Fálkinn - 07.10.1933, Blaðsíða 8
8
F Á L K I N N
I m s i
Áhuginn fyrir tennis er afar mikill í Ehglandi Myndin sýnir
fólk, sem hefir raðað sjer fyrir utan aðgöngumiðasöluna i Wim-
bledon í London snemma morguns, til þess að tryggja sjer miða.
Bdndarilcjaforsetafrúin kann best við að annast matreiðsluna
sjálf líka þegar hún er í sumarfríinu. Hjerna á myndinni
sjest hún vera að steikja pylsur á teini.
Það er ekki eins erfitt og margur hyggur að verða fallegur í
vexti. Kvikmyndadísirnar Maureen Sullivan og Benita Hume
hafa uppgötvað, að það er áigætl að hafa bók á höfðinu meðan
fimleikaæfingarnar eru gerðar á morgnana. Til margs eru bælc-
urnar nytsamlegar.
Friðardúfu Þjóðabandalagsins má kalla flugvjelina, sem gerð
var úl af því, með nefnd lit að miðla málum milli Columbia
og Peru. Á myndinni sjásl þátttakendurnir áður en þeir lögðu
af slað.
Þetta stórhyrnda naut frá Texax er orðið svo æft í fimleikum,
að það leikur sjer að því að hlaupa yfir bifreið.
Það er orðið algengt í seinni tið að kvikmyndaleikkonur gift-
ast frægum hnefleikameisturum. Eitt síðasta dæmið er það,
að Anny Ondra giftist nýlega fyrv. heimsmeistara Max Schmeel-
ing. Myndin sýnir þau í brúðkaupsferðinni.
1
i
4