Fálkinn


Fálkinn - 07.03.1931, Blaðsíða 6

Fálkinn - 07.03.1931, Blaðsíða 6
c FÁLKINN þurfti anuað en Guðmundur góði vígði brunn, til þess að vatn- ið í honuni hefði undursamleg áhrif á heilsu volaðra manna. Sama sagan hefir gerst erlend- is og gerist enn í dag, einkum í kaþólskum löndum. Þar er f jöldi staða, sem sjúkt fólk leitar til enn í dag og fær hót meina sinna, órkumlamenn verða skyndilega heilhrigðir og kasta frá sjer hækjunum, blindir verða sjáandi og því um líkt. Einna frægast þessara staða er lindin lielga í Lourdes í Frakklandi, sem sjúkir iiafa sótt til síðan snemma á mið- öldum og gera enn. Sömu áhrif hafa jarðneskar leifar dýrlinga víða um lönd; þarf jafnvel ekki nema flís úr kistlumi þeirra til þess að veita sjúkuní lækningu. Sumstaðar liafa Maríumyndir úr trje og aðr- ar dýrlingamyndir samskonar mátt og fjölmenna trúaðir sjúk- lingar til þessara staða og hljóta undursamlega bót meina sinna. 1 Bayern, 85 kilómetrum fyrir norðaustan Munchen, er smábær sem heitir Altöttingen. Þar lifa 5000 0000 manns og lifa á málmiðnaði. 'J'il þessa hæjar hafa sjúkir farið öldum saman til þess að fá hót meina sinna. Bærinn kemur mik- io við sögu Bayerns. Á 8. öld var hygt þarna í hænum hænahús eitt, sem kallað er kapellan helga og eru geymd þar, í silfurhylkj- um hjörtu nítján fursta, sem ráð- ið hafa ríkjum i Bayern. En auk þess er þarna Maríulíkneski úr trje, og trúa kaþólskir menn, að því fylgi lækningamáttur. Átta kirkjur og bænahús önnur eru þarna í hænum og er hinn mikli herskörungur Tilly grafinn i eínni kirkjunni. En ekki gerast nein undur í þessum kirkjum. Hinsvegar hafa menn sótt hæna- húsið með Maríumyndinni gömlu síðan árið 1490 og gera enn. Ekki aðeins Þjóðverjar heldur fólk víðsvegar frá Evrópu. Heilaga kapellan stendur á iniðju torginu í Altöttingen. Stendur Maríumyndin þar i inn- skoti í einum veggnum, með Jesúharnið á handleggnum. Við- urinn í myndinni hefir ekki ver- ió sjerlega haldgóður og er lik- neskið nú orðið svart af fúa, og þessvegna hafa menn kallað myndina svörtu Maríumyndiria í Altöttingen. Myndin er gerð ár- ið 1300 og .er aðeins 05 senti- metrar á hæð. A sumum þessum stöðum, sem pílagrímar lieimsækja er aðgang- ur dag og nótt en kapellan í ÁI- töltingen er aðeins opin á daginn. Mciriiilílaieskid' sjálft gert itm árlð 1300. Stundum hiða hópar sjúklinga á torginu alla nóttina, eftir því að kapellan sje opnuð að morgni. ()g þegar inn er komið varpa þeir sjer flötum á gólfið fyrir framan Maríumyndina — og standa upp heilbrigðir. Þessari athöfn fylgja ýmsir siðir, sem hafa varðveist óbreyttir öld eftir öld. Þegar sjúklingurinn kemur inn úr dyr- unum tekur hann trjekross á lierðar sjer og skríður á hnján- um fram að líkneskinu og varpar MAÐUKINN MEÐ HOKNIÐ. 75 ára gamall Kínverji frá Mand- schuríu var nýlega fluttur á sjúkra- tiús í Tokio. Hann ætlaði að láta skera af sjer hornið, sem hann hafði í hnakkanum, en það var, svo sem sjeð verður á myndinni, svo stórt sjer þar niður. og meðan hann er á leiðinni inn að líkneskinu er heðið í sífellu: „Heilög (luðs móðir, hjálpa þú mjer vesælum syndara, sem nú kemur til þin“. Þetla er aðeins einn staðurinn af mörgum slíkum. En meðal kaþólskra manna er trúin á kraftaverkin svo rík ennþá, að tclja má að tugir þúsunda á ári leiti enn í dag til kraftaverkastað- anna til þess að fá hót meina smna. Fáist hún ekki í það sinn,- er það af því, að sjúklingurinn á. enn að gera yfirbót og iðrasl. Þannig koma sumir sjúklingar ár eftir ár. ítalska skáldið Gabriele d’Annun- zio sem rjettu nafni heitir Gaetano Rapagnetto er nú að búa sig undir dauða sinn. Segist hann muni deyja undir eins og grafhöll sú, sem ver- ið er að byggja handa honum verði fullsmíðuð. Ekki á j>ó að jarða hann J>ar í heilu líki og eigi heldur brenna hann og geyma ösku lians. D’Annun- zio hefir mælt svo fyrir, að skjóta skuli líki sinu úr fallbyssu, munu J>að þá breytast í ösku og dreifast fyrir vindinum — að undanteknu hægra eyranu. „Það munuð þjer finna aftur óskaddað, því að það er futlkomnasta Jíffæri á jörðunni“, segir hann. Og svo á að geyma eyrað J>arna i grafhöllinni! Miklir menn geta lcyft sjer margt! ----x----- Hinn kunni sænski fluginaður E. P. A. M. Lundborg, sem frægur varð um allan heim fyrir nær Iveimur ár- að slikt hafði aldrei áður sjest. Pró- fessorinn kallaði á alla stúdentana til að sýna þeim þessi undur og það liðu margir dagar svo, að yfirlækn irinn timdi ekki að skera af honum hornið. Svo gaman hafði hann af að alhuga það og sýna öðrum. uin fyrir að bjarga Nobile, hrapaði í reynsluflugi við Malmslatt í Sví- þjóð 26. janúar, úr aðeins 45 metra hæð og dó skömmu síðar. ----x----- f nýja ráðuneytinu franska situr svertingi einn og er þetta í fyrsta sínni, sem blökkumenn hafa komist í stjórn Frakka. Hann heitir Diagne og er fæddur í Senegal og situr á þingi fyrir fæðingarland sitt. Er hann talinn mikill gáfu- og atorku- maður. Hann er undirráðherra i ný- lendumálaráðuneytinu. Arabiski furstinn Abdul Azis Ibn Saud er að láta byggja 15 lofskeyta- og útvarpsstöðvar viðsvegar í riki sínu. Eiga þessar stöðvar allar a'i verða fuLlgerðar innan 18 inánaða. Ennfremur hefir furstinn látið koma upp fjórum flytjanlegum sendurum á þeim stöðvum, sem hann hefst einkum við á. Loftsambandið er hið eina sem hægt er að halda nokkurn- vegin öruggu í öræfiun Arabiu. ----x----- Að þvi er segir í frjett frá Berlin hafa þúsundir rússneskra kvenna sólt um leyfi til þess að ganga í her Rússa, einkum sjóherinn. Nú hafa að því er fregnin segir, þrjú þúsund verkakonur í Leningrad verið tekn- ar í sjóherinn, og voru þær fyrstu konurnar, sem nokkurntíma hafa verið ráðnar á herskip nokkurrar þjóðar. Og af þeirri stuttu reynslu sem fengin er, þykir líklegt, að aðrar hernaðarþjóðir geri þetta sama. Því að eins og flestir vita, lifa flest her- skip æfi sína svo, að þau lenda al- drei í orustu, en hinsvegar er jafnan hafður á þeim mikill liðsafli. Reynsl- an af rússnesku sjóhetjunum úr þeim kvennaflokki, sem Rússar rjeðu á herskipin, hefir verið sú, að aldrei hefir verið eins þrifalegt um borð i skipunum éins og síðan, og að fram- iög til vis’táfanga hafi orðið alt að þriðjungi minni en áður, vegna þess hve kvenfólkið kunni betur að fara með mat en karlmenn. Því að vilan- lcga eru „stríðskonurnar" látnar gegna þeim störfum á skipunum fyrst og fremst, sem þær kunna besl til og talin eru best við kvenna hæfi. En þráttt fyrir það eru þær látnar læra vopnaburð, ef ske kynni, að not kæmi af því, að þær kynnu að halda á byssu, eða snúa sjer við í hernaði.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.