Fálkinn - 05.11.1938, Side 10
10
F Á L K I N N
Fallegur, látlaus vetrarkjóll.
Mál:
Málin sem lijer eru gefin lipp
samsvara stærð 44.
Efni:
750 gr. dökkgrænt, fjórþætt ullar-
garn, 2 prjónar sem samsvara garn-
inu. 7 hnappar.
Prjónið:
Skáprjón. Fyrsti prjónn: 2 ]. rjett-
ar, 1 1. snúin. Annar prjónn: 1 1. r.,
2 I. sn. Á ójöfnu prjónunum er
munstrið látið færast um 1 1. til
vinstri; en á jöfnu prjónunum eru
iykkjurnar prjónaðar eins og þær
koma fyrir.
PRJÓNAAÐFERÐ:
Framstykki:
(Mynd I er helmingurinn): Byrjið
neðst og fitjið upp 160 ]. og prjónið
með skáprjóninu. Á 8. hverjum prjón
er tekin úr 1 1. hvoru megin þang-
að til lykkjurnar eru 110. Þegar bú-
ið er að prjóna 80 cm. er lykkjunum
skift í helming og vinstri helming-
urinn látinn upp á band. Prjónið
hægri helminginn fyrst og fitjið upp
9 1. í viðbót, þar eiga hnappagötin
að koma. Það eiga að vera 7 hnappa-
göt og til þess að mynda hvert
þeirra eru feldar af 5 1. sem aftur
eru slegnar upp á næsta prjóni.
P’yrsta hnappagat prjónist 7 cm. frá
mittinu og hin prjónist með 5 cm.
millibili. í þeirri lilið sem hnappa-
götin eru, er prjónað beint upp,
en hinumegin er aukið út um 1 1.
sjötta hvern prjón, þangað til lykkju-
fjöldinn er orðinn 74 (þar i er
innifalið lykkjurnar fyrir hnappa-
götin). Þegar búið er að prjóna
23 cm. af boðangnum kemur hand-
vegurinn. Fyrst eru feldar af 4 1.,
þá 3 og loks 5 sinnum 1 1. Prjónið
svo áfram og þegar búið er að
prjóna 2 cm. upp fyrir seinasta
hnappagatið kemur hálsmálið. Fell-
ið fyrst af 15 1. og því næst 2 1.
annanhvern prjón þangað til 30 1.
eru eftir. Þegar handvegurinn er
orðinn 19 cm er öxlin feld af í
þrennu lagi. Nú er vinstri helming-
urinn látinn á prjón og 9 1. fitjaðar
upp í viðbót, þar eiga hnapparnir
að vera. Vinstri boðangur er prjón-
aður eins og sá hægri nema öfugt.
Bakið:
(Mynd II. er helmingurinn): —
Fitjið upp 160 I. og' prjónið 80 cm.
en takið jafnframt úr 1 ]. hvoru
megin 8. hvern prjón, þangað til
lykkjufjöldinn er 100. Prjónið svo
23 cm. og aukið jafnframt út um 1 1.
hvoru megin 6. livern prjón, þangað
til lykkjufjöldinn er orðinn 120.
77-
Handvegirnir:
Fellið af 5 I. i hvorri hlið þegar
búið er að prjóna 23 cm. af bakinu.
Fellið líka af 5 1. á tveimur næstu
prjónum og byrjið svo hvern prjón
ineð því að fel.la af 1 1. þangað til
búið er að fella af 15 I. i hvorri
hlið. Haldið áfram að prjóna þessar
90 1. sem eftir eru þangáð lil hand-
vegirnir eru orðnir 18 cm. Fellið
þá af 30 miðlykkjurnar i einu, og
hinar 30 I. hvoru megin sem eiga
að mynda axlirnar eru feldar af í
lirennu lagi.
Ermarnar:
Mynd III.): Fitjið upp 72 I. og
lirjónið 20 cm. og aukið jafnframt
út um 1 I. í hvorri hlið 4. hvern
prjón, þangað til lykkjufjöldinn er
82. Þá er byrjað að taka úr og er
hver prjónn byrjaður með þvi að
fella af 2 1. Þegar 20 ]. eru eftir, eru
þær feldar af i einu.
PAMBURINHATTUR ÚR SVÖIÍTU
FLAUELI.
Hjer er sýnishorn af svörtum
fiímelshatti, sem er nú í tísku. Hár
upp að aftan og aflíðandi fram.
Klæðilégur hattur með feldu hnakka-
bandi og situr mjög vel á höfðinu.
Vasarnir:
Fitjið upp 30 1. fyrir stóru vasana;
prjónið 15 cm. og fellið af. 20 J. eru
fitjaðar upp fyrir brjóstvasaná, og
prjónað 12 cm.; þá er felt af.
Samsetning:
Strjúkið öll stykkin undir deig-
um klút. Þegar þau eru orðin vel
þur eru þau saumuð saman. Vasarn-
ir eru saumaðir á og er haft 5 cm.
breitt brot á þeim stærri, en 3 cm.
á þeim minni.
Ef maður óskar heldur að hafa
íprjónaða vasa, þá eru þeir prjónað-
ir þ'annig: Þegar húið er að prjóna
70 cm. af frampilsinu, eru feldar
af 25 I. hvoru megin við 32 mið-
lykkjurnar. Því næst eru vasarnir
prjónaðir. Það er fitjað upp tvisvar
sinnum 25 I. og prjónaðir 12 cm.,
og þessi tvö stykki eru prjónuð inn
fyrir ofan þær lykkjur, sem voru
feldar af og saumist með smáspor-
um fast á röngunni (mynd IV.)
Brjóstvasarnir eru prjónaðir eftir
sömu aðferð.
Að endingu er pique-borði saum-
aður í hálsmál og ermar.
VÍKTORÍA DROTNING
í KVIKMYND.
Myndin sýnir leikkonuna Anna
Neagle sem Viktoríu drotningu í
íburðarmikilli enskri kvikmynd,
sem nú er verið að taka.
• T