Fréttablaðið - 28.09.2009, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Gerðar Kristnýjar
Opið 07 til 01
Lyfja Lágmúla
- Lifið heil
www.lyfja.is
Í dag er mánudagurinn 28. sept-
ember 2009, 271. dagur ársins.
7.28 13.18 19.07
7.14 13.03 18.51
Allir virtust hafa skoðun á því hver ætti að verða næsti rit-
stjóri Morgunblaðsins en aðal-
lega þó á því hver ætti alls ekki að
verma ritstjórastólinn. Fátt þráir
fólk meira en stöðugleika og það
er einmitt það sem Morgunblaðið
þótti sýna hér í eina tíð. Þar störf-
uðu sömu ritstjórarnir áratugum
saman og allir vissu fyrir hvað
þeir stóðu. Og þar sem Ólafur
Stephensen hafði unnið undir þeim
árum saman var ráðning hans ekk-
ert sérstaklega óþægileg. Hann
var hluti af gamla Mogganum en
þorði samt að bjóða upp á nýjung-
ar.
ÓLAFUR bauð þjóðinni til dæmis
að senda inn myndir af glænýjum
börnum og vó þar með upp á móti
öllu dána fólkinu í blaðinu. Þegar
Fréttablaðið var stofnað gerðu
menn þar sér að leik að kalla
Morgun blaðið, sinn helsta keppi-
naut, blað dauðans vegna minn-
ingargreinanna. Löngu síðar sá
Fréttablaðið sér reyndar ekki
annað fært en að fara að birta
dánartilkynningar þótt enn bjóði
það ekki upp á heilu minningar-
greinarnar – sem er synd. Þetta
er nefnilega blaðaefnið sem ég
rýni hvað mest í. Ég byrja á að
velta fyrir mér ljóðunum og söng-
textunum sem fólk dregur fram
til að minnast látinna ástvina og
leita síðan uppi góðar sögur. Engir
eru jafnhreinskilnir og Vestmanna-
eyingar. Þeir lýsa fólki nákvæm-
lega eins og það var.
ÉG fer líka yfir nöfn barnanna
sem halda tombólur og Velvakandi
er fyrir löngu orðinn vinur minn.
Þar getur fólk spurt hvar hægt sé
að láta gera við gamla bangsa og
nælonsokkabuxur eða slett fram
fyrriparti sem það heyrði í æsku
og kannað hvort einhver þekki
nú ekki seinnipartinn. Stundum
hefur slík umræða teygst út í það
óendanlega eins og þegar einhver
vildi fá að vita hvernig kvæðið
Litla stúlkan með ljósa hárið eftir
Jóhann Magnús Bjarnason endaði.
Þær umræður spunnust vikum ef
ekki mánuðum saman.
ALDREI nokkurn tímann hef ég
vanið mig á að lesa það sem mest er
fárast yfir, leiðarann eða Reykja-
víkurbréfið, nema í þau fáu skipti
sem minnst hefur verið á mig þar.
Nú skilst mér að reiðinnar býsn af
fólki hafi sagt upp áskriftinni að
Morgunblaðsins vegna nýráðinna
ritstjóra en ég geng ekki svo langt
nema tombólubörnunum og dána
fólkinu verði úthýst. Þessir tveir
hópar minna mig á hver ég var og
hver ég verð.
Samræður við
þjóðina