Fálkinn - 16.08.1930, Blaðsíða 9
F A L K I N N
9
:
>;
1 New Jersey, rjett við New York varð fyrir skemstu sprenging í steinolíuskipi. Náði eldur-
inn olíugeymunum og varð brátt óviðráðanlegur. Ekki mátti sökkva skipinu þvi að þá hefði
olían runnið í sjóinn logandi og kveikt í öðrum skipum. En svo fór þó að skipið sprakk og
varð sjórinn að eldhafi á 18 ekra svæði. Myndin sýnir slökkviliðsskip að berjast við eldinn.
iiea
■
Um Pálskirkjuna í London lief-
ir verið lögð stálgirðing í jörðu,
til að verja hana hristingi af um-
ferðinni. Hjer sjest girðingin.
Hjer á myndinni til hægri
sjest Eckener foringi loft-
skipsins „Graf Zeppeliii“
vera að kveðja vini og
vandamenn áður en hann
lagði upp í síðustu langferð-
ina er hann hefir farið. Þær
eru nú orðnar margar og
frækilegar ferðirnar, sem
skipið hefir farið, þó að ekk-
ert hafi orðið úr norður-
skautsförinni.
Á hreinlætisvörusýningu
einlii, sem nýlega var hald-
in í Dresden voru sýndar
ýmsar skrítnar og gagnleg-
ar nýjungar, er vita að iðk-
un hreinlætis. Meðal þeirra
má nefna áhald það, sem
hjer er sýnt. Framleiðir það
gufur, sem eru eitraðar og
drepa allskonar óþrif, svo
sem lýs og flær, geitur oog
kláða og sótthreinsa fatnað
að fullu.
Yilhjálmur fyrv. krónprins Þýskalands og kona hans, Cecilia
hjeldu silfurbrúðkaup sitt hjá föður hans í Doorn, 6. júlí. Þar
voru haldnar margar ræður um framtið alheims og Þýskalands,
Þjóðverjar halda nú heræfingar með miklum ákafa. Myndin sýn-
ir æfingar með fallbyssur. Netið táknar það að flugmönnum eigi
að vera ókleift að sjá, hvað fram fer.