Fálkinn - 16.08.1930, Qupperneq 2
2
F A L K I N N
----- NÝJA BÍO ---------
Aup nndirheimanna.
Aðalhlutverkið leikur hinn
frœgi íslenski kvikmyndaleikari:
BILL CODY.
Verður sýnd bráðlega.
PROTOS RYKSUGAN
Ljettið yður vorræst-
ingar til muna með því
að nota þetta
hentuga tæki.
Sterk, ljett,”ódýr.]
Fœst h]á
raftækja-
sðlum.
30 ára reynsla hefir sýnt að skór
með „Columbus“ merkinu eru
bæði sterkir og fallegir, höfum
altaf fyrirliggjandi c. 15 til 20
mismunandi gerðir af þessum
^UtiVíÞ^' góðu skóm.
Lárus G. Lúðvígsson, skóverslun.
---- QAMLA BIO —
Iþróttastúdentinn.
Gamanmynd í 8 þáttum.
Aðalhlutverkin leika:
Rod la Roque
Jeanette Loff.
Afar skemtileg mynd.
Sýnd bráðlega.
SOFFÍUBÚB
(S. Jóhannesdóttir.)
Vefnaðarvöru- og fataverslanir.
Austurstræti 14
(beint á móti Landsbankanum).
REYKJAVÍIÍ og á ÍSAFIRÐI.
Allskonar fatnaður fyrir konur,
karla unglinga og börn.
Fjölbreytt úrval af álnavöru,
bæði í fatnaði ogtilheimilisþarfa.
Allir, sem eitthvað þurfa, sem að
fatnaði lýtur eða aðra vefnað-
arvöru, æltu að líta inn í þess-
ar verslanir eða senda pantan-
ir, sem eru fljótt og samvisku-
samlega afgreiddar gegn póst-
kröfu um alt land.
Allir þekkja nú
SOFFIUBUÐ.
Kvikmyndir.
ÍÞRÓTTA-
STÚDENTINN.
Gamla Bíó sýn-
ir bráðlega mjög
skemtilega gam-
anmynd, sem það
kallar: íþrótta-
stúdentinn. Aðal-
hlutverkið leikur
Rod la Rocque.
Hann minnir á
mestu gamanleikara Ameríku báða í senn þá
Chaplin og Harald Lloyd en er þó alveg sjer-
stæður. Sagan er um ungan Spánverja frá Bue-
nos Ayres og æfintýri þau sem hann ratar í
sem hnefaleikamaður, fótboltamaður og elsk-
hugi, þar sem hann stundar nám við Yale-
háskólann i Bandaríkjunum. Myndin hefir
fengið mikið hrós í amerískum blaðadómum,
þykir leikur Rod la Rocque frábærlega góð-
ur í íþróttamanninum og elskhuganum. Leik-
ur hans er tnjög fjörugur og myndin spreng-
hlægileg og full af spennandi atvikum; hann
kemst í hverja klípuna á fætur annari en snýr
sig út úr þeim þegar minst vonum varir. Kven-
hlutverkið leikur ung og fögur leikmær, Je-
anette Loff.
----x----
AUGU UNDIRHEIMANNA.
íslenska skáldinu Halldóri Kiljan
Laxness farast svo orð um Bill Cody:
.... Af öllu því merkilega fólki,
sem jeg hefi kynst síðustu vikurnar,
varð mjer einna furðanlegast við að
kynnast Bill Cody. Hann er heims-
ins frægasti kúreki (Cowboy). Jeg
mintist þess að hafa sjeð hann nokkr-
um sinnum á Ijereftinu með langa
keyrið sitt og barðastóra kúfinn, bæði
í Evrópu og hjer í Ameríku. hann er
hár og grannur, ljóshærður og
drengilegur, og bros hans mjög
heillandi. Hann ber ekki vopn; en
ef ræningi ætlar að skjóta hann með
skammbyssu, þá slöngvar hann langa
keyrinu sínu á dónann, svo að end-
inn á því vefur sig um hendina, sem
byssunni heldur. Síðan á hann alls-
kostar við ræningjann. Allir drengir
eru vinir hans, hvar sem er á hnatt-
kúlunni; og það eru stúlkur í Ástra-
líu, sem skrifa honum og biðja uin
stefnumót.
Þegar við hittumst var hann hvorki
með langa keyrið sitt nje kúfinn,
heldur klæddur eins og venjulegur
Broadway-maður, glæsimenskan og
kurteisin sjálf. Þegar honum var
sagt, að jeg kæmi frá íslandi, þá
varð hann allur að einu brosi og
sagði:
„Þaðan kem jeg líka.“
.... Jeg spurði, hvar hann hefði
dvalið á íslandi.
— Jeg átti heima á Jlúsabakka við
Sauðárkrók, sagði Bill Cody, og gaf
mjer lýsingu af staðháttum kringum
Sauðárkrók, svo að mig ftirðaði á
nákvæmninni. — Um vorið var jeg
látinn smala á hestbaki upp um fjöll
ig firnindi. Og mjer var sagt að jeg
mætti eiga alla þá ullarlagða, sem jeg
íyndi út um hagana og leggja þá inn
í kaupstaðinn og taka út á þá, hvað
sem mig lysti. Og um sumarið fór
jeg með hagalagðana mína í kaupstað
inn og fjekk nokkra aura út á þá. Og
jeg rannsakaði allar vörurnar í búð-
inni, til þess að sjá, hvað jeg ætti
helst að fá mjer fyrir aurana mína.
Og loksins keypti jeg mjer grænan
hatt með stórum börðum og dálítilli
fjöður upp úr. Og þegar jeg kom
heini, þá hlógu allir strákarnir í
sveitinni.....
.... Cody hefir samið og leikið
milli tuttugu og þrjátíu rnyndir —
ýmist á eigin reikning, eða fyrir til-
stilli Pathe-fjelagsins. Kann eg að
nefna þessar, og hafa þær verið
sýndar um allan heim: „Arizona
Whirlwind"; „King of the Saddle“;
„Born to Baltle“; „Galopping Cow-
boy“; „Fighting Smile“; „Riders of
Mystery.“
Cody notar sem sagt aldrei vopn
í myndum sínum, nema keyrið sitt;
drekkur aldrei í þeim nje reykir; og
hefir það orðið geysilegt verslunar-
atriði, þannig, að myndir hans hafa
hlotið meðmæli frá sterkum vígjuni
þeirra, sem vaka yfir siðum æsku-
lýðsins. — Ilann er þannig ímynd
siðferðilega fullkomins kúreka í aug-
um klerkastjettarinnar og voldugra
mæðrasambanda.
Zfiss PRISMA-KIKIRA
kaupið þjer tví-
mælalaust
besta og ódýrasta
hjá fagmanninum
á Laugaveg 2. ^