Fálkinn


Fálkinn - 25.06.1932, Side 3

Fálkinn - 25.06.1932, Side 3
FÁLKINN 3 VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. fíitstjórar: Vilh. Finsen og Skúli Skúlason. ■ Frauikvirmdastj.: Svavar Hjaltested. Aöalskrifstofa: Bankastræti 3, Reykjavík. Sími 2210. Opin virka daga kl. 10—12 og 1—7. Skrifstofa i Oslo: Anton Schjöthsgade 14. Blaðið kemur úl hvern laugardag. Áskriftarverð er kr. 1.70 á mánuði; kr. 5.00 á ársfjórðungi og 20 kr. árg. Erlendis 24 kr. Allar áskriftir greiðist fyrirfram. Anglýsinyaverö: 20 aura millimeter Herbertsprent, Bankastræti 3. Skraddaraþankar. Iðnsýningin var opnuð áhorfend- um á afmælisdegi Jóns Sigurðssonar í síðustu viku. Og þrált fyrir alla kreppu, barlóm og vonleysi varð þátttakan mikil og góð. Svo mikil og svo góð. að svartsýnir menn hafa beinlínis gott af því. Þegar þeir skoða sýningu þessa vel, getur ekki hjá því farið að þeim finnist rofa lií í sortanum. Ekki síst ef þeir bera sýningu þessa saman við fyrstu sýninguna, fyrir 21 ári — og þess þurfa þeir við, til þess að hafa samanburð. Þvi að. framfarirnar eru svo miklar og marg- víslegar, að þær koma manni á ó- vart. Flestum finst alt standa í sömu sporunum, að því er iðnað snertir, en sýningin sannar, að' við höfum ekki staðið í stað, heldur þokast vel áfram á þessum tveimur ára- tugum. Ýmskonar iðjufyrirtæki hafa risið upp siðan og náð vinsældum og orðið lífvænleg eigendunum. Það er á þessu sviði, sem framfarirnar hafa mestar orðið og það er einkum hjer, sem framfarirnar eru mikils- virði, því að af þeim leiðir fjár- hagsleg framför hjá þjóðinni. Hand- iðnaðurinu er ekki eins þýðingar- mikill fjárhagslega, því að hann dregur ekki nema lítið úr innflutn- ingi, einkum listiðnaðurinn. En menningarlega þýðingu hefir hann svo mikla, að tilverurjettur hans er augljós og sjálfsagður. Barnaskólinn gamli er stórhýsi, en þó gerir ekki betur en sýningin rúmist þar. Um suma sýningarsal- ina er það að segja, að þar er full- miklu raðað niður. Og þó saknar maður þarna ýmsra góðra iðnfyrir- lækja, sem án efa hefðu getað lagl sýningunni rnargt gott til. Niðurröð- un sýningarinnar er svo góð, sem hægt er að búast við í ekki belra húsnæði. Ef stór salur hefði verið til umráða, hefði tvimælalaust ver- ið hægt að gera sýninguna miklu áhrifameiri en hægt er í skólaslof- unum. Má sjá þetta m. a. á því, hve sýningarnar í leikfimishúsi barna- skólans eru miklu áhrifameiri en flestar skólastofusýningarnar. Einu er rjett að bæta við: Sýn- ingar ýmsra þátttakenda báru skýr- an vott um kunnáttu manna i því, að koma vörum vel og smekklega fyrir. Hjer skulu ekki nein nöfn nefnd, en hver sem jsessar sýningar skoðar, gengur þess ekki dulinn, að mismunandi smekkvísir menn hafa jmr um fjallað. Iðnsýningin er gleðilegur vottur vaxandi sjálfbjargarviðleitni í iðn- aði og iðju og mun flesta furða á, hve margvislegt það er, sem farið er að vinna hjer á landi. Það er góð hughreySfing að skoða hana. ítölsk flugheimsókn. Á fimtudaginn annan en var kom til Reykjavíkur ítölsk fliig- vjel, I-SLAN. Hafði hún lagt upp frá Rómaborg á þriðjudags- morgun og flogið til Amster- dam þann dag, en daginn eftir lil Londoftderry í Norður-ír- landi og á þriðja degi hingað. Tók ferðin hingað frá London- derry aðeins T^/o tíma og er það hraðasta flug, sem farið hefir verið milli íslands og annara landa. Vjelin er afarstór, sömu tegundar og ítalir notuðu í hið frækilega flug sitt til Suður- Ameríku í fvrra. Er hún með fimm manna áhöfn og getur flult nteð sjer bensín til rúm- lega 20 klukkustunda, þegar eigi er innanhorðs nema áhöfn- in, en stuttar vegalengdir getur hún flogið með 16 farþega. Hreyflarnir í vjelinni framleiða 1500 hestöfl og meðalhraði vjel- arinnar er 200 km. á klukku- stund. ítölsku flugmennirnir ætla ekki lengra en hingað og er til- gangurinn með fluginu sá, að kynnast lijer veðráttufari og staðháttum af eigin reynd, með lilliti til væntanlegra flugferða milli Evrópu og Ameríku yfir ísland. Er sagt, að ítaiir hafi í hyggju að senda 24 flugvjelar þessa leið næsla vor, á sýning- una i Chicago. Foringi þeirrar farar verður ítalski flugmála- ráðherrann sjálfur, en hann stýrði förinni til Snður-Aníer- íku. Formaðurinn sem er á vjel- inni, er hingað kom var og í þeirri ferð og sömuleiðis sá, sem næstur honum gengur að völd- um. Heita þeir Cagna og Luigi Huesta og sýnir önnur myndin þá, er þeir stíga á land i Reykja- vík. Hin myndin er tekin á stei'n bryggjunni og sjást þar (frá v.) K. Zimsen borgarstjóri, Cagna, Huesta og Jes Zimsen konsúll. ALBERT THOMAS. í maímánnði andaðist franski stjórnmálamaðurinn Albert Thomas, einn af víðkunnustii mönnum jafn- aðarmannaflokksins, fæddur 1878. Ilann var kosinn ú þing í Frakk- landi 1010 og eftir að Jean Jaures, hinn mikli foringi franskra jafnað- armanna, hafði verið skoiinn til bana í byrjun ófriðarins lOl'i varð Thomas mesti áhrifamaður flokksins og sat m. a. í samsteypustjórnunum 1915—‘17, og átti sæti i liermála- ráðinu franska, því að hann var einn þeirra jafnaðarmanna, sem vildu halda ófriðnum áfram þang- að til yfir lyki. Árið 1917 var hann sendur iit Rússldnds til saxnninga við Kerenskistjórnina. En síðustii tíu árin var hann forstöðumaður at- þjóða verkamálaskrifstofunnar í Genf og hlaut atmennar vinsældir af þvi starfi sínu. Kenslukonan: Ef ]jú kemur me'ð fjólur handa mjer á morgun, Pjetur litli, þá skal jeg kyssa þig. Daginn eftir kemur Pjetur: Hjerna eru fjólurnar, urigfrú, en jeg seldi honum eldri bróður mínum .kþssinn fyrir 50 aura. Það versta við að vera pipar- svcinn er það, að nafnið deyr út með manni. Jú, það or rjetl. llvað heitið þjer? Pclersen. Tilkynning: Er lindarpenni yöar bilaður eða í ólagi? Jeg tek aö mjer alskonar við- gerðir á öllum tegundum. Sel einnig nýja ásamt lindarpennableki. Bruun -- Laugaveg 2 Stgurjón Jónsson framkvæmda- Matthías Ólafsson fyrv. alþing- Einar Helgason garðyrkjustjóri stjóri, Rvík, verður fimtugur ismaður verður 75 ára í dag. vrrður 65 ára í dag. 27. þ. m.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.