Fálkinn - 23.07.1938, Qupperneq 2
2
F Á L K I N N
------- GAMLA RlO --------------
i skyrtunni
gegnum bæinn.
Fjörugur og smellinn gamanleik-
ur, meö þeim bestu leikurum
sem vöi er á.
AðaihlutverkiÖ leikur:
GENE RAYMOND
sem flestir muna eftir frá „(iari-
oca“ og sem hefir sjest síðan í
goSum myndum.
VerSur sýnd um helgina.
Gamla Bíó sýnir um næstu helgi
fjöruga kvikmynd frá Gloriafjelaginu,
sem tekin er undir stjórn Leign
Jason.
Ungur maSur Michael Mac Creigii
verSur mjög hrifinn af leikriti, sem
vinur hans Stephan Doty hefir skrif-
aS og leggur mikiS kapp á aS fá
þaS „færl upp“. En þaS vantar pen-
inga til þess. Loksins hugkvæmist
honum aS knýja á dyr hjá vellauö-
ugum frænda sínum, kjötkaupmanni
í New York og biSur Michael liann
um aS leggja fram fje til þess aS
hægt sje aS koma ieikritinu upp á
sviöiS. — En gamla manninum
geSjast ekki aS uppistöSunni i leikn-
um, en hún er á þá leiS, aS ungur
maSur leggur af staS frá New York í
einni skyrtu klæSa og auralaus meS
öllu og kemst til Los Angeles eftir
10 daga og hefir þá eignast ný föt,
100 dollara og trúlofast ungri og
fallegri stúiku.
Nei, svona vitlaust leikrit vill kjöt-
kaupmaSurinn ekki styrkja. Þeir
frændurnir deila um möguleikann
á framkvæmd hugmyndar Doty og
verSur veSmál úr. Michael tekst á
hendur ferSina til Los Angeles og
gamli maSurinn heitir honum 15
þúsund doliara launum, ef hann get-
ur framkvæmt hugmyndina.
Og nú hefst „spennandi" kafli i
meira lagi. Michael leggur af staS
frá New York, i skyrtunni. MeS
naumindum smýgur liann úr höndum
lögreglunnar og kemst út í skemti-
garS einn í borginni. Þar kemst
hann yfir flíkur og sleppur í burt.
Þegar hann er kominn all langt frá
borginni ekur bíll fram á hann.
Michael er nú kominn í hermanna-
búning. í bílnum eru tvær konur,
ungfrú Paula Gilbert og fulloröin
frænka hennar, og kannast hann viS
þær. Þær eru á leiS til Los Angeles
til þess aS finna unnusta Paulu.
Michael bíSur þeim aS aka bílnum,
og fara svo leikar aS liann stjórnar
honum alla leiS til ákvöröunarstaö-
arins.
Á leiSinni fella þau Paula og hann
hugi saman. ÞaS mun ekki vert aS
segja frekar frá því meS hvaSa hælti
hinn ungi ofurhugi vann veSmáliö.
lín til Los Angeles komst hann. Hann
eignaSist ný föt, ógrynni fjár og
unga stúlku í þokkabót — á einum
10 dögum. Geri aSrir betur!
Starfsfólk veitingamanns eins í
Altona hafSi lagt niSur vinnu og til
þess aS vara aSra viS aS ráða sig
tii hans Ijet það mann einn ganga
um göturnar meS auglýsingu um, að
veitingamaSurinn væri í banni. HvaS
gerði veitingamaðurinn. Hann leigði
rangeygða kerlingu til þess að ganga
við hliðina á auglýsingaberanum
með auglýsingu sem hljóSaði svo:
„ViS erum nýgift!“ Og manngarmur-
inn var fljótur að hverfa af götunni.
Joseph Conrad hinn kunni rit-
höfundur, sem viðbrugSið var fyrir
það hve hann skrifaði fallega ensku,
kunni ekki orð í því ntáli þegar
hann var tuttugu og fimm ára.
Þorvarður Guðmundsson starfs-
maður við Gasstöðina í Reykja-
vík, varð 50 ára 20. þ. m.
Slys, sem var morð.
Júníkvöld eitt fyrir hálfu þriðja
ári var lögreglunni í Zúrich tilkynt,
að slys hefði orðið á mótorhjóli
skamt fyrir utan bæinn og maður
beðið bana. Lögreglan rannsakaði
málið og gat ekki fundiS neitt grun-
samlegt. Kona hins látna var eina
vitnið í málinu. Þau hjónin höfðu
verið á bíó 0|g voru að fara heim
og hún sat fyrir aftan hann á hjól-
inu. Vegurinn var slæmur og það var
dímt og maðurinn hafði oltið um
með hjólið en hún dottiS út af veg-
inum og ekki meiðst. En maðurinn
lá á veginum og stundi sáran. Hún
hafði hlaupið heim til bróður hans
til að fá hjálp, en þegar þau komu
aftur var maðurinn að dauða kom-
inn og andaðist skömmu siðar.
Þess sáust engin merki, að annað
ökutæki hefði átt sök á slysinu, en
þegar lögreglan sá blóðdrefjar á girð-
ingunni meðfram veginum dæmdist
það rjett vera, að maðurinn hefði
rekist á girðinguna og rotast. Og
maðurinn var grafinn og svo varð
hljótt um málið.
En bráðlega fór það að kvisast,
að ekki mundi alt vera með feldu.
Það var framferði ekkjunnar, sem
olli þessum orðrómi. Daginn eftir aS
maðurinn dó hafði hún látið greiða
sjer líftryggingarfje hans, en áður
liafði hún áritað skírteinið á þá
leið, að hún ætti að taka við fjenu.
og sett nafn manns síns undir.
Hún keypti allskonar skartgripi fyr-
ir peningana og svo bifreið. Og
hún komst bráðlega í tigi við Paul
S. slátrara (síðar kom það á dag-
inn, að þau höfðu verið kunnug
áður en maðurinn dó) og í desem-
ber sama ár giftist hún honum. Og
nú voru flestir kunnugir sannfærðir
um, að fyrra manninum hefði verið
styttur aldur.
Skömmu áður en frúin giftist í
annað sinn hafði hún gefið fátækum
fötin af f.vrra manni sínum, en ekki
gætt vel að vösunum áður. í einum
vasanum fanst brjef frá slátraranum
til frúarinnar, skrifað í maí og þar
drepur slátrarinn á ýms úrræði til
að koma fyrra manninum fyrir katt-
arnef. Þegar hjer var kontið fór bróð-
ir hins látna til lögreghmnar og nú
hófst ný rannsókn. Líkið var grafið
upp og rannsakað og kom nú á
daginn að maðurinn hefði vertð
sleginn í höfuðið.
Frúin og slátrarinn voru hand-
tekin þegar í stað og ennfremur
bróðir slátrarans, August að nafni.
Hann liafði verið dyravörður á
gistiliúsi og var heimskur vel en
kraftajötunn og ger&amlega á valdi
hróður síns. Málinu lauk með þess-
ari játningu sakborninganna:
BræSurnir höfðu þrásinnis reynt
Frú Jakobína Helgadóttir, Vest-
urgötu 21, verður 60 ára 23. þ.
m., frúin átti 30 ára starfsaf-
mæli 13. maí síðastl., sem eig-
andi Þvottabúss Reykjavíkur.
Málfríður Bjarnadóttir, Norður-
braut 27b, Hafnarfirði, verður
75 ára 25. þ. m.
Steindór Einarsson, bifreiðaeig-
andi, verður 50 ára 25. þ. m.
að ráða manninn af dögum og mörg
kvöld höfðu þeir lagst í leyni við
veginn þar sem dimmast var, í sam-
ráði við konuna. Bræðurnir sátu
upp í trje, sem hallaðist út yfir
veginn og slátrarinn hafði haft með
sjer sterkt vatnsrör. Þegar ntaður-
inn var beint undir trjenu á hjóli
sínu misti konan handtösku sina af
ásettu ráði og bað mann sinn um að
nema staðar svo að hún gæti náð í
hana. Maðurinn stöðvaði hjólið, en
konan steig af og gekk til baka að ná
töskunni.
í sama augnabliki fjekk slátrar-
inn bróður sínum rörið og sagði:
„Sláðu!“ Og bróðir hans sló mann-
inn höfuðhöcg. Ef lögreglan hefði
athugað trjeð mundi hún hafa orð-
ið ýmiss vísari, þvi að þar sáust
------- NÝJA BlÓ. -------------
(iæfubörnin.
Bráðskemtileg þýsk kvikmynd
frá Ufa. ASalhlutverkin leika 4
langfrægustu og vinsælustu leik-
arar Þjóðverja:
LILIAN HARVEY,
WILLY FRITSCH,
PAUL KEMP og
OSKAR SIMA.
Aukamynd:
FERÐALAG UM DANMÖRKU.
Hrífandi landslagsmynd tekin á
ferðalagi víðsvegar um Dan-
mörku.
Nýja Bíó sýnir innan fárra daga
mjög skemtilega Ufa-kvikmynd, er
heitir Gæfubörnin. Hún er leikin af
ágætum leikurun, svo sem Lilian
Harvey og Willy Fritsch og enn-
fremur Pau) Kemp og Oskar Sima.
—• Myndin gerist í heimsborginni
New York, þar sem alt lífið hefir á
sjer einkenni hins mikja liraða.
Allmikill þáttur myndarinnar gerist
við skyndidómstól einn, þar sem ýms
lagabrot og smærri glæpir eru dæmd-
ir með amerískum hraða.
Við þennan dómstól mæta frjetta-
ritarar frá stórblöðum borgarinnar.
Þar á meðal er ljóðskáldið Gil
Taylor fyrir blaðið „Morning Post“.
En hann er þar í forföllum annars
manns.
Fyrir dómstólnum mætir litil ljós-
hærð stúlka, sem er ákærð fyrir
flakk og svall. Fangelsi bíður henn-
ar. Hún er bláfátæk og á engan að,
er geti borið hönd fyrir höfuð henn-
ar. Undir lestri ákærunnar kemst
hjarta skáldsins við, og áður en hann
veit af hefir hann sagt hástöfum aS
hann þekki hana og skuli taka hana
að sjer. Og þegar dómarinn snýr
sjer að 'honum og spyr hann um
hvernig sambandi lians og hinnar
ákærðu konu sje varið, svarar Gil
Taylor með því að hún sje unnusta
hans og þau ætli að giftast innan
fárra daga. Vitanlega er ekkert satt
i þessu, en dómarinn tekur þetta
fyrir góða og gilda vöru, og lýsir yf-
ir því, að best sje að hneppa hjúin
strax í hjónabandið, svo að rikið
þurfi ekki að sjá fyri þessu kvendi.
Giftingafógetinn er sóttur í skyndi
og þau dubbuð saman á augabragði.
Nokkrum mínútum síðar sitja þau
brúðkaupsveisluna alein á hrörlegu
kaffihúsi. Ann Garden — kona Tay-
lors flytur nú lieim með honum i
þröngu íbúðina hans.
Morguninn eftir eru New York
blöðin full af löngum og skemtileg-
um greiniím um skyndidómstóls-
giftinguna og myndir af brúðhjón-
unum. „Morning Post“ einn hefir
engar frjettir. Öllum blöðunum hefir
hann fengið efni í hendur nema blað-
inu sem liann var sendur frá. Fyrir
bragðið verður Manning aðalritstjóri
svo reiður, að hann rekur Taylor frá
blaðinu og vini hans tvo, er vilja
verja hann. Og nú byrja nýjir örð-
ugleikar. — Veðmál freista þeirra.
Þau græða — og tapa. Ann telur
Taylor á að reyna aS finna frænku
Jacksons miljónakóngs, er hafði
týnst á hnefaleikamóti og freista að
afla sjer þeirra 50 þúsund dollara,
er hann hafði boðiS að fundarlaunum.
Og nú liefst þáttur, sem hleypir
snurðu á hjónabandið. En með livaða
hætti? SvariS fáið ]tíS í niðurlagi
myndarinnar.
spor. En á veginum voru alls engin
spor eftir morðingjana.
Þetta dæmi hefir verið tekið up)T
i kenslubækur fyrir glæpalögreglu-
menn til þess að brýna fyrir þeim,
að athuga jafnvel það ólíklegasta er
þeir rannsaka vettvanginn, sem
„slys“ gerast á.