Fálkinn - 15.01.1938, Qupperneq 3
F Á L Iv 1 N N
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
Ritstjórw:
Vilh. Finsen og Skúli Skúlason.
Framkmrmdastj.: Svavar Hjaltested.
Aðalskrifstofa:
Banknstræti 3, Reykjavík. Sími 2210.
öpin virka daga kl. 10—12 og 1—(i.
Skrifstofa í Oslo:
,A n t o n S c h j ö t h s g a d e 1 4.
Blaðið kemur út livern laugardag.
Áskriftarverð er kr. 1.50 á mánuði:
kr. 4.50 á ársfjórðungi og 18 kr. árg.
Erlendis 24 kr.
Allar áskriftir greiðist fyrirfram.
Átiglýsingaverð: ‘20 aura millimeter
Herbertsprent.
Skraddaraþankar.
Það er eftirtektárveyt einkénni á
skrifum þeim, sem beindust að við-
reisn íslands, á 17. og 18. öld, hvc
mlkið er lagt þar upp úr ýmsum
„náttúrugæðum“, sem fáir hafa veitt
athygli síðan, fyr en á allra síðustu
ár’um.
Hálf önnur öld leið þangað lil
menn 'tóku upp aftur iðnaðartilraun
ir Skúla fógeta. Og vísindamenn
síðustu hálfrar aldar hafa gert það
sem þeir hafa getað til þess að
sanna — fræðilega að hjer væru
engin þau efni til í jörðu, sem nokk-
utjs væru nýt. Að vísu voru kenn-
ingar hinna gömlu visindamanna um
málmauðæfi íslands og auðlegð alls-
konar jarðefna bygð á vantandi vís-
indaþekkingu og of íiiikilli bjart-
sýni. Þá þóttust menn finna í skauti
íslands kopar, nikkel og jafnvel
silfur og gull; brennisteinninn var
þúsunda virði — þvi að þá höfðu
mehn ekki lærl að hugsa í miljón-
Um —- og íslenskt salt gal orðið út-
flutningsvara. En svo kom aftúrlivarf
ið. Þegar leið fram á siðari hluta
19. aldarinnar var ekkerl islenskt
jarðefni til nokkurs nýtt og það var
lí.lin flónska að hafa trú á slíku.
Þetta er nú ofurlítið að breytast.
Maður sem ekki var fræðimaður i
jarðfræði, sannaði með tilraunum að
hjer á landi er nóg af leir til brenslu.
Það er aðeins eitt dæmi. En annars
má segja að jarðefni íslands sjeu
með öllu órannsökuð. Efnafræðin er
orðin ný visindarein í samanburði
við það sem hún var fyrir hálfr:
öld. Ög það er alls ekki fyrir það
að synja, að dýrmæt efni sem eng-
inn sinnir, liggi svo að segja fyrir
íótum manns. Énginn fslendingur
mun að svo stöddu hafa lagt fyrir
sig n á m það, sem útheimtist lil
rannsóknar jarðefna, sist.af öllu hina
verklegu hlið þess. Og fullkomin
rannsóknartæki til slíkra rannsókna
eru engin til á íslandi.
Hjer virðist vera verkefni fyrir
hina nýju rannsóknarstofnun í „þágu
atvinnuveganna“, þó að ekki sje
hjer um atvinnuveg að ræða ennþá,
En það gæti sprottið atvinna upp
úr því.
Óg hvað er um gamla drauminn
um saltvinslu á íslandi . Sjórinn
mun vera jafnsaltur eins og hann
var fyrir 200 árum. Og almenningur
hefir komist til meiri viðurkenn-
ingar. á jarðhitanum en var fyrir
200 árum. Nú viðurkenna allir að
jarðhitinn er gullnáma. Þvi má ekki
nota hann til að sjóða salt?
Frá skíðanám-
skeiði í. lí. að
Kolviðarhóli síð-
astl. vetur.
1. Skiðaganga i
Innstadal.
2. Við hverinn i
Innstadal.
3. Við æfingar.
1. Æfing undir
stafi (hnébeygja).
,5. Flokkar skiða-
m an na.
(1. Tryggvi Þor-
sleinsson skíða-
kennari.
Skíðakvikmynd íþróttafjelags Reykjavíkur.
íþróttafjelag Réykjavíkur
hefir undanfaritS sýnt þýska
kenslukvikmynd í ‘ skíðagöngu
og hlaupum. Mynd þessi er bæði
falleg og lærdómsrik. Þóll
skíðaíþróttin sé raunar gömul
liér á landi er það ekki tyr en
á síðustu 4—ú árunum að liún
llefir orðið algeng og það er
heldur ekki lengra síðan að far-
ið var hér að læm að ganga á
skíðum og iðka skíðaferðir sem
íþrótt, svo okkur er eðlilega
mjög ábátavant i þeirri ágætu
íþrótt. Skiðákvikmynd þessi er
okkur, sem löngun höfum lil
þess að læra að ganga og
hlaupa á skíðum, mjög kær-
komin, sérstaklega þar sem hún
er einkar vel tekin og haglega
samansett sem kenslumynd.
Myndin hyrjar með þvi að
kenna, hvernig ganga skuli á
jafnsljcttu og upp brekkur með
beztum árangri og með því að
nota minsta orku. Þetta er
nauðsynlegt að kenna, því fjöldi
manna, sem fer á skíðum kann
ekki að ganga Ijettilega á skið-
um. Þar næst er kent króka-
hlaupið „slaIom“. Fyrst er
kent að fara i plóg, sem er und-
irstaðan undir aðrar króka-
hlaupaaðferðir eins og' „Iírist-
janíu“- og „Tempo“-króka-
lilaup, sem einnig eru sýnd bæði
hægt, svo hægt sje að fylgjast
með liverri hreyfingu skíða-
mannsins, og með eðlilegum
liraða, þar sem glæsileiki skiða-
íþróttarinnar kemur skýrt fram.
Einnig sýnir myndin, hvernig
ekki á að fara á skíðum og er
það gott lil samanburðar. í
myndinni er fallegt og stór-
fenglegt landslag frá Alpafjöll-
um og ej'kur það á ánægjuna
af að horfa á myndina.
Steindór Sigurðsson magister
hefir skýrt myndina mjög
greinilega og af röggsemi. Til
þess að liafa fult gagn af mynd-
inni og læra af henni er vitan-
nauðsynlegt að sjá hana oftar
en einu sinni. í. R. mun ætla
að nota filmuna við kenslu ú
skíðanámskeiðum sinmn í vetur.
Hjer birtist ein af nýjustu mynd-
unum af Faruk Egyptalandskon-
ungi, sem nýlega hefir vikið frá
ráðuneyti sínu eins og kúnnugl er
og vabið með þvi óró í landinu.
Friðjón Jen.sson, tannlælmir á Pjetur Magnússon hæstarjettar-
Akureyri, varð 70 ára 0. jt. m. málaflm., varð 50 ára 10. þ. m.
Hið fræga sænska bókaforlag Al-
berl Bonniers i Stokkliólmi hjell
100 ára afmæli sitt hátiðlegt 30.
október síðastliðinn. Veislugestirnii
v.oru yfir 2000 og til þess að rúma
þennan fjölda leigði forlagið stærsta
tennissalinn i borginni og breytti
lionum i veislusal, setti þar upp
bi áðabirgðaeídhús og rafmagns-, gas-
oí. vatnsleiðslur. Þrjú hundruð
manns unnu að undirbúníngi veisl-
iinnar i marga daga og m. a. voru
bornar þar fram 0000 sneiðar af
smurðu brauði, 500 fasanar, 000 kg.
af fiski, 3000 bjórar og eitthvað
befir verið sopið af vínum iíka, þvi
að 70.000 stykki af glösum og disk-
um voru notuð i veislunni. Starfsfólk
fi rlagsins gekk um beina, en gesl-
iinir voru einkum bóksalar víðs-
vegar að frá Svíþjóð og helstu bóka-
verslunum Norðurlanda.