Fálkinn - 30.07.1938, Blaðsíða 15
F Á L K I N N
15
Krónprinshjónin við Gullfoss.
Frá Isafirði fóru krónprins-
hjónin áfram með skipinu til
Siglufjarðar og Akureyrar, þar
sem þau munu dvelja eitllivað.
Er ákveðið að þau fari þaðan
austur í Mývalnssveit, en snúi
siðan við til Reykjavíkur. Fara
þau landleiðis hingað suður og
er ráðgert að þau fari frá Ak-
ureyri á föstudagsmorguninn.
Verður gist í Reykjaskóla i
Hrútafirði á laugardagsnóttina
og haldið síðan suður, um Akra-
nes og komið lil Reykjavíkur
að kvöídi laugardags. Næst-
komandi sunnudag og mánudag
dvelja þau hjer i bænum að
öðru leyti en því að þeim verð-
ur sýndur Þingvöllur. Á sunnu-
fíeysir skemtir krónprinshjónuninn.
daginn fer frarn hjer í bænum
mjög fjölmenn skrúðganga í-
þrótlamanna og íþróttakvenna
í tilefni af dvöl þeirra hjer og
á eftir fara fram fimleika- og'
glímusýningar.
Áleiðis til Kaupmannaliafnar
fara þau svo á mánudagskvöld.
— Um undirbúning komu
krónprinsbjónanna hafa annast
tveir nienn, þeir Haraldur Árna
son kaupmaður og Ragnar E.
Kvaran landkynnir. Munu þeir
hafa gert sjer mjög far um að
för þeirra hjer mætti takasl
sem best. Er vel ef ferð krón-
prinsbjónanna verður þeim á-
nægjuleg, því að það er islenska
ríkinu til sóma.
Guttormur J.
Guttormur J. Guttormsson
skáld úr Vesturheimi er nú
staddur hjer á landi til nokk-
urra vikna dvalar og er för
hans kostuð að öllu leyti af
íslendingum. Er dvöl hans einn
þáttur í þeirri starfsemi að
auka kynni Vestur-lslendinga
af heimalandinu. — Guttormur
skáld er af merkri ætt úr Múla-
þingi. Afi hans var hinn mikli
hjeraðshöfðingi Guttormur Vig-
fússon, stúdent og alþingismað-
ur á Arnheiðarstöðum. Faðir
Guttorms skálds, Jón Guttorms-
son, flutti til Kanada ásamt
konu sinni árið 1875 og nam
land við íslendingafljót í Nýja-
Islandi. Reisti Jón þar bæ og
kallaði Víðivelli.
Þar fæddist Guttormur árið
1878, og er hann því innbor-
inn Kanadamaður. Foreldrar
hans dóu, þegar hann var barn
að aldri, og mun ofreynsla og
þröngur kostur landnámsár-
anna hafa valdið því, að þau
dóu um aldur 'fram. Auk þess
sem hióðir lians leið mjög af
heimþrá.
Hins unga drengs biðu nú
erfiðir tímar eins og ætla má.
Fór liann víða og vann ýms
störf, en festi ekki yndi fyr en
hann keypti föðurleifð sína,
Víðivelli, 1911, þar sem hann
liefir rekið búslcap síðan með
dugnaði og áhuga. Sjálfur hefir
hann unnið óspart að honum,
enda leynir sjer ekki, að Gutt-
Guttormsson
ormur er vinnulúinn maður. —
Siðan Stefán Klettafjallaskáld
dó hefir Guttornmr skipað önd-
vegi meðal islenskra skálda í
Vesturheimi. Hefir hann ort
fjölda kvæða, skrifað mörg leik
rit og söguljóð þó að fæst af
verkum hans sjeu kunn hjer á
landi. Það var Þorsteinn Gísla-
son skáld og ritstjóri, sem fyrst
kynti hann hjer heima með því
að birta eftir hann kvæði og
leikrit í „Oðni“ fyrir allmörg-
um árum. Þar á meðal leikrit-
Áttatíu ára afmæli eiya í næsta mánuði hjónin Margrjet Sig-
urðardóttir og Guðmundur Guðmundsson, Margrjet 1. ágúsl,
Guðm. 20. ágúst. Heimili þeirra er að Grettisg- 70 hjer í bænum■
Pjetur Ottesen, alþm. verður
50 ára 2. ágúst.
in: Hringurinn, Hinir höltu,
Spegillinn og Hvar er sá vondi?
—- Og ennfremur mörg kvæða
hans, sem vöktu mikla athyglj.
Framan af æfinni þótti Gutt-
ormur glettinn og ádéflSnn i
skáldskap sínum, en er nú með
aldrinum orðinn alvarlegri og
mildari.
Það má undur heita af manni,
sem aldrei hefir fæti stigið á
islenska mold að liann skuli
tala svo góða íslensku, að
vart verði Iieyrt annað en hann
sje „innfæddur“. En svo er um
Guttorm. Sýnir þetta best hvi-
líka rækt hann hefir lagt við
íslenska tungu. Og er ekki of-
mælt þó að sagt sje að íslenskt
mál og menning á góðan full-
trúa í Vesturheimi þar sem
Guttormur er. Þetta hefir ís-
lenska þjóðin líka viðurkent
með þvi að bjóða hönum heim
fyrstum manna með styrk al'
fje því, sem ríkið leggur fram
til eflingar samstarfi íslendinga
vestan hafs og austan.
Alla æfi hefir Guttormur þráð
að líta augum land feðra sinna
og það er fyrst nú þegar liann
stendur á sextugu að sú þrá
hans rætist. Verður þessum á-
gæta landa væntanlega alstað-
ar vel fagnað á ferðum Iians
um ísland.
Isak Jónsson, kennari við Kenn-
araskólann, verður fertugur 31.
júlí.
Frú Vigdís Þorvarðardóttir frá
Varmadal, Rangárvöllum, txú til
heimilis Frakkastíg 15, verður
70 ára 31. þ. m.
Surrealisti einn í New York hefir
krafist þess að málverk hans verði
tekin af safni einu þar í borginni,
vegna l>ess að þar er málverk eftir
brjálaðan mann.
Kona í New Jersey braust inn i
suniarhús eitt og af þvi að hún gat
ekki stolið þar neinu sem lnin gat
tekið með sjer, hringdi hún til hús-
gagnasala og seldi honum iunbúið
úr húsinu fyrir 200 dollara. Það var
1000 dollara virði.
Máfar, sem elta skip fara að jafn-
«ði ekki lengra en 40 km. frá landi.