Fálkinn - 08.10.1938, Page 11
F Á L K I N N
11
VHR/Vtf
LC/CHbURHIIt
Tennis — en með nýrri aðferð.
Amerískur tennisspilari hefir heið-
urinn af því að hafa fundið upp að
spila terims ineð ballón-knetti. Hug-
myndin er i því fólgin, að óholur
gúnnníknötlur (mynd 1) er boraður
i gegn og dregið í gegn um hanri
sívalt teygjuband, eins meters langt,
í liinn endann á baridinu er fest
loftblaðra af því tagi, sem leikfanga-
búðir hafa jafnan lil sölu. Ef maður
æfir sig með slíkrim bolta, hefir það
marga kosti: Það nægir styttri völl-
ur en annars; nel kring um Jeik-
völlinn er óþarft, þar eð boltinn
þeytist ekki langt — hversu fast
sem hann er- sleginn.
Lciðin til þess að verða tennismeistari.
Við vitum Öll, að það þarf lang-
varandi æfingu til þess að ná leikni
í tennis. Það er mjög áríðandi frá
byrjun að æfa öll grundvallaratriði
á rjettan liátt. Þessvegna ætlum við
nú að dvelja við frumatriðin í tennis-
leik, sem sje hvernig eigi að liand-
leika bolta og spaða.
Það er nú alls ekki svo auðvelt,
að þið þurfið að gera lítið úr slíkri
leiðbeiningu. Mynd I sýnir hvernig
„boltinn er gefinn upp“. Punktalín-
an sýnir, hvernig maður byrjar
hrey-finguna litið yfir mjaðmarhæð
og sleppir boltanum þá fyrst þegar
hann er í hökuhæð. Boltanum er
þvinæst kastað í smáboga í rúmlega
liöfuðhæð og snertir með þessu móti
jörðina fyrir framan spilarann. Þeg-
ar boltinn hefir lioppað frá jörðinni,
og svo sem i mjaðmarhæð, liggur
hann mjög vel fyrir heppilegu for-
liandarliöggi.
Gott liögg er þýðirigarmikið og
mynd 2 sýnir, hvernig því verður
náð. Punktalínurnar tvær sýna sam-
ræmið á hreyfingu boltans og spað-
ans — taktu eftir að boltinn á að fara
upp í loftið beint yfir vinstri öxl
spilarans.
Tennisdrotningin Helen Wills Mody
gefur nokkur góð ráð.
1) Sjáðu um það, að lireyfingar
liínar á tennisvellinum sjeu frjálsar
og óþvingaðar — ímyndaðu þjer, að
knje þín og liðamót sjeu nýsmurð.
2) Fylgdu altaf boltanum með aug-
unum — jiað er gott ráð, sem alt
of sjaldan er 1‘ylgt. ■—
3) Láttu líkamsþungann livila á
framanverðum fótunum f— það þýðir
þó ekki það, að þú eigir að standa
á tánum.
4) Milli högganna skaltu láta spaða
endann hvíla í vinstri hendi, það
veitir nokkra hvíld og betri stjórn
á boltanum.
5) Lóttu spaðann fylgja hverju
höggi eftir — það þreytir að reyna
að draga úr högginu.
(i) Ef þú hefir hröklast út í liorn,
hugsaðu þá vel um, hvar þú getur
setl boltann, svo að hann geti bætt
úr aðstöðu þinni: Sláðu ekki boltann
út tilgangslaust í von um, að hepnin
ímui veita þjer vinning.
7) Reyndu altaf að reikna það út,
livar mótspilari þinn liugsar um að
slá sinn bolta. Það er gott að gæta
vel að stöðu mótspilarans, í livaða
átt likami lians snýst og hvernig
höfuð liaris snýr.
8) Harðni leikurinn, þá gættu þess
að anda djúpt. Þá missir þú ekki
andann — en heldur þó jafnaðargeði
þínu.
9) Reyni mótspilarinn að herða á
leiknum — þá kyrðu hann aðeins
með því að slá ljett högg. Og það
skeður oft, að hann æðir á boltann
til að „slá hann dauðann“, en slær
honum í netið í staðinn •— eða þá
út fyrir. ,
10) Gerðu spil þitt sem breytileg-
ast. Skiftu um bolta, stöðu og lireyf-
rrigar, svo að mótspilarinn venjist
þjer ekki um of.
11) Gefstu aldrei upp við bolta.
Enda þó ómögulegt virðist að hjarga
lionum, þá getur góð tilraun hepnast.
Aðferð sem sýnir hvernig hægl er
að breyta á svipstundu ferhyrndu
pappírsblaði í drykkjubikar.
Pjetur er að fara í leikhúsið með
Unnustunni sinni. Hann rjettir frakk-
ann sinn yfir diskinn i fatageymsl-
unni og segir um leið:
— Fæ jeg ekki tiu krónur út á
hann eins og seinast?
— Fyrsta skilyrðið tit að lialda
heilsu er að fara snemma áð háfta.
— Það skil jeg ekki. Jeg fór að
liátta klukkan 7 í morgun en samt
líður mjer bölvanlega.
Dómarinn: — Lögregluþjónninn
segir, að þjer hafið verið fullrir og
reynt að klifra upp luktarstólpa.
Sakborningurinn: — Já, herra
dómari, það voru þrír krókódílar að
elta mig og jeg vissi ekki hvernig
jeg átti að komast undan þei'ni.
GÚSTAF ADOLF KRÓNPItlNS
Svia fór vestur um haf i júní til þess
að koma fram sem fulltrúi þjóðar
sinriar á 300 ára landnámsafmæli
Svía í Bandaríkjunum. En á leiðiiini
varð liann veikur og varð að fara
beint á spítala þegór vestur kom,
vegna blöðrusteina. Kom hann því
ekki á hátíðina, en gat haldið ræðu
i útvarp úr rúmi sinu um borð i
Kongshohn, meðaii skipið stóð við
i Boston. Gustaf Adolf er talinn
snjallasti ræðumaður allra konung-
borinna manna á Norðurlöndum og
mirinast margir hjer á landi ræða
þeirra, sem hann flutti er hann var
lijer á Alþingishátíðinni.
GIGTIN SIGRAÐI NAPOLEON.
Það er sagt, að Napoleon hafi
verið slagaveikur. Á efri árum lians
ásótti fitan hann, en bariómein hans
var krabbamein. En það var lenda-
gigt, sem gerði út af við hann hern-
aðarlega. Að vísu fjekk hanil aldrei
þennan sjúkdóm sjálfur. En hertog-
inn af Wellington fjekk svo ákafa
lendagigt þegar hann var austur í
Indlandi að hann varð að fá lieim-
fararleyfi, og hann kom heim alveg
mátulega til þess að geta tekið við
yfirstjórn hersins, fyrir orustuna við
Waterloo. Og afleiðingar hennar
þekkja allir.