Fálkinn - 29.10.1938, Síða 2
2
F Á L K I N N
-------- GAMLA RlÓ --------------
Sendiboði forsetans.
Ahrifamikil og spennandi amer-
isk stórmynd, tekin af Para-
mount undir stjórn Frank
Lloyds þess sama sem stjórn-
aði myndatöku „Cavalcades,“
sem fjölda margir muna eftii
enn þann dag í dag.
Aðalhlutverkin leika:
J,OEL MC CREA,
FRANCES DEL,
BOR BURNS.
Myndin verður sýnd um helgina.
Gamla Bíó sýnir um helgina Par-
mount myndina SendiboÖi forsetctns.
og er hún tekin eftir skáldsögu
Stuart N. Lake, undir stjórn hins
fræga kvikmyndastjóra, Frank
Lloyds.
Efni myndarinnar gerist í Banda-
ríkjunum fyrir miðja 19. öld, þeg-
ar ])au voru vart annað en austur-
ríkin, því að samgöngur inn í land-
ið voru að heita mátti engar. Og
meðan samgöngur allar voru í ó-
lagi sköpuðust ekki skilyrði fyrir
neinn framgang á hinu efnahags-
lega sviði.
Marga dugmikla Ameríkumenn
drcymir landnám í hinu „vilta
vestri“. Og tveir þeirra Wells og
Fargo láta verða úr því, og ráða
marga menn i þjónustu sína. Einn
þeirra, Ramsay MacKay kemur mest
við þessa mynd, og er sannkölluð
söguhetja. Hann vinnur mörg dáða
verk vestur á preríunni. Þar takast
ástir með honum og ungfrú Justinc
Pryor. Hún er dóttir loðfeldakaup-
manns, sem Ramsay hefir bjargað
frá dauða.
Ástir Ramsay og Justine eru ekki
opinberar vegna föður hennar, sem
liefir hugað dóttur sinni annan
ráðahag. Hún á að giftast Talbot
Carter, ungum liðsforingja úr Suð-
urrikjunum, sem er æskuvinur henn-
ar.
Meðan Ramsay var á skrifstofu
firmans Wells og Fargo i St.-Louis
fekk hann mörg tækifæri til að hitta
Justine. En það verður ekki lengí,
því við gullfund mikinn í Kaliforniu
er Ramsay sendur þangað af firm-
anu.
Þegar nú dregst afturkoma hans,
fer Justine þangað og gifta þau sig
siðan i San-Francisco, sem þá er
að byrja að vaxa.
Aðeins hátft ár fá þau að njóta
þar hjúskaparsælunnar, því að nú
er Ramsay „færður til“. Enn er
myndin rik af merkisatburðum. Þvi
að nú brýst borgarastyrjöldin úi,
milli Nprðurríkjanna og Suðurríkj-
anna, á forsetaérum Abraliams Lin-
coln.
Myndin Sendiboöi forsetans er
sem heild stórslegin og áhrifarík,
enda standa að henni ágætir kraftar.
Kettir fóstra yrðlinga.
Á silfurrefabúi skamt frá Holbæk
kom fyrir dálitið óhapp fyrir
skömmu. Á búinu voru GO nýfæddir
yrðlingar, en nú vildu sumar læð-
urnar eta ungana og þvi var úti
um þá, ef ekki var hægt að útvega
eftir köttum í nágrenninu, sem
þeim fóstur. Það var farið að leita
höfðu nýlega gotið, til að fóstra
yrðlingana, en þá var ekki að fá.
Refaeigandinn fann því upp á því
að auglýsa í útvarpinu og skoraði á
kaltaeigendur að leigja búinu ketti
i þessu skyni. Þetta hreif. Sama
kvöldið komu hundrað tilboð úr
ýmsúm áttum, sum atla leið frá
Norður-Jótlandi, og svo ók bíll um
þvert og endilangt Holbæk amt til
að safna saman köttum, er vera
skyldu fóstrur hinna bágstöddu yrð-
linga.
Hjónin Sigríður Magnúsdáttir og Magnús Þorsteinsson, járn-
smiður, frá Kotsholtshelli í Flóa, nú til heimilis Bergþárugötu
10, Reykjavík, eiga gullbrúðkaup 2. nóvember næstkomandi.
Gultbrúðkaup áttu 26 þ. m. Snæbjörn Jakobsson og Málfríður
Bjarnadóttir, Norðurbraut 27 B, Hafnarfirði.
Lárensína Lárusdóttir, Njáls-
götu 32 B., verður 65 ára 1. nóv.
Jóhannes Guðjónsson, Nýlendu
götu 22, verður HO ára 30. okt
Frú Sigriður Jónsdóttir frá Ey-
vindarmúla í Fljótshlíð, varð
75 ára 27. þ. m.
Ingibjörg Oddsdóttir, Skóla-
vörðustíg 22. C., varð 70 ára
27. þ. m.
„Manhattan Cocktail", sem Nýja
Bíó sýnir næstu daga er ein af þess-
um stórkostlegu, íburðarmiklu kvik-
myndum, sem Ameríkukvikmyndafje-
lögin ein geta skapað.
Myndin gerist í heimsborginni
New York, í geysistóru magasíni,
þar sem glæsilegar tískusýningar eru
haldnar og töfrandi fegurðargyðj-
ur sýna sig. Samfara þessum sýr,-
ingum er hið ótrúlegasta skart og
skraut er varla á sinn líka.
„Manhatlan Cocktail“ hefur hlotið
óskift lof flestra stórblaða heims og
farið sigurför frá einni heimsborg-
inni til annarar.
Efni myndarinnar var að nokkru
leyti rakið i síðasta tölublaði „Fálk-
ans“.
Páfinn sagði nei.
l-ranska skopblaðið „Marianne'
birtir eftirfarandi smásögu, sem
Parísarbúar henda gaman að.
Páfinn kom gangandi gegn um
Vatikangarðinn, og var Ameríku-
maður í för með honum.
Kardínáli nokkur gekk framhjá
þeim og heyrði þessa samræðu:
Ameríkumaðurinn: 100,000 doll-
ara!
Páfinn: Nei!
Ameríkumaðurinn: Miljón dollara!
Páfinn: Nei!
Ameríkumaðurinn: Tíu miljou
dollara!
Páfinn: Nei!
Ameríkumaðurinn kvaddi og fór.
Jafnskjótt og hann var farinn gekk
kardinálinn til páfans og sagði við
hann: — Heilagi faðir! Hversvegna
voruð þjer svona mótfallinn tilboði
hans? Hugsið þjer yður bara livað
við hefðum getað gert fyrir tíu mil-
jón dollara! Bygt nýja skóla, ný
klaustur, ný sjúkrahús!
Já, sagði páfinn og kinkaði
kolli. En það var ómögulegt. Hann
vildi fá mig til að sleppa orðinu
Amen úr prjedikunum mínum og
setja í staðinn: Shell-Bensin er best!
Allt með Islenskum skrpum1 *f«|