Fálkinn - 16.08.1930, Blaðsíða 15
wnr1
F A L K I N N
15
TUNGSRAM
Þessi viðurkenda tegund glóðalampa fæst aðeins hjá
RAFTÆKJAVERSLUN JÓNS SIGURÐSSONAR
Austurstræii 7 — Sími 836
WESTINGHOUSE LJÓSASTÖÐIN
Fullkomin raf-
magnsstöð
með stórum
rafgeymum.til-
búin að setjast
upp með litl-
um fyrirvara.
Nœgir i 3—10
samliggjandi
liús.
Símið, skrifið.
Svar um hæl.
Sími 1690. EIRÍKUR HJARTARSON Reykjavík.
Framkollun og kopiering
afgreiðist eftirleióis sam-
dægurs eða daginn eftir.
Hans Petersen
Bankastrætl 4
RONA 1 BRÚÐGUMAKLÆÐUM
Ung og falleg stúlka kom nýlega
® lögreglustöðina i Budapest og
«ærði fyrverandi unnusta sinn fyr-
*r> að hann hefði hótað að drepa
hana. Hann hjet Schlemmer og hafði
le»fii verið lofaður stúlkunni og var
hý, komið að hrúðkaupinu og þau
hjónaleysin þegar flutt í ibúðina,
Sem þau ætluðu að búa í. Schlemm-
er var málari og varði öllu sínu til
Pess að gera heimilið sem vistleg-
ast fyrir ii0nu sina tilvonandi, en
hún hjet Elisabet Derber. En eftir
nokkrar vikur komst Elísabet aum-
inginn að því, að Gustav Schlemm-
er var alls ekki karlmaður heldur
kvenmaður og hjet Ágústa. Hafði
hún gengið i karlmannsfötum sið-
ustu tiu árin.
Þegar Elisabet komst að þessu yf-
irgaf liún vitanlega „eiginmanninn“
tilvonandi og trúlofaðist brátt ó-
sviknum karlmanni. En Ágústa tók
þessu ekki þegjandi og eitt sinn rjeð-
ist hún á Belu litlu og mannsefnið
hennar. Ágústa hlýtur að vera vel
að manni þótt kvenmaður sje, þvi
að hún barði mannsefnið í rot og
hótaði að drepa Betu.
Lögreglan klófesti nú Ágústu og
hún meðgekk, að hún hefði fengið
óstjórnlega löngun til þess að ganga
í karlmannsfötum og látið undan
þeirri löngun fyrir tiu árum. Kvaðst
hún ekki geta lifað án Elisabetar og
ástæðan til áfloganna við þau hjóna-
leysin hafi verið afbrýðisemi og
ekkert annað. Bað hún lögregluna
um leyfi til þess að ganga í málara-
fötunum nokkrar vikur enn, svo að
hún gæti unnið af sjer skuldir sem
hún hafði komist í vegna Betu. Var
henni leyft að ganga i karlmanns-
fötum í mánuð enn, með þvi skil-
yrði að hún ljeti Betu óáreitta. Það
hefir hún gert, en spurningin er
hvort hún verður hæltulaus þó að
hún komist í pils aftur.
----Y----
í hreska þinghúsinu búa að stað-
aldri um 200 manns.
----x----
Lögreglan í Ungverjalandi hand-
samaði um daginn tvo náunga um
leið og þeir ætluðu inn i hraðlest-
ina til Ítalíu. í fylgd með þeim voru
tuttugu stúlkur á aldrinum 16—20
ára og það er talið alveg áreiðan-
legt að þeir hafi ætlað með þær til
Egyptalands og selja þær þar. Hvít
þrælasala er þó nokkuð algeng enn-
þá.
----x----
65 ára gamall maður í Ungverja-
landi eignaðist um daginn 25 barn-
ið með konu sinni.
Maður i Mexikó hefir verið stað-
inn að þvi að vera kvongaður fjór-
um konum í cinu. Þær bjuggu all-
ar í sömu borg, í fallegum íbúðum
— og hann skifti sjer milli þeirra
án þess að nokkur þeirra grunaði
eða vissi um hina.
----x----
Ríkasti einhleypur maður í heimi
er talinn vera John Brown í New
York. Hann hefir nýlega trúlofað sig
ungri, fátækri stúlku. Eigur hans
nema að minsta kosti 1200 miljón-
um króna.
----x----
ALÞJÓÐASKÁKÞINGIÐ l HAMBORG
Framhald af bls. 4.
ýmsa ágæta taflmenn. Þegar
þess er gætt, að íslensku tafl-
mennirnir verða allir að iðka
skáklistina í hjáverkum verður
ekki annað sagt en þeir hafi
gert góða frammistöðu á mót-
inu. Til samanburðar við vinn-
ingafjölda þeirra má benda á
vinninga ijmsra annara á skák-
þinginu, þeirra, er ekki eru at-
vinnumenn: Karl Benson frá
Svíþjóð, Norðurlandameistari,
sem hingað kom um árið vann
8 skákir af 16, Kalve-Jörgensen
frá Noregi 5 af 17, Desler frá
Danmörku vann 6 af 16, Halvor-
sen frá Noregi vann J af 1á o. s.
frv. Með tilliti til þessa hafa ís-
lendingarnir fgllilega staðist
samanburð við aðra þáttakend-
ur, sem iðka skákina í hjáverk-
um. Þess er og að gæta, að þarna
var við þaulvana og lærða tafl-
menn að eiga, en íslendingar
koma þarna fram í fgrsta sinni.
íslensku skákmennirnir fengu
3000 króna styrk frá þinginu til
fararinnar og 3 för til Hamborg-
ar ókeypis og beinan dválar-
kostnað fengu þeir greiddan.
Þrátt fyrir styrk þennan hafa
þeir fórnað sjálfir nokkuru fje
og miklum tíma til þess að geta
komið þarna fram fyrir Islands
hönd og aukið veg þess meðal
erlendra þjóða. Eiga þeir þakk-
ir skilið fyrir förina og drengi-
lega frammistöðu.
Skákmennirnir láta mjög vel
yfir viðtökum þeim, er þeir
fengu í Hamborg og kynning-
unni af keppinautum sínum
víðsvegar að.
Næsta Alþjóðaskákþing verð-
ur haldið í Prag næsta sumar.
Væri það mjög æskilegt, að Is-
lendingar gæti einnig tekið þátt
i því skákþingi og gert sóma ís-
lands enn meiri. Munu allir
óska, að svo verði, og þeir, sem
hlut eiga að máli, væntanlega
leggja fram það lið, sem þeim
er unt í því efni.
Áteiknaðar hannyrðir
fyrir hálfvirði.
Til þess að auglýsa verslun vora
og gera áteiknaðar vörur vorar
kunnar um alt ísland á sem skjót-
astan hátt bjóðum vjer öllu ís-
lensku kvenfólki eftirtaldar vörur
1 áteikn. kaffidúk .. 130xl30cm.
1 — ljósadúk .. 65 x 65 —
1 — „löber“ ... 35 x 100 —
1 — pyntehandkl. 65x100 —
1 — „toiletgarniture“ (5 stk.)
fyrir danskar kr. 6,85 auk burð-
argjalds.
Við ábyrgjumst að hannyrðirnar
sjeu úr 1. fl. ljerepti og með feg-
urstu nýtísku munstrum. Aðeins
vegna mikillar framleiðslu getum
við gert þetta tilboð, sem er hafið
yfir alla samkepni.
Sjerstök trygging vor: Ef þjer
eruð óánægð sendum við pen-
ingana til baka.
PöntunarseðillFálkinn 16. ágúst.
Nafn ..........................
Heimili........................
Póststöö ......................
Undirrituð pantar lijermeð
gegn eftirkröfu og burðargjaldi
........ sett hannyrðaefni á
danskar kr. 6,85 settið, 3 sett
send burðargjaldsfritt.
Skandinavisk Broderifabrik,
Herluf Trollesgade 6,
Köbenhavn Iv.