Fálkinn - 23.07.1938, Side 15
F Á L K I N N
15
THE WORLD'S GOOD NEWS
will come to your home every day through
THE CHRISTIAN SCIENCE MONITOR
An International Daily Neivsþaper
It records for you the world’s clean, constructive doings. The Monltor
does not exploit crime or sensation; neither does it ignore them,
but deals correctively with them. Features for busy men and all the
family, including the Weekly Magazine Section.
The Christian Science Publishing Society
One, Norway Street, Boston, Massachusetts
Please enter my subscription to The Christian Science Monitor for
a pericd of
1 year $12.00 6 months $6.00 3 months $3.00 1 month $1.00
Wednesday issue, including Magazine Section: 1 year $2.60. 6 issues 25o
Name___________________________________________
Address -
Samþle Coþy on Request
Um víða veröld.
LOFTSIGLINGAK OG HELIUM.
SmíSi þýska loftskipsins L. 130
er nú svo langt á leið komin, að
ráðgert er að skipið geti Jjyrjað
feðir sínar á komandi vori. Á
skipið aðallega að verða i ferðum
milli Friedrichshafen og New York,
sömu leiðinni og „Hindenburg“
hafði. En „Graf Zeppelin“ er enn í
förum til Suður-Ameriku.
L. 130 er verksmiðjunúmer loft-*
skipsins nýja („Hindenburg“ var
L. 129) og er skipið mjög líkt
„Hindenburg" að allri gerð. En sá
verður munurinn, að þella nýja loft-
skip á að nota helium lil lyftingar
en ekki vatnsefni eins og þýsk loft-
skip hafa notað til þessa. Vatnsefnið
er að vísu besta lyftiloftið sem til
er i veröldinni og er ljettara en
helium, en það er bráðeldfimt. —
Sjerfræðingar telja vist, að ef heli-
um hefði verið í „Hindenburg“ þá
liefði hann aldrei brunnið, því að
helium er óeldfimt, svo að neisti sá,
sem talið er að hafi kveikt í skip-
inu hefði orðið gersamlega áhrifa-
laus gagnvart helium.
Helium eða „sólarloft“ heitir svo
vegna þess að menn sönnuðu til-
verú þess í sólinni löngu áður en
það fanst hjer á jörðu. Það var ár-
ið 1868 að eðlisfræðingarnir Frank-
land og Lockyer fundu með litrófs-
rannsóknum á sólarljósinu nýtt frum
efni, sem óþekt var á jörðinni og
skýrðu það eftir sólinni. Síðan hef-
ir það fundist á jörðu bæði í ýms-
um steintegundum og eins við sam-
bandabreytingar á radium. Einnig
er það til í ýmsu ölkelduvatni og í
andrúmsloftinu er til örlítið af því,
eða einn teningsmeter í 245.300 ten-
ingsmetrum lofts. Helium er átta
sinnum ljettara en súrefni.
Þegar Eckener loftskipasmiður
heyrði um „Hindenburg“-slysið
komst hann svo að orði, að hjeðan
í frá yrðu þýsk loftskip að hætta
við að nota vatnsefni sem lyftiloft,
en taka helium í staðinn. Eldhættan
af vatnsefninu hafði verið honum
ljós lengi, en hinsvegar var ýmis-
legt þvi til fyrirstöðu að taka upp
helium í staðinn. í fyrsta lagi höfðu
Þjóðverjar engin jarðefni til þess að
framleiða helium úr sjálfir. Banda-
ríkin eru að kalla niá eina landið
i heiminum, sem getur framleitt
helium að nokkrum mun en í frjáls-
um markaði þar vestra er það ákaf-
lega dýrt. Vatnsefnið sem Zeppe-
linskipin hafa notað til ])essa kostar
um 2 .dollara hver þúsund rúmfet,
en helium kostar í Bandaríkjunum
75 dollara hver þúsund rúmfet. Nú
var rúmtak „Hindenburg“ 7.000.000
rúmfet og kostaði þannig 14.000
dollara að fylla hann með vatns-
efni en 525.000 dollara með helium.
Munurinn var þannig yfir tvær mil-
jónir króna, og þá upphæð vildu
eigendur loftskipanna spara sjer •—
þangað til slysið mikla varð i maí
í fyrra.
Nú er jjað vitanlegt, að verðið á
frjálsa markaðinum vestra er okur-
verð. Bandaríkjaherinn framleiðir
sjálfur helium handa loftskipum
sínum og það kostar ekki nema
10 doilara liver þúsund rúmfet.
Þjóðverjar fóru fram á, að fá heli-
um keypt hjá stjórninni fyrir sann-
virði eða því sem næst, en stjórnin
neitaði. Það er þetta sem hefir gef-
ið tilefnið til þess að almenningur
heldur, að útflutningsbann sje á
helium frá Bandaríkjunum. En þetta
er rangt. Hver sem vill hefir jafnan
getað fengið helium keypt til út-
flutnings fyrir 75 dollara. Nú hafa
í sumar farið fram samningar milli
Zeppelin-Werke og Bandaríkjastjórn
ar með þeim árangri að Þjóðverjar
fá framvegis helium hjá stjórninni
fyrir sæmilegt verð: nálægt 15 doll-
ara fyrir hver þúsund rúm, eða
fimmfalt lægra en verðið er á frjáls-
um markaði.
En svo er annað, sem gerir lieli-
um dýrara í notkun en vatnsefnið
var. Það lyftir ekki eins miklu.
Þúsund rúmfet af vatnsefni lyfta
68 pundum en af helium ekki nema
62 pundum. En raunverulegi mun-
urinn verður þó ineiri en þessi 9%,
þvi að fyrst kemur til greina þungi
loftskipsins sjálfs, sem ávalt er jafn.
Það sem gefur loftskipinu tekjurnar
er þunginn, sem það getur borið
fram yfir sína eigin þyngd. Og þeg-
ar liann er reiknaður verður reynd-
in sú, að loftskip með helium lyft-
ir 20—30% minni farmi en sama
loftskip með vatnsefni.
Þarna kemur því tvöfaldur kostn-
aður til greina, sem leiðir af sjer
að þegar loftskipin fara að nota
helium verður að liækka öll fargjöld
og farmgjöld um nálægt 40%. „Hind-
enburg“ bar 15 smálestir, en sams-
konar loftskip með helium getur
ekki borið nema tæjiar 12. Og end-
urnýjun lyftiloftsins verður sem sje
sjöfalt dýrari þegar helium er not-
að. Það var þetta, sem tafði fyrir
því, að helium væri tekið í notk-
un — þangað til slysið varð.
í Ameríku er verið að leggja
lengsta akveginn i lieimi, sem á að
ná alla leið norðan úr Canada og
til Suður-Ameríku og verður 25.000
kílómetrar á lengd. Eru 6000 kíló-
metrar þegar fullgerðir, frá Ottawa
í Canada til Mexico City í Mexico.
Og eftir fimm ár er ráðgert að veg-
urinn verði fullgerður frá Mexico
City suður að Panamaskurði. Eri-
iðust er vegalagningin í Mið-Ameriku.
Þar verður vegurinn að liggja yfir
botnlaus fen og háa fjallgarða á víxl,
og loftslag er mjög óholt á þessum
slóðum, eins og kunnugt er frá því
að Panamaskurðurinn var gerður.
Það er talið að akvegur þessi fái af-
ar mikla þýðingu fyrir samgöngurn-
ar vestan hafs.
Fjelag eitt í Danmörku endurkaus
formann sinn nýlega, þrátt fyrir
það að allir voru óánægðir með
Heldnr
rúmfatnaðinum
dásamlega hvitum.
Alt nudd og núningur, getur ekki gjört þvottinn jafn hreinann
eins og hið óviðjafnanlega sjálfvirka RADION.
Hið fíngerða RADION löður þrengir sjer i gegnum vefnaðinn
og leysir upp öll óhreinindi án þess að skemma þvottinn, og
það er einmitt þessi gagnhreinsun, sem veldur því að flíkurnar
lita altaf út sem væru þær spánýjar.
RADION skaðar ekki hinn allra fíngerðasta vefnað, vegna þess
að RADION löðrið hreinsar fullkomlega, án þess að þvæla þvott-
inn og vatnið þarf ekki að vera nema volgt, má jafnvel vera kalt.
LEVHR BROTHERS, PORT SUNLIGHT, LIMITED, ENGLAND.
hann. Þetta var sparnaðarráðstöfun.
Svo stóð nefnilega á, að á brjefsefn-
um fjelagsins var nafn formannsins
prentað undir heiti fjelagsins, eg
það voru enn eftir 600 brjefsefni.
Hver veit nema formaðurinn verði
endurkosinn næsta ár, ef hann spar-
ar pappírinn.
Fyrsta vekjaraklukkan, sem gerð
var í heiminum gengur enn. Hefir
híin gengið í meira en 300 ár.