Fálkinn - 23.07.1938, Page 9
F Á L K I N N
9
Fyrir þremur árum fjekk hin for-
ríka Barbara Huiton, sonardóttir
miljónamæringsins Woolworth skiln
að frá manni sínum, prins Alexis
Mdwani prins, lil þcss að geta gifst
danska greifanum Haugwitz Rew-
entlow. Nú eru þau hjónin orðin
saupsátt — út af uppeldi tveggja
áira gamals sonar þeirra, og frúin
vill losna við manninn. Hafði hann
haft í hótunum að nema á burt
strák þeirra hjóna og ala hann
upp eins og hveri annað barn
en ekki eins og stofugull. Frúin
svaraði með því, að fá úrskurð
um að greifinn skyldi tekinn fast-
ur ef hann kæmi lil Englands. Og
nú eru lögfræðingar þeirra hjóna
að bræða málið. Hjer sjást hjón-
in og strákur þeirra, meðan alt
Ijek í lyndi.
Myndin að neðan er frá Kína og
sýnir japanska hermenn, sem eru
að koma fallbyssu áfram um
ófæru í fjalllendi og hafa tekið
hana sundur.
Nobile var um eilt skeið mest
umtalaði maður í heimi, en nú
ber lítið á honum. ítalska stjórn-
in lagði fæð á hann eftir norður-
förina og hröklaðist hann þá til
Rússlands og dvaldi þar árum
saman. Fyrir nokkrum árum tók
Mussolini hann í sátt aftur og er
hann nú prófessor í flugfræði í
Ítalíu. Nýlega var hann á ferð í
Iíhöfn og var myndin tekin þái.
Eru nú liðin tíu ár síðan hann fór
hina sorglegu norðurför sína.
1 Vesturbotnum í Norður-Svíþjóð
urðu hræðilegir vatnavextir í vor og
flæddi Umeá yfir landið og skemdi
mikið. Myndin sýnir vatnsflóðið.