Fréttablaðið - 28.09.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
MÁNUDAGUR
28. september 2009 — 229. tölublað — 9. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
EDDA MARÍA BALDVINSDÓTTIR
Á forláta kistil sem
hún erfði eftir afa sinn
• heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
„Þessi kistill er ættargripur og má ætla að hann hafi verið smíðaður í kringum 1880,“ segir Edd MBald i
„Langafi geymdi síðan brennivíog skro í ki l
Geymdi brennivín og skro
Edda María Baldvinsdóttir á forláta kistil sem langafi hennar keypti á uppboði árið 1910. Kistill þessi
hefur í gegnum tíðina geymt allt frá brennivíni og skroi til nótnabóka og málningarpensla.
GAMALDAGS GLERHURÐARHÚNAR geta virkað
skemmtilega í eldhúsinu eða baðherberginu sem handklæða-
hengi. Svo getur líka verið fallegt að blanda saman mismun-
andi húnum sem oft má finna á flóamörkuðum.
Edda María Baldvinsdóttir tyllir sér á kistilinn sem hefur tilheyrt ættinni í um hundrað ár.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
VIKTOR ARNAR INGÓLFSSON
Hefur selt 150 þúsund
bækur í Þýskalandi
Ný bók væntanleg í vikunni
FÓLK 30
Með bjartsýni
að leiðarljósi
Ágústa og Hildur
Hilmarsdætur
stofnuðu Kraft
fyrir tíu árum.
TÍMAMÓT 16
Núna er ég tré
Þóra Björk Þórðar-
dóttir gerir tónlist
á eigin forsend-
um.
FÓLK 22
HÆG BREYTILEG ÁTT Í dag
verður breytileg átt á landinu.
Hætt við lítilsháttar vætu NA-lands
fyrri partinn. Hiti verður á bilinu
1-8 stig, hlýjast sunnanlands.
VEÐUR 4
6
7
6
88
LÖGREGLUMÁL Fimm ára stúlka
liggur þungt haldin á Landspít-
alanum eftir lífshættulega árás.
Lögregla handtók um miðjan dag í
gær 22 ára gamla konu í Keflavík,
sem grunuð er um að hafa stungið
stúlkuna með eggvopni.
Stúlkan hlaut djúpt sár á brjóst-
kassa, skammt frá hjartanu. Hún
var flutt á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja, og þaðan á Landspít-
alann. Stungan var að mati læknis
á gjörgæslu Landspítalans lífs-
hættuleg, en stúlkan var ekki talin
í lífshættu í gærkvöldi. Hún gisti á
gjörgæslu í nótt.
Lögreglan á Suðurnesjum vildi
í gær ekki upplýsa um tildrög
árásar innar, né um tengsl hinnar
handteknu við stúlkuna eða for-
eldra hennar. Von er á tilkynningu
frá lögreglu í dag.
Fram kom á Vísi í gærkvöldi
að grunur léki á að konan hefði
verið að hefna sín á foreldrum
litlu stúlkunnar. Heimildir Vísis
herma að foreldrar stúlkunnar
hafi gefið skýrslu hjá lögreglu þar
sem meint árásarkona var bendluð
við skemmdarverk á mótorhjóli.
„Þetta er áfall fyrir samfélagið
allt,“ segir sr. Skúli S. Ólafsson,
sóknarprestur í Keflavíkurkirkju.
„Það eru allir slegnir yfir þessu.“
Skúli segist ekki hafa komið að
málinu, en augljóst sé að gerandinn
hljóti að vera manneskja sem eigi
við andleg vandamál að stríða.
Svo virðist sem húsið hafi verið
undir eftirliti lögreglunnar í Kefla-
vík nokkurn tíma. Sjónarvottar
segja að hópur lögreglumanna
hafi farið þangað inn fyrir nokkr-
um dögum og borið út úr því hluti
sem líktust hassplöntum.
Bæjarbúi sem Fréttablaðið
ræddi við sagði húsið þekkt í
Keflavík. Annar sagði íbúa þess
ekki bestu nágrannana. Læti hefðu
fylgt húsinu, bæði frá tónlist og
mótorhjólum.
Hjördís Árnadóttir, félagsmála-
stjóri Reykjanesbæjar, segir að
málið sé ekki barnaverndarmál,
og sé alfarið í höndum lögreglu.
„Við munum skoða hvort við
getum komið inn með stuðning
við fjölskylduna sem varð fyrir
þessu,“ segir Hjördís. Ekkert bendi
til vanrækslu á barninu heldur sé
um sakamál að ræða sem rannsak-
að verði af lögreglu.
Fjórir lögreglumenn frá tækni-
deild voru að störfum í húsinu
þegar blaðamann Fréttablaðsins
bar að garði. Mynduðu þeir húsið
að innan sem utan og fínkembdu
vettvang glæpsins.
Að sögn nágranna hefur maður
sem býr í húsinu verið meðlimur
vélhjólasamtakanna Fáfnis. Sam-
tökin breyttu nýverið um nafn og
tengjast nú vélhjólasamtökunum
Hells Angels. Samkvæmt nágrann-
anum kom maðurinn að húsinu um
tvöleytið í gær þegar lögreglan
var þar að störfum en fékk ekki
að fara inn.
Á bréfalúgu á húsinu þar sem
árásin átti sér stað eru límmiðar
þar sem fólk er hvatt til að styðja
vélhjólasamtökin Hells Angels og
MC Norway.
- bj, fb
Keflvíkingar
slegnir eftir
ofbeldisglæp
Lögregla í Reykjanesbæ handtók í gær 22 ára gamla
konu sem grunuð er um að hafa stungið fimm ára
stúlku í brjóstið með eggvopni. Húsið þar sem árásin
átti sér stað er merkt Hells Angels-samtökunum.
Blikar í Meistaradeild
Breiðablik tryggði
sér í gær
þátttökurétt í
Meistaradeild
Evrópu á næstu
leiktíð.
ÍÞRÓTTIR 26
Samkeppni
á samdráttartímum
„Virk og heilbrigð samkeppni
er nauðsynleg forsenda þess
að íslenskt efnahagslíf geti náð
vopnum sínum á ný,“ skrifar Gylfi
Magnússon.
Í DAG 14
HEIMILI STÚLKUNNAR Tæknideild lögreglu fór vandlega yfir vettvang árásarinnar í
gær. Litla stúlkan var ekki talin í lífshættu í gærkvöldi en hún liggur á gjörgæsludeild
Landspítalans. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
EFNAHAGSMÁL Höfuðstóll verð-
tryggðra lána verður áfram verð-
tryggður, en afborganir tengdar
launavísitölu, samkvæmt kynningu
á tillögum félagsmálaráðherra hjá
Hagsmunasamtökum heimila í
gær.
Friðrik Ó. Friðriksson, stjórnar-
maður í samtökunum, staðfestir
þetta en segir of snemmt að úttala
sig um tillögurnar enn.
„Okkur sýnist að þetta sé skref
í rétta átt en grunar að töluvert
kunni að vanta í viðbót upp á,“ segir
hann.
Meðal tillagna Árna Páls Árna-
sonar félagsmálaráðherra er að
færa greiðslubyrði aftur til maí-
mánaðar 2008. Þetta gæti gerst
strax 1. nóvember, með tilheyrandi
lægri afborgunum.
Áður hefur verið fjallað um
tengingu lána við launavísitölu í
blaðinu, eftir að Joseph Stiglitz hag-
fræðingur reifaði hana á dögunum.
Þá sagði Jón Bjarki Bentsson hag-
fræðingur að þessi leið gæti haft
ýmsa ókosti í för. Hann benti meðal
annars á að launavísitala hefði
hækkað um 29 prósent umfram vísi-
tölu neysluverðs síðan 1991.
Ekki náðist í félagsmálaráðherra
í gærkvöldi. - kóþ
Hagsmunasamtök heimilanna segja tillögur félagsmálaráðherra skref í rétta átt:
Höfuðstóll áfram verðtryggður