Fréttablaðið - 28.09.2009, Blaðsíða 29
MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2009 13híbýli og viðhald ● fréttablaðið ●
● HALTU FLÍSUM FLOTTUM OG HREINUM Gamlar flísar geta
litið út fyrir að vera snjáðar þegar þær eru hreinlega skítugar en fita og
óhreinindi geta myndað skán sem ekki næst af við venjuleg þrif. Heimilis-
fólki eru þó ekki öll björg bönnuð
því auðvelt er að bretta upp ermarn-
ar og ná fyrri gljáa á flísarnar. Til þess
þarf svamp, matarsóda, edik, lyfti-
duft og sítrónusafa. Byrjað er að strá
matarsóda á svampinn og nuddað
yfir óhreinindin. Því næst er sódinn
þveginn af með vatni. Þá er hægt að
blanda saman ediki, lyftidufti, matar-
sóda og smá sítrónusafa í fremur
þykka blöndu og borið á flísarnar.
Gott er að láta blönduna liggja á í
þrjár klukkustundir áður en hún er
þvegin af. Athugið að
þessi meðferð
gildir ekki um
náttúruflísar.
Kostnaðarsamt getur verið ef
stífla kemur upp í rennu á húsi.
Miklar skemmdir geta hlotist
vegna þeirra sem auðveldlega
hefði mátt koma í veg fyrir, ef að-
eins hefði verið skolað úr rennunni
ögn fyrr.
Hannes Erlendsson, blikksmiður
hjá fyrirtækinu Ísloft Blikk- og
stálsmiðja, segir nauðsynlegt að
spúla úr rennum reglulega, sér-
staklega þar sem mikið er af trjá-
gróðri. Ekki sé óalgengt að sjá
ýmsan gróður gægjast upp úr
rennum sem ekki hafi verið þrifn-
ar í talsverðan tíma. Það gefi
augaleið að rennur í slíku ástandi
gegni hlutverki sínu ekki eins og
best verði á kosið og hreinsunar sé
þörf. „Sumir vilja spúla rennurn-
ar á hverju hausti en ég held að það
sé nóg að gera það með tveggja til
þriggja ára millibili,“ bendir hann
á.
Hannes segir að fólk þurfi einn-
ig að huga að aldri rennanna. Séu
þær farnar að taka á sig brúnleit-
an lit gæti verið kominn tími til að
skipta. Þær rennur sem helst hafi
verið notaðar hér á höfuðborgar-
svæðinu séu íslensk framleiðsla
sem reynst hafi vel þótt þær elstu
séu farnar að ryðga eins og geng-
ur og gerist í tímans rás. „Síðustu
ár hefur færst í vöxt að fólk not-
ist við plastrennur eða stálrennur
með litað ál sem þarf lítið viðhald.
Það þarf þó að gæta að því að þær
passi í svokölluð rennubönd sem
halda rennunum uppi. Hver fram-
leiðandi virðist þurfa að hafa sér-
snið á sínum rennuböndum. Sá
sem hefur haft íslenskar rennur
en ætlar að setja nýjar frá erlend-
um aðila þarf því að huga að því
að þær innfluttu passi í íslensku
rennuböndin.“
- kdk
Gott að skola úr rennum
Hannes mælir með að menn spúli rennurnar á tveggja til þriggja ára fresti.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
● ELDFIMAR TEKKOLÍUTUSKUR Húsgögn
úr tekki eru jafnfalleg ef vel er hugsað um og þau
geta orðið sjúskuð ef enginn hirðir um. Tekkolíu er
gott að bera á þau einu sinni á ári en ekki
á að láta olíuna liggja lengi á heldur
strjúka hana af eftir nokkrar klukku-
stundir.
Munið þó að tekkolía er mjög eldfim
og passið því að henda ekki tuskum með
tekkolíu inn í skáp og gleyma þeim þar.
Í BYKO hefur verið hægt að fá tekk-
olíu í úðaformi sem getur verið mjög
þægilegt í notkun.
Auglýsingasími
– Mest lesið