er lánskjaravísitölu. Pví væri eðlilegt að leigan hækkaði til samræmis við þær kostnaðarhækkanir sem raunverulega ættu sér stað. Þriðja atriðið sem um var deilt á þessum fundi var síðan sjálf húsaleigan — og þá um leið leigugrunnurinn. Stjórn F.S. er búin að ákveða að leigan fyrir herbergi á Görð- unt skuli vera kr. 3.650,- fyrir september til nóvember. Sú leiga finnst Garðsbúum mörgum veraof há. En einnig komu fram athugasemdir við það að ckki skuli veittur af- sláttur til þeirra sem enn búa í óuppgerðum herbergjum eins og gert hefur verið undanfarin ár. Rökin fyrir því voru þau að nú á haust- mánuðum ætti aö klára allar þessar endurbætur og því hefði mönnum þótt rétt að setja alla við sama borð. Auk þess komu fram smærri athugasemdir við leigusamninginn og lcigu- grunninn. En eitt var þó áber- andi í gagnrýni fundarmanna á Félagsstofnun að þeim fannst súrt í broti að ekki skyldi hafa verið haft samráð við þá við gerð þessara leigu- samninga. Þeir töldu sig þó hafa haft loforð fyrir því að svo yrði gert. Þessum fundi var þó ekki ætlað að gera út um málin, heldur var hann hugsaður til kynningar. 10. október verð- ur síðan haldinn annar fundur og fyrir þann tíma ætla Garðs- búar að vera búnir að koma fram með sínar athugasemd- ir. — Fundurinn með Hjóna- garðsbúum var nteð svipuðu sniði — a.m.k. framan af. Samningurinn var kynntur og leigugrunnurinn cinnig. Pað komu fram nánast sömu at- hugasemdir og komu frá íbú- um Garðanna. P.e. menn voru ósáttir við það að þurfa að borga rúmar 10.000. kr. í tryggingarfé og jafnvel enn ósáttari við lánskjaravísitöl- na. Pað var ekki langt liöið á fundinn þegar hann fór aö snúast um sömu hluti og leigu- deilan í sumar. Par kom vel fram um hvað er deilt og hversvegna. Er því rétt að skýra nokkuð um hvað er deilt er um. Sjónarmið margra Hjóna- garðsbúa er það að þeir eigi ekki að borga af þeim lánum sem á Hjónagöröum hvíla. Rökin fyrir því eru á þá leið að þetta sé húsnæði allra stúdenta og því beri öllum stúdentum að borga þetta húsnæði sitt. Þeint finnst hins vegar ofur eðlilegt að greiða allan rekstrarkostnað við Hjónagarðana. Pessu mót- mælir stjórn F.S. og telur að Hjónagarðsbúum beri að greiða fjármagnskostnaö enda sé hann hluti af rekstrar- kostnaði. En þetta er þó ekki nema ein hlið deilunnar. Hjóna- garðsbúar hafa fallist á að greiða hluta fjármagnskostn- aðar en ekki allan. Til nánari útskýringar þá er þessi fjár- magnskostnaður til kominn vegna tveggja lána sem hvíla á Hjónagörðum. Annað lánið, það stærra, er til 31 árs. Það er lán sem ríkissjóður útvegaði til bjargar Félags- Einn garðsbúa útskýrir rök sín fyrir starfsmönnum F.S. stofnun á sínum tíma. Það lán hafa Hjónagarðsbúar fall- ist á að greiða. Hitt lánið er lán sem var til 26 ára og varð ekki framlengt þcgar málefni F.S. voru gerð upp. Nú eru 16 ár cftir af því láni. Það neita Hjónagarðsbú- ar að greiða. Telja að það hefði átt að framlengjast eins og hin lánin sem hvíldu á görðunum. Það lán nemur í dag 200 kr. á mánuði á hverja íbúö á Hjónagörðunum en leigan þar er 5.100. kr. á mánuði frá 1. september. Auk þessarar deilu hafa Hjónagarðsgúar gagnrýnt hlut skrifstofukostnaðar sem þeim er gert að grciða. Þcir telja ennfrcmur aö hægt sé að rcka garðana betur þannig að kostnaðurinn vcrði ckki eins mikill. Þaö sem kannski var meg- inatriðið í því sem fram kom á þessum fundi cr að sam- bandið milli stjórnar F.S. og Hjónagarðsbúanna er ckki gott. Hjónagarðsbúar segja að stjórnin hlusti ckkert á það sem þeir hafa fram að færa og vilji ekkert samráð við þá hafa. Aukin heldur sem íbúarnir fái ekkert að fylgjast með því sem sé að gerast í þeirra málum. Á móti kcmur aö stjórnar- tundir F.S. eru öllum stúdent- um opnir þannig að hver sem cr getur fylgst mcö því scm þar gerist. En nú á sem sagt að reyna til þrautar að ná samkomulagi við alla leigjcndur F.S.

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.