Fálkinn - 07.10.1933, Blaðsíða 1
KVÖLD í DAVOS
Þessi gullfallega mynd er sunnan úr Suiss og tekin eftir sólsetur skamt frá hinum fræga vetraríþróttabæ Davos i Grau-
biinden. Liggur bærinn álíka hátt yfir sjávarmál og Heklutindur. Meðalhiti ársins er 2.6 stig, en vetrarins -f- 6.1 stig.
En þar er mikið um hina heilnæmu háfjallasól, enda leitar brjóstveikt fólk þangað svo þúsundum skiftir sjer til heilsu-
bótar á hverjum vetri og fær flest bót meina sinna, að minsta kosti um stundar sakir. Auk þess flykkist fólk þangað til
þess að iðka íþróttir og skemta sjer. — Byggingalagið á kofunum, sem sjást á myndinni er mjög svipað og á samskonar
húsum í Noregi, bjálkaveggir og torfþak.