Fálkinn


Fálkinn - 05.11.1938, Page 4

Fálkinn - 05.11.1938, Page 4
4 F Á L K I K N )EÚTSCH ES KÖrt yfir lilut þann af Súdeta-hjeraðiinum, sem Þjóðverjar fengu á dögunum. Hertalmn fór fram i fjórum köflum, sem eru sýndir á kortinu. Fórn Tékkóslóvakíu. JjESSA dagana lýkur þeini þætti veraldarsögunnar, seni var kend- ur við deiluna um Súdeta-hjeruðin, hlut úr hinu tjekkóslóvakiska lýð- veldi, sem haf'ði valdið svo mikilli ófriðarhættu, að eyðileggjandi hild - arleik var ekki afstýrt nema með naumindum á allra síðustu stundu. hykir því rjett að líta enn einu sinni, áður en tjaldið fellur, á einn liinn stærsta aðila þessa máls, ríki það og þjóð þá, sem hefir orðið aó fórna V* af landi sínu og íbúafjölda sínum, til þess að friðurinn gæti lialdist í álfunni: hið tjekkóslóvak- iska lýðveldi. Ríki þetta liggur, sem kunnugt er, í Mið-Evrópu og er að flatar- máli og íbúatölu meðalstórt á mæli- kvarða Evrópuþjóða, en ríki þetta er eitt af yngstu ríkjum álfunnar, 1>. e. sem sjálfstætt ríki. Það var stofnað, að heimsstyrjöldinni lok- inni, árið 1919, eða á þeim tíma, ]>egar flest ríki í Evrópu voru skipulögð að nýju í samræmi við þjóðerni ibúa sinna. Wilson Banda- rikja-forseti var einn aðalstuðnings- maður kröfunnar um þjóðernis- skipulagið, sem var borin fram af bandalagsþjóðunum, sem höfðu bar- ist á móti Þjóðverjum og banda- mönnum þeirra. Kröfunni um af- mörkun Evrópuríkjanna eftir þjóð- erni íbúanna var m. a. fylgt fram vegna tilkalls þess, sem Frakkar gerðu til Elsass-Lotbringen, Pólverj- ar til Yestur-Prússlands o. s. frv. Á friðarsamningsfundunum og nefndarfundum þeim, sem ákváðu framtíðarskipulag Evrópu, áttu Tjekkóslóvakar mjög duglegan fulí- trúa: dr. Benes, síðar forsætisráð- herra lýðveldisins. Sjálfstætt, tjekkó- slóvakiskt ríki hefði þá verið stofn- að hvort eð var, vegna þess að liið austurrísk-ungverska keisaraveldi var leyst upp, en Benes fjekk því framgengt að yfirráð Tjekkóslóvaka náðu ekki einungis yfir land það, sem þeir sjálfir bjuggu í með mikl- um meiri hluta, heldur yfir stærra svæði, þ. e. alveg að Sudetafjöll- um og öðruin fjallgörðum, sem um- lykja Tjekkóslóvakíu að norðan og vestan. Þessi afmörkun landsins hafði auðvitað mjög mikla hérnaðar- lega þýðingu. Allar þjóðir og flestir þjóðhöfð- ingjar voru á þeim tíma svo gagn- teknir af öllum þeim geðshræring- um, sem heimsstyrjöldin hafði vald- ið þeim, að þeir hugsuðu um fram- tíð Evrópu eins og um áframhaldandi ófrið með útkljáning deilumála með vopnum væri að ræða: Tjekkóslóvak- ar fengu landamæri sín eins og þau voru hentugust með tilliti til næsta ófriðar, og Frakkar, Litla Bandalag- ið og (seinna) Rússar voru ekki seinir á sjer að heita Tjekkósló- vökum stuðningi, ef tii ófriðar kæini. Hjer skal því skotið inn að hug- myndin um væntanlega næstu styrj- öld hefir yfirleitt verið efst á baugi i Evrópustjórnmálum síðustu 20 ár, |)angað til að Neville Chamberlain. forsætisráðherra Breta, með sínum mikla, mjer liggur við að segja rót- tæka friðarvilja, sýndi fram á aðrar leiðir. Hjá Jesandanum hlýtur að vakna sú spurning: voru þá engir Tjekkó- slóvakar til fyrir 1919 eða hvar voru þeir þá? Þeir liöfðu altaf verið til, og frá 5.—6. öld e. Kr. höfðu þeir verið ibúar lands þess, sem þeir enn búa í: Bæheims forna. Að líkindum liafa þeir þó ekki yerið frumbyggjendur þessa lands, heldur komið þangað að austan, á þjóð- flutningatímabilinu, i stöðugum bar- dögum við germanska þjóðflokka, sem áttu þar bólfestu um lengri eða skemmri tíma. Að lokum urðu ger- manskir hertogar frá stofni Bayara, Markomanna og Langbarða hlut- skarpari: Þeir stofnuðu þar her- togadæmi, fluttu þangað menningu, akuryrkju (plógur heitir enn þann dag í dag á tjekknesku pluh) og handiðnað,- Prag var um tíma aðset- ur keisara hins forna þýska keisara- rikis, fyrsti háskóli Þjóðverja var stofnaður í þeirri borg 1348. Síðan lutu íbúar Bæheims stjórn Habs- borgarættarinnar, sem rjeð yfir hinu austurrísk-ungverska keisaraveldi fram að árinu 1918. Habsborgarættin liefir aldrei fundið til öfgakendrar þjóðernistilfinningar: hún ríkti jafnt yfir Þjóðverjum, Slövum, ítölum, Ungverjum og Tjekkum og liefir ekki farið ver með þá en aðra þegna, enda fengu Tjekkar að halda máli sínu, fjelögum, þar á meðal hinum fræga íþróttafjelags- skap „Sokol“, skólum o. s. frv. En liitt er að vísu lika satt, að Tjekko- slóvakar hafa aidrei fengið að ríkja í sínu landi, og mátti því ávalt bú- ast við því, að þjóðerniskend Jieirra, sem er mjög næm eins og hjá öðr- um slavneskum þjóðum, brytist ein- hverntíma til valda. Þessari sjálfstæðislöngun Tjekkó- slóvaka virtist |>vi fullnægt, þegar þeim var fengin sjálfstjórn í hend- ur með friðarsamningunum 1919, auk landflæniis, sem var að stærð einn fimti úr austurríska keisara- veldinu. Að öllum likindum hefði alt farið betur, hefðu þeir þá fengið að búa að sínu og ráða sjálfum sjer. En hjer var, eins og áður hefir verið bent á, gengið einu skrefi of Iangt: Tjekkóslóvakiska lýðveldið fjekk yfir að ráða: Milj. Ferkm. 7.4 , 499f Tjekka á 52.000 ■= 37% 2.2 = 16.% Slóvaka á 36.000 = 25% 3.5 = 23% Þjóðv. á 28.000 = 20% 1.5 9% Ungverja á 24.000 = 18%. og tæpl. miljón Rúthena, Pólverja, Rúmena og Gyðinga. Ríki þeirra náði því einnig yfir allstór landflæmi, sem hrot af öðrum þjóðum bjuggu á, og voru af þeirn Súdeta-Þjóðverjar þeir, sem voru minst skyldir hinum þjóðun- um, hvað snerti tungu, siði og þjóð- erni. í Tjekkóslóvakíu ríkti — og ríkir enn — lýðveldisfyrirkomulag. íbúa- landsins skiftust þvi ekki einungis eftir þjóðerni, lieldur og eftir flokk- um, sem dr. Benes he.fir ávait verið Frá KOMU MUSSOLINI TIL MÍÍNCHEN. l'rá v. Himmler, Göring, Ciano utanrikismálaráðherra ítala, Hitler, Mussolini.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.