Stúdentablaðið - 01.03.1993, Síða 2
Að þora
er erfitt - og þó
öll fæðumst við nakin
svo hjúpum við okkur
og fjarlægjumst
eitthvað bærist - komum fram
teygjum okkur inn í tómið á milli okkar:
Ljóða- og smásagnasamkeppni
Stúdentaráðs
Skilafresturinn framlengdur til 1. apríl
Skilið efninu á skrifstofu Stúdentaráðs, 2. hæð
í húsi Félagsstofnunar.
Glæsileg verðlaun í boði
Stefnt að tillögum um nýtt
námsaðstoðarkerf i í vor
Allar námsmannahreyfingarn-
ar og ungliöahreyfingar stjórn-
málaflokkanna, utan S.U.S.,
vinna nú saman aö því aö
móta nýjar og raunhæfar hug-
myndir um nýtt námsaöstoöar-
kerfi sem leysti lánasjóöinn af
hólmi. Stefnt er aö því aö
leggja fram sameiginlega til-
lögu í vor.
„Markmiðið með þessu starfi er að koma
umræðunni um lánasjóðinn upp úr skotgröf-
unum,“ sagði Kristinn H. Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Iðnnemasambandsins. Hug-
myndin að þessu breiða samstarfi kom fyrst
fram á sambandsstjómarfundi INSI í haust
og síðan óskaði Stúdentaráð eftir að eiga að-
ild að undirbúningi viðræðnanna. Núna hafa
verið haldnir tveir fundir og byrjað er að
safna saman fyrstu hugmyndunum. „Það
komu strax fram ýmsar nýjar hugmyndir
sem ekki hafa áður sést.“
Að sögn Kristins hefur það verið ann-
marki á umræðunni um námsaðstoð hingað
til að alltaf sé talað út frá lögunum um
L.Í.N. eins og þau voru sett árið 1982. „Við
í Iðnnemasambandinu viljum meina að þar
sé röng hugsun að baki. Lánasjóðurinn var
hugsaður fyrir háskólanám og annað nám,
svo sem sémám og iðnnám, hefur verið tekið
inn sem undantekningar. Þetta hefur þýtt að
annað nám en háskólanám hefur átt undir
högg að sækja.“
Kristinn telur brýnt að skoða mennta-
kerfið í heild sinni og sníða námsaðstoðar-
kerfið sem hluta af því. Hann bendir á þá
endurskoðun á menntakerfinu sem nú er í
gangi og áherslur á til dæmis tækninám.
„Ef það á að breyta áherslum í menntakerf-
inu verður að skoða námsaðstoðarkerfið í leið-
inni því það er óaðskiljanlegur hluti af því. I
dag er menntamálaráðuneytið að leggja á-
herslu á eitt en stjóm lánasjóðsins gerir allt
annað, samanber til dæmis að skera frum-
greinadeild Tækniskólans burt sem láns-
hæft nám.“
Kristinn sagði ómögulegt að segja til um
það í dag á hvaða formi tillögumar um nýtt
námsaðstoðarkerfi verði. „Þegar búið er að
móta hugmyndir þá á eftir að reikna þær út
en það er grundvallaratriði að koma með
raunhæfar tillögur. Við ætlum ekki að
byggja skýjaborgir eða setja fram óskalista.
Það er ljóst að það væri ekkert vandamál að
búa til kerfi ef það væru til nógir peningar.
Spurningin er hins vegar hvemig við ætlum
að skipta takmörkuðum fjármunum á sem
réttlátastan hátt þannig að það skili bæði
námsmönnunum sjálfum og þjóðfélaginu
öllu sem mestu.“
Ef sníða á raunhæft námsaðstoðarkerfi,
þarf þá að taka fortíðarvanda L.I.N., öll er-
lendu lánin, með í dæmið? „Eg vil ekki hafa
neinar skoðanir í því á þessu stigi“ sagði
Kristinn. „Hins vegar eru fordæmi fyrir því
að kerfum sé lokað áður en ný em stofnuð, til
dæmis þegar gamla húsnæðislánakerfinu
var lokað. Fortíðarvandi lánasjóðsins er ekki
námsmönnum dagsins í dag að kenna en
þeim er hegnt fyrir hann.“
Kristinn er óánægður með þá ákvörðun
Sambands ungra sjálfstæðismanna að segja
sig úr samstarfinu strax að loknum fyrsta
fundi. „Það var mjög skrítið því engar hug-
myndir höfðu verið lagðar fram og eina for-
sendan fyrir þátttöku var að viðkomandi
Kristinn H. Einarsson, framkvæmda-
stjóri Iðnnemasambands íslands, seg-
ir þaö vera grundvallaratriöi aö móta
raunhæfar tillögur um námsaöstoöar-
kerfi, tillögur sem búiö sé aö reikna
út aö geti gengið.
hreyfing væri því sammála að hér þyrfti að
vera námsaðstoðarkerfi.“ Kristinn vonar að
brotthvarf ungra sjálfstæðismanna spilli
ekki mikið fyrir möguleikunum á því að ná
fram raunhæfum breytingum. „Það er góður
andi á fundunum og nú þurfum við tíma og
næði til að vinna. Eftir að sameiginlegar til-
lögur liggja fyrir þá einbeitum við okkur að
því að kynna þær innan stjómmálaflokkana
og út í þjóðfélaginu og vonandi næst þannig
mjög breið samstaða um nýtt námsaðstoðar-
kerfi.“
Markmiöiö meö þessu starfi er aö
koma umræöunni um lánasjóðinn upp
úr skotgröfunum
Ráðstefna um
atvinnuleysi
Málþing Samfélagsins um atvinnuleysi
var vel sótt enda mætti fjöldi frum-
mælenda til að varpa nýju Ijósi á fyrir-
bærió frá ýmsum hliðum. Rætt var um
stööu vinnumarkaðsmála, atvinnu-
möguleika langskólagengins fólks,
viöhorf í garö atvinnulausra, áhrif at-
vinnuleysisins á sjálfsvitund þeirra og
margt fleira. Meöal frummælenda voru
Stefán Ólafsson prófessor, Haildór
Grönvold stjórnmálafræöingur, Guörún
Ögmundsdóttir borgarráðsfulltrúi, Jón
Magnússon lögfræöingur Vinnuveit-
endasambandsins og Pétur Sigurós-
son, forseti Alþýöusambands Vest-
fjaröa.
Nýtt launakerfi kennara
í framsöguræðu á málþingi
menntamálaráðuneytisins um
stefnu og framtíð Háskóla fs-
lands lagði Gísli Már Gíslason,
formaður Félags háskólakenn-
ara fram hugmyndir að nýju
launakerfi háskólakennara þar
sem laun yrðu rannsóknahvetj-
andi en ekki kennsluhvetjandi
og að reyndari og færari kenn-
arar sinntu aðallega rannsókna-
tengdu framhaldsnámi en fram-
haldsnemar sinntu ein-
faldari kennslu.________
STÚDENTABLAÐIÐ
Gísli Már vill að allur fram-
gangur kennara og prófessora
byggist á framlagi til vísinda og
afköstum þar sem gerðar yrðu
miklar kröfur. Hugmyndin er að
nýtt launakerfi með hærri launum
verði sett upp og nýráðnir kennarar
sem ráðnir yrðu til sex ára gengju
inn í það. Kennarar sem þegar séu
í starfi séu í upphafi á núverandi
launakjörum og þurfi að uppfylla
sömu kröfur og nýráðnir kennarar
til að komast inn í nýja launakerf-
ið.
„Mér finnst formaður Félags
Háskólakennara sýna mikinn
kjark,“ sagði Pétur Þ. Óskarsson,
fráfarandi formaður Stúdentaráðs.
„Hann einskorðar sig að vísu full-
mikið við rannsóknirnar og gleym-
ir kennslunni sem er auðvitað mik-
ilvæg í starfi háskólans, en þetta
eru mjög spennandi hugmyndir og
umræðugrundvöllur.“
Pétur Þ. Óskars-
son, fráfarandi
formaöur Stúd-
entaráðs, á-
varpar málþing
menntamála-
ráóuneytisins
um stefnu og
framtíö Háskóla
íslands. í erindi
sínu lagöi Pétur
megináherslu á
aö fjárveiting-
um til skólans
veröi þannig
háttaö aö hon-
um sé gert
kleift aó auka
framhaldsnám.