Fálkinn - 05.11.1938, Qupperneq 2
2
F Á L K 1 N N
Vírdregin efni (Brocade)
gylt og- silfrað, til samkvæmisnotkunar,
bæði við kjól og- peysuföt.
Biðjið vini yðar í Reykjavík að velja
fyrir yður. Við sendum gegn póst-
kröfu hvert á land sem er.
CHIC
Reykjauík — Bankastrœti 4
-------- GAMLA RÍÓ -------------
sýnir á næstunni
„Gott land“.
Heimsfræg Metro-Goldwyn-May-
er-kvikmynd gerS eftir hinni
alktinnu sögu PEARL S. BUCK.
ASalhlutverkin, O-lan og Wang
Lung leika:
LOUISE RAINER
og
PAUL MUNI.
Gamla Bíó sýnir nú uin þessar
mundir kvikmynd, er marga mun
langa til að sjá. Er myndin sam-
nefnd liinni frægu bók Pearl S.
Buck „Gott land“, er gefin var út á
íslensku fyrir tveimur árum, í þýð-
ingu þeirra nafna, Magnúsar Ás-
geirssonar og Magnúsar Magnússon-
ar, enda er kvikmynd sú er lijer
um ræðir tekin eftir þeirri bók.
Bókin hlaut hjer mjög miklar vin-
sældir og ekki mu;nu vinsældir
kvikmyndarinnar minni.
Nafn kvikmyndafjelagsins er sá
um kvikmyndunina á Gott land, er
næg sönnun fyrir því, að ekkert
hefir verið til sparað að gera hana
sem best úr garði, en fjelagið var
Metro Goldwyn. Höfitð hlutverkin,
Wang-Lung og O-lan eru leikin af
Paul Muni og Louise Rainer. Paul
Muni hlaut heimsfrægð fyrir nokkru
með leik sínum í Dreyfusmyndinni,
þar sem hann ljek skáldið Emile
Zola.
Það er ef til vill óþarft að minna
á nokkur atriði í efni myndarinnar,
þar sem allur þorri kvikmyndahús-
gestanna hefur lesið söguna, en þó
vill biaðið gera það með örfáum
orðum.
Ung kínversk hjón lifa við mikla
fátækt, eins og flest bændafólk í
Kína hefur löngum gert. En fynr
dugnað þeirra verða þau bjargálna
fólk, og alt virðist benda til ])ess
að þau geti haldið hungurvofunni
frá dyrunum á komandi árum.
En þá dynja ósköpin á. Ógurlegir
þurkar ganga yfir landið svo að
frjósöm jörð verður að berri og
blásinni eyðimörk og í kjölfar þess
kemur svo luingrið.
Eftir hræðilegustu hungursneyð
fara þau suður i land ásamt börnum
sinum og setjast að í stórborg, þar
sem O-lan og börnin betla, en Wang-
Lung er kuli (burðarkarl).
í borginni finnur O-lan verð-
mikla dýrgripi, o,g fyrir þá kaupa
þau góðan landskika. Vænkast hag-
ur þeirra næstu árin, þvi að þá cr
óslitið góðæri, og setja þau syni
sína til menta.
En nú hallar á ný undan fæti
fyrir þeim, þvi að Wang-Lung verð-
ur ástfanginn af dansmeynni Lotus,
ótrúrri og rótlausri kvensnift. — En
þrátt fyrir það er O-lan altaf sami
góði lífsförunauturinn.
Skin og skuggar skiftast á í þess-
ari mynd. Hún talar til áhorfend-
anna frá upphafi til enda á mjög
áhrifaríkan hátt, og mun lengar
geymast í minninu en flestar aðrar
myndir er hjer hafa sjest.
kristinn Guðlaugsson oddviti,
Núpi, Dýrafirði, verður 70 ára
13. þ. m. Þann 't. júní s.l. átti
kona hans, Rakel Sigurðardótt-
ir, einnig 70 ára afmæli.
Sigurður Guðbrandsson, Garð-
húsum, Stokkseyri, varð 60 ára
25. f. m.
Markús Sigurðsson, húsasmiður,
Miðstr. 8, verður 60 ára h. þ. m.
FLUGVJELAVERKSMIÐJA
NUFFIELDS LÁVARÐAR.
Nuffield lávarður er að byrja
byggingu á risastórri flugvjelaverk-
smiðju. Á myndinni sjest hann í
samtali við enska flugmálaráðherr-
ann Sir Kingsley Wood, þar sem
ráðherrann er að taka fyrstu skóflu-
stunguna að greftri verksmiðjunnar.
EDDIE CANTOR
heitir amerísk kvikmyndahetja. —
Hann var nýlega á i'erð í London,
og sýnir myndin hann mitt i hópi
aðdáenda sinna.
Hundur, sem var á sundi við
strönd Ástralíu varð fyrir hákarli,
sem rjeðist á hann. Hundurinn lagði
til bardaga við ófreskjuna og rak
hana ó flótta, en við það særðist
hann svo mikið, að hann fjell dauð-
ur niður, þegar hann náði landi.
------ NÝJA bíó. -----------
Siprvegarlim
frá Hampton Roads.
Sænsk stórmynd er sýnir þætti
úr sögu sænska hugvitsmanns-
ins heimfræga John Ericsson. ..
Aðalhlutverkið John Ericsson
leikur frægasti núlifandi leikari
og leikstjóri Svía:
VICTOR SJÖSTRÖM.
Leikurinn fer að mestu leyti
fram í Bandaríkjunum órin 1858
—(54.
Á kvikmyndahúsunum í stórborg-
um Norðurlanda gekk i fyrra vetnr
sænsk kvikmynd, er lilaut hvar-
vetna hina ágætustu dóma. Þessi
mynd hjet Jvhn Ericsson og var
um hinn lieimsfræga sænska vjel-
fræðing og hugvitsmann með þessu
nafni. Sá Victor Sjöström um upp-
töku myndarinnar og Ijek aðalhlut-
verkið, Ericsson sjálfan. Er Sjöström
íslenskum kvikmyndavinum löngu
lcunnur, m. a. af því að hann gerði
myndina af Fjalla-Eyvindi og ljek
hann.
Kyikmyndin John Ericsson er nn
hingað komin, og ætlar Nýja Bíó að
byrja á að sýna hana einhvern næstu
daga undir nafninu Sigurvegarinn
frú Hampton fíoads. Hefði farið
betur á því að nafn myndarinnar
væri óbreytt, þó að litlu ináli skifti.
John Ericsson var fæddur í
Vermalandi árið 1803. Var faðir
hans ríkur námueigandi. Strax í
bernsku komu í ljós hjá drengnum
undraverðir hæfileikar í öllu er
viðkom vjelum og vjelaverkfræði.
Innan við fermingu var hann við
riðinn byggingu Gautaskurðarins
með því ,að gera ýmsar jnerkilegar
teikningar af þessari iniklu lífæð
Svíþjóðar.
Sem fulltíða maður gekk hann í
herinn og varð þar liðsforingi, en
1826 fór hann til Englands og leit
ekki ættjörð sína eftir það. í Eng-
lnndi gerði hann ýmsar merkilegav
uppgötvanir. 1829 tók hann þátt i
samkepni um endurbætur'á eim-
vrgninum, en varð að lúta í lægra
haldi fyrir G. Stephenson. En þó
þótti hugvitssemi Ericssons svo fró-
bær að nafn hans var á allra vörum.
Skömmu síðar gerði hann svo miki-
ar endurbætur á skipsskrúfunni, að
litlar breytingar hafa verið á henni
gerðar siðan. En breytingum lians
var illa tekið, svo að Ericsson liristi
dustið af fótum sjer og fór til Am-
eríku og dvaldi þar það sem eftir
var æfinnar. Meðan hann ótti þar
lieima skall borgarstyrjöldin i Banda-
rikjunum á, Ericsson var ákveðinn
Norðurríkjamaður og hinn liaið-
snúnasti andstæðingur alls þræla-
Iialds. Kom hugvit hans Norðurrikj-
Framh. á bls. 15.