Fálkinn - 07.03.1931, Blaðsíða 3
F A L K I N N
3
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
Ritstjórar:
Vilh. Finsen og Skúli Skúlason.
Framkvæmdastj.: Svavar Hjaltested.
Aðalskrifstofa:
Bankastræti 3, Reykjavík. Sími 2210.
Opin virka daga kl. 10—12 og 1—7.
Skrifstofa í Oslo:
Anton Schjöthsgade 14.
Blaði'ð kemur út hvern laugardag.
Áskriftarverð er kr. 1.70 á mánuði;
kr. 5.00 á ársfjórðungi og 20 kr. árg.
Erlendis 24 kr.
Allar áskriftir greiðist fyrirfram.
Auglýsingaverð: 20 aura millimeter
Herbertsprent, Bankastræti 3.
Skraddaraþankar.
„Segðu mjer hverja þú umgengst,
þá skal jeg segja þjer hver þú ert“,
segir máltækið. Hvað elskar sjer líkt
og sjerhver dregur dám að sínum
sessunautt, segja máltækin líka. Ekk-
ert er eðlilegra en að þekkja megi
að meira eða minna Ieyti, manninn
af þeim fjelagsskap sem hann lifir í.
En enginn má þó halda, að reglan
sje óbrigðul.
Sumir eru t. d. svo gerðir, að þeir
sækjast heinlínis eft.ir fjelagsskap,
sem er gjörólíkur venjulegu um-
hverfi þeirra. Þeim þykir unun að
tala við menn, sem eru ólíkir þeim
á alla lund. Þeir eru hispurslausir
og fara ekki i manngreinarálit og
lála sig engu skifta, |)ó einhver
dæmi þá ef til vill lakari menn fyrir.
— En svo kemur hin hliðin: fólk-
ið, sem leitar fjelagsskapar við aðra,
sem það álítur sjer ineiri, til þess að
hækka í mannfjelagsstiganum að al-
menningáliti. Fólkið sem með þessu
móti reynir að sýnast meira en það
er. Þetta fólk kalla útlendingar
„snobs“ en íslenskt heiti á „snobb-
unum“ er því miður ekki til, þó und-
arlegt megi virðast, þvl að fyrir-
brigðið er afar algengt hjer á
landi. Venjulega eru „snobbarnir“
andleg lítilmenni, sem sækjast eftir
umgegni við svo kallað „fina fólkið“
til þess eins að fá á sig stimpil, sam-
kvæmt kenningunni: „segðu mjer
hverja þú umgengst“, o. s. frv.
Máltækið er þannig notað til blekk-
inga og til þess að villa á sjer heim-
ildir. En „snobbunum“ farnast ofl-
ast nær eins og asnanum með ljóns-
húðina. Hversu vel sem uppskafn-
ingurinn reynir að dylja sinn rjetta
mann og hversu miklu sem hann eys
út af peningum til þess að gera sig
markaðsgengan í stórmennahópnum,
þá grisjar þó altaf i innra manninn
gegnuin skurnið, og ekki þarf nema
lítilræði til, að gyllingin fari af hon-
um á einhverjum blettinum, svo að
það sjái á þann ódýra málm, sem
inni fyrir er.--
En þrátt fyrir þetta hefir reglan:
„Segðu mjer hvern þú umgengst“
inargt til síns ágætis, og mikinn
sannleik að geyma. Því ekkert er
eðlilegra en að menn sníðist, vitandi
eða óafvitandi, eftir þeim mönnum,
sem maður hefir mest saman við að
sælda, læri af þeim bæði gott og ilt
og að þeir á sama hátt verði fyrir
áhrifum þess, sem þeir höfðu áhrif á.
Tillíl iingin verður gagnkvæm.
Um víða veröld.
-X-
GRÖF MOIÍMÓNANS MIKLA
FUNDIN
í kjallara í gömlu húsi í Nauvoo,
Illinois hefir fundist gröf stofnanda
Mormónahreyfingarinnar, Jósefs
Smith og Hyrums bróður hans.
Það var um það leyti, sem verið
var að byrja á byggingu mormóna-
musterisins í Nauvoo, árið 1843, að
Jósef Smith þóttist fá vitrunina um
að fjölkvæni, sem stranglega hafði
verið bannað í Mormónsbók, hefði
nú verið leyft, enda þótt ekki mætti
segja frá þessu fyrst í stað. En blað
eitt þarna í nágrenninu sagði undir
eins frá þessum tíðindum og drap
jafnframt á ýmsa einkennilega háttu,
sem þetta trúarbragðafjelag hefði.
Smith hefndi sín á blaðinu með því
að láta fylgismenn sína rífa prent-
smiðju þess íil grunna, en þetla varð
til þess að ofsókn var liafin gegn
lionum og Hyrum bróður hans og
þeir settir í fangelsi í bænum Cartago
í Illinois. En þar voru þeir drepnir
af æstum múg, 27. júní 1844.
Hefir menn deilt á um, livar þeir
bræður hafi verið grafnir. En nú
er Ioks skorið úr þeirri deilu.
----0—0----
NASHYRNINGASTEIK.
Hinn alþekti Ameríkani Dr. Cook,
sem á sínum tíma „uppgötvaði“
Norðurpólinn — að minsta kosti eftir
þvi sem hann sjálfur sagði — en var
seinna dæmdur í margra ára fang-
elsisvist vegna ýmiskonar fjársvika,
liefir nú vakið eftirtekt á sjer nýlega.
— í þetta sinn er það sem fæðuefna-
fræðingur að liann lætur til sín taka.
Hann heldur því fram að nashyrn-
ingakjöt beri að nota meira en gjört
er. Fólk verði að geta fengið ódýr-
ari kjötmat en um sje að ræða, og
ekkert kjöt verði eins ódýrt og heppi-
legt eins og af nashyrningum. Skepn-
ur þessar eru eins og kunnugt er á-
kaflega stórar. Ungur nashyrningur,
svo sem sex vetra gamall, vegur að
ineðaltali 4.000 ensk pund. Geta þvi
tíu fjölskyldur lifað i vellystingum
praktuglega af kjöti hans í heilt ár.
En eins og margt annað fagurt og
eftirtektarvert eru þó dálitil vand-
kvæði á framkvæmduin málsins. Hvar
verður t. d. hægt að ná í þessa ó-
dýru nashyrninga? Það myndi sem
sje verða nokkuð dýrt að fara að
koma upp nashyrningarækt i heima-
landi þeirra Afríku og flytja siðan
kjötið þaðan út um allan lieim. Cook
siingur þessvegna upp ó að komið
sje upp nashyrningarækl i Ameríku.
Hann liefir einkum hugsað sjer að
mýrarnar kringum Amazonfljótið í
Brasilíu væru best fallnar til þessa.
----0—0----
SKEMTILEG JARÐARFÖR.
í Newberry Michigan var ekki alls
fyrir löngu jarðaður maður nokkur,
John M. Young að nafni. í erfða-
skrá hans var tekin fram, að hann
vildi að fólk það, sem kæmi í jarð-
arförina gerði sjer glaðan dag. Þar
stóð meðal annars: „Jeg vil láta setja
stein á gröf mína, en liann má ekki
kosta nema 20 dollara. Jeg vil láta
spila meðan á greftruninni stendur,
en það verða alt að vera skemtileg
og fjörug lög. Það á að kaupa 100
vindla, svo að likmennirnir hafi eitt-
hvað að reykja meðan á athöfninni
slendur. Handa konum og börnum
skal kaupa súkkulaði og tyggigúmmi.
Jeg vil nefnilega að fólk, sem kemur
til að fylgja mjer geti sagt að það
hafi skemt sjer vel“.
SÁL GLÆPAMANNSINS.
í lækn'ayísindunum hafa komið
fram margar skýringar á sálarástandi
hinna svokölluðu „manndýra".
Eins og kunnugt er berst hinn
frægi Lombroso með allri snilli sinni
á móti þeirri skoðun að glæpamenn
sjeu jafnaðarlegast frá fæðingu
dæmdir til að vera afbrotamenn, og
sje því órjettlátt að Ioka glæpamenn
inni í fangelsi, eða jafnvel að taka
þá af lífi, þar sem þeir þegar alt
komi lil alls sjeu í rauninni saklaus-
ir . að gerðum sinum. Ættu þeir
lieima á geðveikisspitulum, því
glæpatilhneiging þeirra sje aðeins
ein tégund geðveiki. Sje þessi skoð-
un rjett kemur ósjálfrátt fram sú
sú spurning hvar leita eigi að or-
sök glæpseminnar, og þá einkum
hvort hið glæpsamjega hugarfar
standi í sambandi við einhverja lik-
amlega úrkynjun. Um þetta hefir
verið mikið rætt. Nökkrir hafa hald-
ið þvi fram að skapgerð afbrota-
mannsins kæmi í ljós í byggingu
ennisins, einkum hinu lága aftur-
sneidda enni. Sá sem komið hefir
fram með tilgátu jiessa, er hinn frægi
Vínarlæknir, Josef Gali. Hann hefir
jafnvel reynt að sanna gildi hennar
með rannsóknum á heilabyggingu
ýmissa stórglæpamanna. Samkvæmt
nýrri tilgátum er það viss kirtill,
„glandula thyroidea“, sem á sök á
glæpunum. Eftir rannsóknum
franskra og amerískra sjerfræðinga
á glæpamönnum hefir komið i ljós
að kirtill þessi liefir sýnt ýms sjúk-
dómseinkenni á þeim glæpamönn,
um, sem raniisakaðir hafa verið.
Sagt er að í 80 tilfellum liafi til-
gáta þessi reynst rjett, um menn, sem
teknir hafa verið af lífi, og þó er
hún alls ekki viðurkend. Nokkrir
visindamenn álita að hið glæpsam-
lcga hugarfar eigi rót sína að rekja
til annars kirtils, koriglekirtilsins
eða glandula pilais, sem nú er eitt
þeirra liffæra, sem líkaminn er hætt-
ur að nota. Margir vísindamenn
leggja einkum fyrir sig að rannsaka
hina andlegu eiginleika glæpamann-
anna. Margir morðingjar sýna full-
komið tilfinningaleysi gagnvart öllu
mannlegu og þó er einhver við-
kvæmur punktur, ef svo má segja, i
sál jjeirra. Sem dæmi má nefna konu-
morðingjann Dean, sem á hinn
grimmilegasta liátt myrti limm ung-
ar stúlkur og tvisvar meira að segja
brendi hús þessara fórnardýra sinna.
En áður haf'ði hann sjeð fyrir þvi
að hvorki hundar, kettir eða fuglar
brynnu inni. Einu sinni braust hann
meira að segja inn í alelda liús til
að l'orða kanarífugli, sem liann hafði
gleymt þar inni. Slíkt hugarfar er
okkur óskiljanlegt. Hliðstætt dæmi
þessu er franskur l'jölleikahúsleikari,
22 ára gamall, sem tekinn var af lífi
nýlega fyrir glæpi sína. Hafði hann
ráðið móður sinni og annari gam-
alli konu bana. Sama daginn og hann
framdi seinna morðið fórnaði hann
heilum líter af blóði sínu til þess
að bjarga apa aumingja við fjölleika-
lnisið.
----x-----
Lögreglan i Antwerpen hefir ný-
lega náð í stóran flokk barna, sem
hafði mýndað fjeldgsskap um að
ræna og stela úr verslunum og
heimahúsum fólks í fátækrahverfum
borgarinnar. Voru börnin flest um
tiu ára að aldri og höfðu lög um
fjelagsskap sinn, Kusu sjer fram-
kvæiridastjórn og böfðu samþyktir
um líkamlegar refsingar gegn þeim
sem seg'ðu frá. í vösum foringjans
fundust prentaðar leiðbeiningar
handa börnunum, uin það hvernig
þau ættu að haga sjer í starfinu.
■
[ Afköst yðar geta aukist
um 33 %
Enskir læknar
■ sem hafa rannsakað þreytuna,
! staðhæfa að orkuinagn mannsins
! aukist um 23% við notkun
! Sariatogens.
Danskir læknar.
! hafa staðfest með sjerstökum um-
! mælum. að likami og sál styrkist
við notkun Sanatogens.
Læknar um allan heim
: liafa með yfir 24.000 meðmælum
: kveðið upp lofsamlegan dóm yfir
: Þjer ættuð sjálfur að nota yðu
: þessa staðreynd og endurnýja
: hina eyddu orku og taugakraf
: með Sanatogen! Þjer afkastið
; meiru og gefið sályðarnýjanmát
Fæst I öllum lyfjabúðum.
* Oskist frekari upplýsingar þá fyll
■ ið út miðann og sendið til Á/i
■ Sanatogen Co., Sct. Jörgensalle 7
Köbenhavn V.
! Sendið mjer ókeypis og burðar
gjaldsfrítt:
« Sanatogen sýnishorn og bækling
■ Nafn .........................
! Staða.........................
! Heimili.......................
■
■