Fálkinn - 22.11.1930, Blaðsíða 8
8
F Á L K 1 N N
Pylsur eru þjóðrjettur Þjóðverja og öl þjóðdrykkur þeirra. Og Munchen er mesti ölbær ríkisins. 1 október halda ölstofurnar
ölgildi og sækja þangað menn úr nágrenninu og jafnvel útlendingar. Hjer sjest fólk á þesskonar bjórkveldi og þar er mikið
þambað.
St. Pálskirkjan í London er stærsta kirkja í löndum mótmæl-
enda. Hefir farið fram gagngerð viðgerð á kirkjunni nýverið,
því menn óttuðust að hún mundi hrynja. En nú er farið að
nota kirkjuna aftur. Þar var haldin minningarsamkoma um þá,
sem fórust á R 101, áður en þeir voru jarðsettir í Cardington.
Hjer sjest hluti af kirkjunni með háaltarinu.
Myndin lijer að ofan er af
„sólúrV', sem bygt hefir verið í
baðstaðnum Aix le Bains. Væng-
irnir hreifast með sólinni og á
þeim liggja sjúklingarnir í sól-
baðinu og þurfa ekki að flytja
sig eftir sólinni.
Ilinn 4. okt. voru 100 ár liðin
síðan Belgía varð sjálfstætt ríki.
Gerðist það með skjótum hætti
þvi uppreisnin hóifst 19. sept.
1830 en 4. okt. var týsl yfir sjálf-
stæði ríkisins og skömmu síðar
var Leopold prins konungur
tandsins. Iljer er mynd af Al-
bert Belgakonungi, sem þjóðin
elskar fyrir dugnað hans og
hreysti í ófriðnum mikla.