Fálkinn - 22.11.1930, Blaðsíða 16
16
P k L K I N N
Þá fyrst njótið þjer lífsins
í ríkum mæli, ef þjer drekkið eingöngu
heilnæma drykki.
Heilnæmasti og bragðbesti drykkurinn sem þjer getið fengið er súkkulaði úr
Van Houtens
(frb. fan hátens).
heimsfræga suðusúkkulaði
Það er engin tilviljun að súkkulaði og kakaóverksmiðjan
C. J. van Houten & Zoon í Hollandi
er á undan öllum öðrum í framleiðsluaðferðum og þar
af leiðandi gæðum vörunnar. Það var stofnandi þessarar verksmiðju hollenski vísindamaðurinn Conraad Johann-
es van Houten, sem tókst fyrstum manna árið 1828 að framleiða kakaó án of mikils fitu-innihalds og lagði hann
þar með grundvöllinn undir súkkulaði- og kakaóframleiðsluhætti nútímans. Astekarnir í Mexíkó höfðu raunar
lengi áður en Leifur hepni og síðar Columbus fundu Ameríku, kunnað að gera drykk af kakaóbaunum. Nefndu
þeir drykk þánn „Choco!atl“ (sem orðið „súkkulaði“ er síðar dregið af) og var þetta „súkkulaði“ í miklu uppá-
haldi hjá þeim. Síðan lærðu Spánverjar af Astekunum list þessa fyrir 400 árum en verulega gott súkkulaði varð
ekki búið til fyr en C. J. Houten hafði gert sína frægu uppgötvun. Öllum þeim, sem hafa raynt þetta súkkulaði
er líka ljóst að hjer er um það allra besta suðusúkkulaði að ræða, sem hægt er að fá.
Dýrari tegundin (Fine) kostar kr. 2.50 pundið
Ódýrari tegundin (Husholdnings) kostar kr. 2.00 pundið
Notið einungis bestu tegundina af suðusúkkulaði.
I heildsölu hjá
Tóbaksverslun íslands h.f.
Reykjavík.
I