Fálkinn


Fálkinn - 05.11.1938, Blaðsíða 14

Fálkinn - 05.11.1938, Blaðsíða 14
14 F Á L K I N N TJEKKÓSLÓVAKÍA. Framh. af bls. 5. var haldinn í, voru alveg komnir að því að sleppa sjer á þeim fáu ininútum, sem voru nauðsynlegar, til þess að skrá samþykt stjórnar- leiðtoganna. Þeir vissu ekki fram á síðustu sekúndu, hvort þeir ættu að hrópa: frið eða stríð! Nú vita allir, að þýski herinn tók við Súdetahjer- uðunum í 4 köflum og að svæði þetta mun vera afhent þýskum yfir- völdum einmitt þessa dagana. Tjaldið er fallið. Tjekkóslóvakía komst ekki hjá því að iáta af hendi Ví af því, sem lnin hafði fengið yfir að ráða við stofnun lýðveldis síns á grundvelli Versalasamninganna. Hin ríkin, sem höfðu staðið að Versala- samningunum, þóttust ekki geta á- byrgst lengur eign hennar í þeirri niynd sem jnni höfðu sjálf ákveðið hana. í Tjekkóslóvakíu er komin ný stjórn eftir að dr. Benes sagði af sjer, af því að hanh vildi ekki sjá verk sitt í rústum. Hin nýja stjórn vinnur nú þegar að víðtækum ráð- stöfunum og samningum, sem eiga að tryggja rikinu, eins og það er nú, frið, velgengni og sjálfstæði. Þetta mun hepnast, því að landið, þó að það sje orðið minna, er ekki orðið verra. Það hefir losnað við óróa- svæði. Fjárhagslegt öryggi landsins er tryggara en áður: hin bestu land- búnaðarsvæði eru eftir, og liið ný- stofnaða iðnaðarsvæði. Af málmiðn- aðinum hefir lándið ekki tapað nema 18%. Það virðist ekki vera nokkur vafi á þvi, að hin nýja stjórn Tjekkó- slóvakíu muni gera ríki sitt að var- anlegum lið í friðsamlegri samvinnu lijóðanna i Miðevrópu. Hún á einnig miklar þakkir skilð — eigi síður en stórveldin sem komu sjer saman um frið á hennar kostnað. H. Þ, betty BOOP SALLY SWINO+ Fræg leikkona dregur sig i hlje. Sally Swing kemur í staðinn fyrir hina „ósiðlegu“ Betty Boop. Betty Boop, sem er fræg úr teikni- kvikmyndum Max Fleischer, dregur sig nú i hlje í kvikmyndaheiminum, þar sem lnin hel'ir haft miklar vin- sældir árum saman. Að sögn er lnin álitin mjög ,,ósiðleg“, einkum í Frakklandi. Þar eð liún hefir vakið gremju víða í Ameriku hefir Max Fleischer nú slept hendi af henni. Hann hefir skapað nýja veru, sem hann kallar Sally Swimj. í haust fær fólk að sjá nýju stjörnuna, glatt stúlkubarn, sem áreiðanlega mun vinna allra hjörtu. Hún er skemtileg án þess að vera Ijettúðug. Það er vandasamt að vera stjarna, jr.fnvel í teiknikvikmyndum. Betty Boop er búin að vera — lifi Sally Swing! l)r kvikmyndaheiminnm. Bardaginn milli lækna og skottulækna. Peter Petersen og Paula Wessley í „Spegill lífsins.“ Dagblað eitt beindi ekki alls fyrir löngu þeirri spurningu til lesenda sinna: Hvaða leikkonu eigið þjer að þakka skemtilegustu kvikmynda- kvöldin, sem þið hafið átt? Meðal þeirra, sem flest alkvæðin fengu, var Puula Wessely. Einn af þeim, er svör sendu, komst svo að orði: „Jeg dáist að Paulu Wessely. Hún er altaf eðlileg og gerir mig ánægð- an. Að minni skoðun er hún imynd hinnar þýsku góðlátu konu.“ — En það er ekki aðeins i Þýska- landi að þessi listakona er orðin svo vinsæl, því að Paula Wessely er orðin heimsfræg. Með framúr- skarandi viljafestu og dugnaði lifir hún sig inn í hlutverk sín, svo að persónurnar, sem hún leikur verða lifandi fyrir áhorfendunum. Paula Wessely leikur nú í nýrri kvikmynd, „Spegill lífsins“ (Spiegel des Lebens) og er hún þar i hlut- verki kvenstúdenls, er les læknis- fræði. Efni kvikmyndarinnar snýst um bardagann milli læknavísind- anna og skottulæknanna. Og þegar nú faðir hennar, sem leikinn er af Peter Petersen, er skottulæknir, en hún sjálf er trúlofuð lækni, lendir hún í slæmri klípu. Hvort það er læknirinn eða skottulæknirinn, sem sigrar, sýnir sig, þegar við fáum að sjá kvikmyndina. Heimssýningin í New York. Allar horfur eru á að þátttaka i heimssýningunni í New York verði óvenjulega mikil. Um nýjár höfðu alls 60 þjóðir undirskrifað samninga um sýningarpláss en margar eiga ef- laust eftir að bætast við. Bandaríkja- menn búast við þátttöku frá svo að segja öllum siðuðum þjóðum í heimi. Hjer á myndinni sjest yfir alt sýn- ingarsvæðið. Hefir verið gerður upp- dráttur að niðurskiftingu þess og fyrsta byggingin er fullgerð og aðr- ar í smíðum. Eftir endilöngu sýn- ingarsvæðinu verður ein aðal-„þjóð- braut" og við hana verða þær 25 byggingar, sem mest ber á á sýn- ingunni. Meðfram hrautinni verður ennfremur fjöldi allskonar högg- mynda eftir fræga listamenn, fimm tjarnir hafa verið búnar til á sýn- ingarsvæðinu og fimm fossar, en gos brunnar eru þar svo hundruðum skiftir. Fjöldi trjáa hefir verið gróð- ursettur til prýði. Aðalljrautin liefir stefnu á Frelsisstyttuna, sem stend- ur á hólma í innsiglingunni að borginni. En fyrir enda þessarar að- alæðar sýningarsvæðisins stendur 65 feta há stytta af George Washing- ton, eftir myndhöggvarann James Earle Fraser. Bak við hana verða fjórar standmyndir sem tákna eiga: ritfrelsið, trúmálafrelsið, samkomu- frelsið og málfrelsið. Þær verða gerðar af myndhöggvaranum Leo Friedlander. Arthur Hays Sulzberger, aðal- ritstjóri „New York Times“ bar fyrst ur fram hugmyndina um þessar myndir og gerði það með þessum forsendum: „Ef við táknmynduðum liinar fernu tryggingar fyrir þjóðfjelags- legu frelsi, gætum við gefið þeim miljónum manna, sem sækja sýn- inguna gagnlega áminningu í sögu. Aminningu um það, að prentfrelsi, trúfrelsi, samkomufrelsi og inál- frelsi eigum við Ameríkumenn að þakka hið sterka þjóðræði vort. Meðan þessar fjórar tegundir frelsis eru hyrningarsteinninn undir stjórn- skipun okkar getum við óttalaust horfst í augu við hvaða vandamál, sem úrlausnar krefst.“ Táknmyndir prent-, trú og sam- komufrelsis verða kvennamyndir, en táknmynd málfrelsisins verður af karlmanni. Meðal annara högg- mynda, sem eftirtekt munu vekja á sýningunni er hópmynd eftir negra- konuna Augustu Savage, sem á að tákna þýðingu svertingja fyrir hljóm listarlífið. FYJÓLFUR KÁRSSON. Framh. af bls. 3. ög var örendur. Lofuðu liana- menn hans þá þegar hreysti hans, svo og Sturla, er þeir sögðu honum hverja vörn hann hefði veilt. En Brandur sá, er hjó undan honum fótinn, orti lof um hann, og mun Eyjólfs Kárssonar minst meðan áræði og karlmenska er i irietum hjá Islendingum. Málverkasýoing Agnete og Sveins Þórarinssonar. Undanfarna daga hafa þau hjón- in Agnete og Sveinn Þórarinsson liaft málverkasýningu í Markaðsskál- anum Hafa þau haft málverkasýn- ingar fyr hjer í bænum, en fullyrða má að þessi er þeirra langfremsi. Á sýningunni eru um sjötiu mál- verk, flest landslagsmyndir. Margar myndir eru úr íslensku atvinnulífi og gömlum þjóðháttum til sveita og ennfremur nokkrar mannamyndir. Mesta athygli á sýningunni vekja hinar tigulegu myndir af Dettifossi, hinum „ægilega, undrafríða" fossi i átthögum Sveins, og þá má ekki gleyma hinu mikla málverki Lesta- ferð, sem allir sýningargestir hljóta að staðnæmast lengi við. Það er ánægjulegt að sjá hve þessi málverkasýning er þjóðleg, og hve vel þeim hjónunum lætur að draga fram sjerkenni þjóðarinnar í atvinnuháttum. Má i því sambandi minna á myndir eins og Heyskapur, Bjettadagur, Ullarþvottur, Rakslr- arkonur o. fl. Reykvíkingar ættu að fjölmenna á þessa sýningu, því að hún á það sannarlega skilið, svo vel sem lil hennar er vandað. List þeirra hjóna verðskuldar al- hygli allra listelskra manna og við- urkenningu þjóðarinnar fyrir ágæt verk.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.