Fálkinn - 22.11.1930, Blaðsíða 4
4
F Á L K I N N
Flugskálinn nýji.
/ haust hefir flugf jelac/ið kom-
ið sjer upp skála og dráttar-
braut fyrir flugvjelar sinar, í
lítilli vík, inn undir Kleppi.
Skáti þessi er einkennilegur út-
lits, eins og sjá má á mynd-
inni, sem hjer fylgir, veggir eng-
ir, en bogmyndað bárujárnsþak
niður að jörð. Á þeim gaflinurn,
sem veit að sjónum (norðurgafl-
inum) eru gríðarstórar skot-
hurðir, sem opnaðar eru þegar
vjelarnar eru teknar út eða látn-
ar inn. En frá slcáladyrunum og
niður í fjöruna er bryggja úr
steinsteypu og eftir henni er
vjelunum ekið af sjónum og
inn í skálann. Rúmast þar þrjár
vjelar. Timbur er ekkert í skál-
anum en grindin öll úr steyptu ag náminu loknu og hefir verið
járni. — Hjer birtist jafnframt flugstjóri annarar flugvjelar-
mynd af fyrsta íslenska flug- innar, sem hjer hefir gengið í
manninum, sem starfað hefir sumar og getið sjer hinn besta
hjer á landi, Sigurði Jónssyni. orðstír fyrir dugnað sinn og
Er hann sonur Jóns heitins Sig- kunnáttu í starfinu. Vjelfræð-
urðssonar fangavarðar Jónsson- ingar þeir, sem nú starfa við
ar. Sigurður nam samgönguflug flugf jelagið eru ogalliríslenskir.
i Þýskalandi og tók ágætt próf
Hjer birtist mynd af einum af
lesendum Fálkans. Er það tví-
tugur maður og á heima í Vent-
spils í Lettlandi. Hann gerðist
kaupandi fyrir tveimur árum
og veitti blaðið honum athygli,
því að sjaldgæft er að blöð sjeu
seld hjeðan til Lettlands. Nýlega
fjekk blaðið nánari vitneskju af
þessum unga manni, fyrir milli-
göngu Gisla Sigurbjörnssonar
kaupmanns. Hafði maður þessi,
sem heitir W. F. Kirsteins, skrif-
að honum til Helsingfors og
mælt sjer mót við hann er hann
kæmi til Lettlands; kvaðst Kir-
steins ætla að láta hann þekkja
sig á því, að hann væri með
„Fálkann“ útbreiddan á stöð-
inni. Fór þetta sem ætlað var,
og er myndin lekin af þeim báð-
um, eftir að Fálkinn hefir sam-
einað þá. Kirsteins talar og les
íslensku prýðilega, en ekki varð
námið honum fyrirhafnarlaust,
þvi að hann varð að læra
frönsku til þess að geta lært ís-
lenskuna, því að vitanlega er
engin kenslubók i íslensku til á
lettnesku máli. Neðri myndin
sýnir kveðju Kirsteins til Islend-
inga í tilefni af Alþingishátíð-
inni. Má fullyrða, að Kirsteins
sje eini Lettlendingurinn, sem
skilur islensku.
AáÁ'd /zý&áytröM
Á sýningu þeirri,
sem Dansk Slue-
flidsfórening hjelt á
Charlottenborg í
Kaupmannahöfn, í
september í haust
var það íslenskt
listaverk, sem vakti
einna mesta athygli
af öllu því, sem þar
var til sýnis. Var það
útsaumaður dúkur
er frú Unnur Ólafs-
dóttir hefir gert og
sýndur er hjer á
myndinni. Er hann
k metrar á lengd en
2.10 á breidd. Teikn-
ingin á dúknum er
gerð af T ryggva
Magnússyni og hring-
fletirnir iveir að of-
anverðu eftirmynd
af útskurðinum á
Valþjófsstaðarhurð-
inni frægu. Utan um
þessar myndir eru
tveir hringir og í þá
skorin með höfða-
letri sagan, sem
myndin lýsir. Að
neðanverðu eru
drekamyndir. Utan
um allan dúkinn er
eikarumgerð, skorin
með höfðaletri. IJef-
ir frú Unnur ekki að-
eins saumað dúkinn allan held-
ur skorið trjeð líka. Er hjer um
frábært hagleiksverk að ræða,
íslenskum listiðnaði og höfund-
inum til hins mesta sóma. —
V æntanlega verður listaverk
þetta haft almenningi til sýnis
hjer í bænum á næstunni.
Geirlaug Jóhannsdóttir hús-
freyja frá Úlfljótsvatni, nú Þing-
holtsstræti 26 varð sextug 19.
þessa mánaðar.
Á sjúkrahúsi einu i Graz var fyrir
skömmu gerður holskurður, sem tal-
inn er með þvi vandasamasta, sem
gert hefir verið með læknishendi.
Ungur maður og lifsþreyttur liafði
skotið sig og hitt í hjartastað; sat
kúlan föst í hjartanu. Maðurinn var
fluttur á sjúkrahúsið og skorinn, —
þurfti að skera í sjálft hjartað til
þess að ná kúlunni. Síðan var alt
saumað saman eins og lög gera ráð
fyrir og þegar síðast frjettist var
maðurinn úr allri hættu.
Harakirí — kviðristan, sem Jnp-
anar hafa löngum notað til að taka
sig af lífi, er að hverfa úr tískunni.
Árið 1929 fyrirfóru 15000 manns sjer
Sigurþór Jónsson úrsmiður
verður kO ára á morgun.
í Japan, en af þessum fjölda voru
það aðeins 250, sem frömdu hara-
kirí. Hinsvegar fleygðu 1800 sjer fyr-
ir járnbrautir, 2400 tóku eitur en 700
hengdu sig.
-----x----
STANGARGLERAUGU
í fíölhrevttasta úrvnli. Kærkom-
in gjöf handa sjerhverri dömu.
MUNIÐ LAUGAVEG 2.