Fálkinn - 26.04.1930, Side 18
18
P Á L K I N N
Við höfum ávalt landsins stærsta og besta forða. Nefnum aðeins nokkr-
ar tegundir Palco, Titanhvítu, Zinkhvítu, Gletscherweiss, Japanlakk.
lagaða málningu.
Vörum, sem bera þetta merki er óhætt að treysta.
Ripolin lökk, gljáandi og mött
Muradek distemper, hvítur og mislitur,
Þeir, sem reynt hafa þessa Pensla, nota einungis þetta merki
Lím fyrir gólfdúka veggfóður og málningu
Trjelím í plötum og duft (kalt lim)
Listmálningarvörur og áhöld
Húsastrigi, pappír livítur og brúnn.
VEGGFÓÐUR, stærsta og fegursta úrval á landinu. Fylgjum ávalt þeim
nýjungum, sem fram koma í okkar sjergreinum.
Hubio forseti í Mexico hefir skip-
að öllum sýslumönnum i landinu að
loka þegar í stað öllum spilakrám er
þeir vita af og berjast með oddi og
egg á móti fjárhættuspili. El' þetta
tekst verður söknuðurinn mestur í
Bándaríkjunum, því þaðan þyrpast
hópar af landeyðum til þess að geta
spilað í friði. Forsetinn hefir einnig
gefið út tilskipun um varnir gegn
áfengisbölinu, sem ér mikið i Iandinu.
I írlandi er almenn óánægja yfir
því, hve slæmur markaðurinn er orð-
inn fyrir k'artöflur, en þær eru mikið
ræktaðar i írlandi. Orsökin til þessa
er sú, að kvenfólkið hefir uppgötvað
að það fitni af kartöfíum, en það
verður vitanlega að varast, og þvi
Jiætt að leggja kartöflur sjer ti)
munns. Mikill er máftur tískunnar.
Eins og kuunugt er fá listamenn
hærra kaup x Bandaríkjunum en í
nokkru öðru landi heixns. Talandi
dæmi um þetta er ávísunin, sem liinn
t'rægi visnasöngvari Harry Lauder
fjekk nýlega fyrir að syngja visur og
segja sögur í útvarpi nýlega í 15 mín-
útur. Ávísunin hljóðaði upp á 20.000
doiiara!
Hársnyrtingarmenn hafa nýlega
lialdið þing í Berlin til þess að ráða
ráðum sínum um, hvað þeir eigi að
skipa kvenfólkinu í sumar. Var þar
samþykt, að tískuliturinn á hári skuli
vera rauður í sumar. Hvort karl-
mennirnir eigi að lita hárið rautt líka,
getur sagan ekki um.
HMHr
I. BRYNJÓLFSSON & KVARAN.
igr Bezti eiginleiki ^
y FLIK-FLAKS
er, að það bleikir þvottinn
við suðuna, án þess að
skemma hann á nokk- /M
urn hátt I m
Ék Ábyrgzt, að laustlw
ÍÍL sé við klór.
Best er að auglýsa i Fálianum