Fálkinn


Fálkinn - 07.10.1933, Qupperneq 9

Fálkinn - 07.10.1933, Qupperneq 9
F Á L K I N N 9 / riddarasöguimm gömlu var oft sagt frá risum og berserkjum, sem óðu jörðina upp að Imjám, gengu berserksgang og lögðu að velli heilar herfylkingar. Nú eru allir hættir að trúa þess- um sögum, því að svona berserkir eru eigi til framar. En þó koma öðru hverju fram á sjónarsviðið menn, sem telja má í ætt við þá. Einn þeirra manna er Maciste, ítalska kvikmynda- hetjan, sem margir kannast við, og annar er landi hans linef- leikamaðurinn Carnera, sem nýlega varð heimsmeistari í hnef- leik vestur í Ameríku og er fyrsti ltalinn, sem orðið hefir heims- meistari i þyngsta flolcki. Carnerg sjest hjer á myndinni og er ærið ægilegur, svo að mótstöðumenn hans eru síst öfundsverðir af að eiga að mæta honum. 5M !|§ |.. . Hjer í blaðinu var fyrir skömmu sagt frá „Litlu Rosalíu“, fjögrg cylindra Citroenbifreiðinni litlu, sem ók samfleytt viku eft- ir viku á veðhlaupabraut í Frakklandi með yfir 100 kílómetra meðalhraða á klukkustund og sló öll eldri þolmet bifreiða. Hef- ir bifreiðin orðið heimsfræg fyrir vikið og hjálpar þolakstur þessi Citroen eflaust mikið í samkepninni við Ameríkumenn. Erlendis er allskonar róður iðkaður mikið að sumrinu til, því að hann þykir æfa vel flesta vöðva líkamans og stælir mgnninn. llli llÍÍl É^<ÉiiSilÉ^ WÆ Immm. IMiS v- ' ' “ ' Ameríkumenn hafa í sumar verið að gera tilraunir með nýja fallhlíf, sem á að taka þeim eldri fram í öllu til- liti. Myndin sýnir fallhlífina þegar hún er nýskilin við flugvjelina og er að byrja að þenjast út. Myndin lijer til hægri er af einni af þeim mörgu skemt- unum, sem haldnar eru við baðstaðina á sumrin. Börn- in á myndinni horfa hug- fangin á manninn, sem hef- .ir „sett sig á háan hest“..

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.