Fálkinn - 07.03.1931, Blaðsíða 9
F Á L K I N N
9
Myndin hjer að ofan er af liinni marg umtöluðu ensku flugmær
Amy Joknson, sem flaug til Ástralíu í fyrra. 1 vetur reyndi hún
að fljúga til Japan, en komst ekki lengra en til Póllands og varð
að snúa þar aftur; hafði vjel hennar eyðilagst.
Þýskt forngripasafn hefir nýlega gert tilraun með, að nota
grammófóna í stað leiðsögumanna um safnið. Gefur grammó-
fónninn upplýsingar um alla helstu muni á safninu.
Ilin alræmda Lundúnaþoka var verri í vetur en hún liefir verið
um langt skeið. 1 London gera rnenn man á tvennskonar þoku,
svörtu þokunni og gulu þokunni. Svarta þokan orsakast mest-
megnis af þvi, að kolareykur og dust frá götunni letidir í lág-
um skýjum og er varnað uppgöngu; legst það þá niður á stræt-
in og gerir niðdimt, svo að ókunnugum þykir erfitt að komast
áfram. En gula þokan er enn verri. Hún virðist ekki eins dimm
og hin, en er þó miklu skæðari þegar á reynir. Menn blindast
svo gjörsamlega, að þeir ganga beint hver á annan, og það er
munnmæli í London, að í gulu þokunni sje engum fært að rata
nema b l i ndu m m ö n num Borgarstjórnin lætur setja bráða-
birgðaljósker á göturnar og auka lögregtutiðið, en ekkert stoð-
ar. Einu staðirnir, sem geta hrist þokuna nokkurn veginn af sjer
eru neðanjarðarjárnbrautirnar, og til þeirra leitar fólkið, en
sporvagnarnir aka heim á sinn bás og hætta ferðum. Myndin
hjer að ofan, er tekin á þokudegi á Ludgate Circus, einum fjöl-
farnasta stað í City, á svona þokudegi.
ítalinn Carnera hefir á ótrúlega stuttum tíma orðið sá hnefa-
teikari heimsins, sem mest er talað um, ekki aðeins fyrir trölla-
skrokkinn, sem hann getur hrósað sjer af, heldur og fyrir fimi
°9 flýti i hnefaleik. Nýlega hjelt hann sýningar á Norðurlönd-
um. Myndin sýnir Carnera þegar hann er að æfa sig.
Óeirðir hafa nýlega orðið i Monaco. Myndin er af herliði, sem
gengur skrúðgöngu fram hjá furstahöttinni, síðastliðinn þjóð-
minningardag furstadæmisins.