Fálkinn - 29.10.1938, Page 15
F Á L K I N N
15
Fermingarkort!
Gott úrval.
Bókaverslun
Sigurðar Kristjánssonar,
Bankastræti 3.
Cérðbréfabankin
(^ustuvstr. 5 símt 5652.Opið ki.11-12oq1.‘
9
Selur VEÐDEILDARBRJEF
1., 7., 8., 9., 10. og 11. flokks. Ennfremur Kreppulána-
sjóðsbrjef og Kreppulánasjóðsbrjef bæjar- og sveitarfje-
laga. Kaupir hlutabrjef Eimskipafjelags íslands h.f. og
Útvegsbanka íslands h. f. — Annast allskonar verðbrjefa-
viðskifti.
Höfundur Carmen hundrað ára.
Núna í vikunni voru hundrað ár
liðin frá fæðingu franska tónskálds-
ins Georges Bizet, sem flestir minn-
ast fyrst og frenist i sambandi við
hina ódauðlegu óperu „Carmen,“
þó margt fleira lægi eflir þennan
óvenjulega snilling tónanna. Bizet,
sem annars ekki hjet Georges að
förnafni heldur eftir sankti Georg
þeim, sem átti vi'ð drekann drakk
inn í sig tónlistina á barnsaldri,
þvi faðir hans var hljómlistarkenn-
ari og móðursystir hans fær slag-
hörpuleikari. Að loknu námi á tón-
Jistarskóla fór Georges Bizet til frek-
ara náms til Ítalíu og þegar hann
kom l>aðan heim var fyrsta ópera
hans „Perlukafararnir", leikin og
náði þó engri viðurkenningu og sama
mátti segja um næstu tvo söngleiki
hans. Þá kom sú óperan, sem Bizet
sjálfur trúði hest til sigurs: Carmen.
En leikhúsgestirnir i París tóku
þessu undurfagra verki með stappi
og blistri. Það er talið, að þær við-
tökur hafi gengið svo nærri höf-
itndinum, að þær hafi flýtt fyrir
dauða hans. Hann dó aðeins 37 ára
gamall, árið 1875, og upplifði aldrei
að sjá hinum fræga söngleik sinum
fagnað af leikhúsgestum. Svo geta
tímarnir og almenningsdóníulrinii
breyst. Nú á fólk bágt með að trúa,
að „Carmen“ væri úthrópað, nema
þá leik og söng væri um að kenna.
Iín þvi var ekki til að dreifa. Og
tónarnir voru þeir sömu þá og nú.
En svo vel sem tónarnir í „Carm-
en“ láta í eyrum nú, þá feldi fólk
sig ekki við þá í þá daga. Gounoud,
sem var 20 árum eldri en Bizet var
i mestu afhaldi franskra tónskálda
i þá daga, þó ekki ynni liann sigur
sem óperutónskáld fyr en með
„Faust“ (sem rjettu nafni heitir
„Marguerite") árið 1859. Bizet var
honum allólíkur, þótti ekki eins
hlíður og viðkvæmur, og tilraunir
hans til þess að skapa verkum sín-
uin ákveðin litblæ eftir umhverfinu,
voru misskildar. Og um „Carmen“
má sjerstaklega geta þess, að þar
var raunsæilegt efni tekið til með-
ferðar, í stað þess æfintýralega og
uppgerða, sem að jafhaði var notað
sem efni i óperutexta í þá daga.
Öperan var æfjntýri í gullnum
skrúða og fólkið vildi hafa það svo.
í „Carmen“ birtist römm manniífs-
lýsing, sem í þokkabót er átakanleg
harmsaga. Efnið er úr sögu eftir
Prosper Merimée og þó það sje að
visu nokkuð mildað í óperutextanum.
|>á stendur þó óbreytt j>að, að zi-
gaunastelpan Carmen ginnir Don
•losé liðsforingja eins og fífl, og
veldur því, að hann verður að flýja
úr hernum og legst út með flökku-
lýð og smyglurum suður í Pyrenea-
fjöllum, í von um að hitta Carmen
aftur. En þá hefir hún Iagt lag sitt
við nautabanann Escamilto og dreg-
ur dár að Don José, sem hefir fórn-
að öliu og brotið allar brýr að baki
sjer til þess að njóta ástar hennar.
Og endalokin verða þau, að í hams-
lausri afbrýðissemi drepur Don José
Carmen fyrir után nautavigasviðio,
n.eðan söngur nautabanans ómar inn-
an að frá leiksviðinu. Alt er þetta
í samræmi við sögu Merimées, en
Michaela bóndadóttir, sem ann Don
José fölskvalaust og er geðþekknsta
STRAUJ&RN
SEM HUGSAR!
Raf magnsjárn með hita-
stilli. Sterkur straumur
fyrir þykt og blautt
efni, minni fyrir þunt
og viðkvæmt tau. Hit-
inn helst ávalt jafn og
er því brunahætta úti-
lokuð. Nýjasta nýtt á
þessu sviði.
SIEMENS
Fermingar fara í hönd.
Höfum úrval af góðum bókum, hentugum til fermingargjafa-
Gröfum ókeyjns á lindarpenna og gyllum ókeypis á sálma-
bækur keyptar #a\IFPOf Munið að koma
bjá okkur. æfinlega fvrst í
Sími 4527.
Sími 4527.
Austurstræti.
persóna leiksins, er ekki lil í sög-
unni. Hún er ný í leiknum og sett
þar sem andstáeða hinnar svikulu
þokkadrósar, Carmen.
Breytingarnar eru auðsjáanlega
gerðar til ]>ess að milda efnið og
gera það viðfeldnara. En samt of-
bauð öllum að sjó svona efni i óperu
í þá daga. Og tók það út yfir allan
J)jófabálk er leikstjórnin ljet leik-
endurna koma fram klædda flökku-
kindabúningum. Það reið leiknum
að fullu. Það var ekki fyr en Carm-
en og aðrir höfðu verið íklæddir
glitrandi skrúða, að fólkið ljet sigr-
ast af „Carmen."