Fálkinn - 19.04.1930, Blaðsíða 7
F A L K I N N
7
Um víða veröld.
ZELLA HIN FAGRA.
r.. or8^eikur sá, er lijer verður sagt
nýlega i Denver í Banda-
t;i^a^soSuhetjan, Petey Pawell, flutti
b„ enver ásamt systur sinni, Sadie,
Verar *lann var um tvítugt. 1. Den-
komst Patey að sem sendiil
hjá
átt' ,matvoruverslun. Dag nokkurn
sk *i , nn fara me'ð vörur til fjöl-
utá Uunnar Dickson, sem bjó dálítið
; e]n,,Vl® bæinn. Þegar hann kom inn
. dhusið var hann svo óheppinn að
6óírta Uln eg8Íakörfu, sem stóð á
reiJnu> Eldasveinninn varð æfur og
Se Ur °g vildi ekki hlusta á Petey,
sj reyndi með öllu móti að afsaka
K' A meðan þeir voru að skammast
kom húsmóðirin að, hún kendi i
brjósti um piltinn og reyndi að hug-
hreysta hann, sem best hún mátti.
Frú Zella Dickson leist vel á hinn
fallega sendil og bauð honum að
gerast bifreiðarstjóri hjá sjer. Petey
varð himinlifandi því hann langaði
um fram alt til þess að komast i aðra
stöðu.
Nú leið nokkur tími og hinn ungi
Petey varð hrifnari af hinni fögru
húsmóður sinni með degi hverjum,
Zella virtist heldur ekki frábitin
Petey. Og þvi lauk á sama hátt og
oft vill verða um ástina. Frú Dick-
son kastaði sjer út i æfintýrið án þess
að gera sjer grein fyrir hvað hún
ætti á hættu með því. Hún hugsaði
með sjer að maður hennar hefði alt
of mikið að gera við verslunina til
þess hann færi að gruna nokkuð.
Sú, sem tók eftir því hvernig kom-
ið var, var unga stúlkan systir Petey.
Hún hafðin einu sinni sjeð þau sam-
an og vissi að þetta mundi enda með
skelfingu fyrir bróður sínum, sem
hún unni mjög. Og hún ásetti sjer
að hjálpa honum.
Að lokum datt lienni ráð i hug,
sem varð þeim öllum til tjóns. Hún
fór á fund Dicksons og sagði honum
hvernig í öllu lægi og bað hann að
finna eitthvert ráð til þess að senda
konu sína burtu svo Petey gæti farið
að þykja væn't umeinhverjaaðrakonu.
Dickson vildi ekki trúa henni í fyrstu
og hæddist að þessum grun hennar.
Hann lofaði henni að ráða bót á
þessu, þannig að ekki mundi saka
bróður hennar. Og fór svo stúlkan
leiðar sinnar.
Dickson efndi líka loforðsín en öðru
vísi en stúlkuna grunaði. Hann rjeði
nokkra leynilögregluþjóna og ljet þá
hafa gát á framferði konunnar án
þess hún yrði vör við. Ekki leið
án löngu áður en þeir komust að raun
um að systir Peley hafði ekki farið
með fleipur. Og svo eitt kvöld þegar
Zella og Petey voru ein heima, gekk
maður hennar inn í lierbergið þar
sem þau höfðust við og skaut Petey
beint í hjartastað.
Dickson er kærður fyrir morð að á-
settu ráði, efi stendur á því fastara
en fótunum að þetta hafi verið ó-
liappaskot, hann hefði aldrei ætlað
sjer að skjóta Petey.
Málið er eklci útkljáð ennþá og
menn vita ekki hvernig dómararnir
kunna að líta á það.
----x——
LAND HUGVITSMANNA.
í engu landi í heiminum er tiltölu-
lega eins margt af liugvitsmönnum
og í Sviss og hvergi eru tekin eins
mörg einkaleyfi, að tiltölu við fólks-
fjölda. Prófessor Mark Jeffersen þyk-
ist hafa fundið skýringu á þessu.
Svisslendingar hafa jafnan veitt grið-
land gáfuðum útlendingum, sem urðu
að flýja ættjörð sína af stjórnmála-
ástæðum eða trúarbragða. Á þann
hátt liafa úrvalsmenn flust inn í land-
ið og aukið þjóðina að þekkingu og
hugviti.
Árin 1925 voru tekin í Sviss 930
einkaleyfi á hverja miljón íbúa. Til-
svarandi tölur eru í Austurríki 299,
Þýskalandi 271, Frakklandi 195, Bret-
landi 188, Belgíu 180 og Bandaríkj-
unum 100.
Þegar sáttagerðin, sem kend var
við Nantes var numin úr lögum 1085
urðu 60.000 hugenottar griðalausir í
Frakklandi og fóru þeir flestir til
Sviss. Þar höfðu hugenottar áður lagt
undirstöðuna að- silkiiðnaði í Ziirich
og Bern. Hugenotti var það, sem
fyrstur bjó til úr í Genf og hugenott-
ar stofnuðu fyrsta bankann i Sviss
og komu fótum undir heildsöluversl-
unina. Þegar Hollendingar áttu við
ógnarstjórn Spánverja að búa, flýðu
margir þaðan til Sviss og sömuleiðis
flýðu margir Þjóðverjar þangað, með-
an 30-ára stríðið stóð. En mest mun-
aði um ~hugenottana. Ofsækjendur
þeirra flæmdu gáfaðasta hluta
frönsku þjóðarinnar úr landi, þá, sem
þeir ekki drápu.
í viðskiftalifinu voru það úrin, sem
fyrst gerðu garðinn frægan hjá Sviss-
lendingum. Sá, sem fyrstur smíðaði
úr i Sviss var Charles Cusin frá
Bourgogne, sem fluttist til Sviss 1587
og settist að í Genf, sem þá var fræg
fyrir skrautgripasmiði. Hundrað ár-
um seinna voru smíðuð 5000 úr á ári
i Sviss, en árið 1806 voru smíðuð
800.000 úr í einni kantónu aðeins:
Neuchatel. í úrsmíði er Daníel Jean
Richard sjerstaklega frægur orðinn
fyrir verkfæri ýms og vjelar til úr-
smíða, sem hann gerði. Árið 1886 var
honum reistur minnisvárði í Neucha-
tel, Er hann talinn sá, sem hafi lagt
hyrningarsteininn að mesta iðnaði
landsins.
Dúkagerð er einn af aðalatvinnu-
vegum Svisslendinga og er það eink-
um vönduð vara úr silki, sem þeir
framleiða. Svisslcndingar flytja ár-
lega inn óunnið silki fyrir 45 kr. á
hvern landsbúa, vinna það og flytja
út aftur unnar silkivörur fyrir 85 kr.
á hvern landsbúa. Silkiiðnaðurinn
veitir því þjóðinni atvinnu, sem nem-
ur 40 kr. á hvert mannsbarn í land-
inu.
MOTORBATAR
Vjer útvegum allar stærðir af mótorbátum frá
Frederikssunds Skihsværft, Frederikssund.
Bátarnir eru bygðir úr eik og er allur frágangur svo
vandaður sem auðið er.
20 tonna bátar með 64/76 hesta Tuxham mótor
kosta liingað komnir kringum þrjátíu og f jögur
þúsund og fimm liundruð íslenskar krónur.
M.b. VlÐIR frá Akranesi.
Þegar myndin er tekin er báturinn að koma úr róðri
og er hlaðinn af fiski.
Símar 1317. (3 línur)
Þeir, sem ætla að kaupa báta fyrir næstkomandi vetrar-
verlíð ættu ekki að draga það lengur að semja við okkur,
Þvi það er sjáanlegt að með þeirri eftirspurn, sem nú er
á bátum, þá verður ekki hægt að afgreiða pantanir, sem
koma síðar en fyrir 1. júni.
Skrifið okkur og látið okkur vita hve stóran bát þjer
þurfið að kaupa, og vjer sendum yður tilboð um hæl.
Hagkvæmir greiðsluskilmáiar.
Effgert Kristjánsson & Co.
Símnefni: Eggert.