Fálkinn - 19.11.1938, Side 4
4
F Á L K I N N
Eiríkur XIV. og Karin Mánsdóttir
Á Eiríki konungi XIV. sannast hið forn-
kveðna: „Sitthvað er gæfa eða gjörvuleiki“.
Eiríkur fjórtándi var fædd-
ur árið 1533 og dáinn 1577, en
konungur Svía var hann á ár-
unum 1560—1568. Hann var
sonur hins stórbrotna höfðingja
Gústafs Vasa, sem er eitt mesta
mikilmennið í sögu Svía frá
eletu tíð, og leysti þjóð sína
undan ánauðaroki Dana eftir
blóðbaðið mikla i Stokkhólmi.
Gústaf Vasa var konungur und-
ir nafninu Gústaf I og ríkli
hann vel og lengi i Svíþjóð
(1523—1560) og var frá honum
komin mikil og merk ætt, Vasa-
ættin. — Gústaf Vasa var þrí-
giftur og var Eirikur af fyrsta
hjónabandi hans. Móðir Eiríks
var Katarina af Sachsen Lacu-
enburg.
Strax í bernsku bar á ó-
venju góðum hæfileikum hjá
Eiríki, eins og öðrum systkin-
um lians. Og faðir hans Ijet
sjer mjög ant um uppejdi barn-
anna og taldi enga fórn of
mikla í þvi efni. Fekk hann
þeim hina ágætustu kenn-
ara sem völ var á og gerði vel
við þá.
Að ytra útliti var Eiríkur
allra manna fríðastur og best
bygður. Og samfara þessu lík-
amsatgerfi var andlegt atgerfi
hans á mjög háu stigi. Hann
var góður lærdómsmaður á
mál, einkum latínu. Skarpur í
sagnfræði og stærðfræði. Hann
hafði ágæta hljómlistarhæfi-
leika og spilaði manna best á
lút. Listasmekkur hans var
mjög næmur, teiknari var hann
góður og hafði ágæta rithönd.
í stjörnuspáfræði (astdologi),
sem var heil vísindagrein á
þeim tímum, sem hann lifði,
sökti liann sjer niður, og leiddi
það hann síðar út í öfgar og
allskonar fásinnu.
Eiríkur hafði eins og sjá má
af því, sem að framan er sagt
hinar miklu guðsgjafir andlegs
og líkamlegs atgerfis. Og benti
það til þess að hann yrði hinn
mikilhæfasti maður, ef honum
entist líf.
En — engum gefa guðirnir
alt. Og skapgerð hins unga
manns var full af þverbrestum,
er komu snemma í Ijós og
munu föður hans, Gústaf Vasa,
ekki hafa dulist þeir og rent
grun í að illa mundi fara fyrir
þessum syni sínum. En engu að
síður voru margir gallarnir í
fari Eiríks frá föðurnum
runnar.
Eiríkur var strax sem ung-
lingur metorðagjarn fram úr
hófi, grimmur í lund og vellyst-
ugur mjög, og ákaflega tor-
trygginn. Og sum þessi skap-
gerðareinkenni voru rík i Gúst-
af Vasa. Af móður sinni hafði
Eiríkur hinsvegar erft þung-
lyndi í ríkum mæli. Glöggum
athuganda gat því ekki dulist
það, að ýmsar stoðir fjellu und-
ir það að brjálsemi mundi fyr
eða síðar hertaka hug Eiriks,
og einkum þó er stjórnarstörf
og annað veraldarvafstur fæi i
að þreyta hann, enda fór svo.
Það er talið að þeim feðgun-
um, Gústaf konungi og Eiríki,
hafi samið illa og hafði konung-
ur litil tök á syni sínum. Og
þegar Eiríkur var nokkuð vax-
inn fór á þvi að hera að þeir
njósnuðu mjög um hvors ann-
ars háttu.
Það var ó'ián fyrir Eirik,
að móðir hans dó, þegar hann
var lítill drengur, fór hann því
mjög varhluta af móðurástinni,
sem liefði þó verið líklegusl
lil að milda skap hans og slá á
ofsa hans.
Skömmu eftir að móðir hans
dó, giftist faðir hans ungri
kona af aðalsættum, Margareta
Lejonhufvud að nafni. Var son-
ur þeirra Jóliann, er Svíakon-
ungur varð næstur á eftir Eiríki,
og Ivarl hertogi. -— Stjúpa Ei-
ríks var honum mjög erfið.
Var það hvorttveggja að hann
mun hafa verið henni óþjáll,
en meira hitt, að henni fanst
hann þrándur í götu fyrir Jó-
lianni syni sínum, svo að lion-
um yrði varnað konungsdóms.
Þegar Eiríkur er 24 ára gam-
all fær hann Kalmar að ljeni
hjá föður sínum. Bjó hann á
Kalmar sloti, sem enn stendur
og liafði þar um sig heila hirð.
Hann ljet skreyta slotið og rjeði
einn þar um, því að hann hafði
mjög næman listasmekk. Og
her sú skreyting Eiríki gott vitni
i þessu efni.
í Kalmar komst hann undir
áhrif háll setls manns, er Jöran
hjet Persson, og átti sá maður,
er lengi var ráðgjafi hans, sinn
slóra þátt í mörgu af því versta,
er Eiríkur síðar gerði, er hann
var orðinn konungur, því Jöran
þessi var maður illur og óhlut-
vandur.
Gústaf Vasa deyr 1560, og er
þá Eiríluir sjálfkjörinn, sem
elsti sonur hans, til konungs-
dóms. Konungsdæmið var
ungt, þar sem Gústaf hafði
komið þvi á fót og því alt ann-
að en sterkt, þó að alt gengi vel
meðan Gúslafs naut við, með
hans fráhæru stjórnarhæfileik-
um og járnsterka vilja. Tvenns-
konar hætta steðjaði að hinum
unga konungi, annarsvegar hætt
an innan að, frá háaðlinum,
sem var altaf Gústaf Vasa stór-
gramur vegna þeirra rjettinda
er hann hafði svift hann, og
hinsvegar hættan utan að, frá
Danmörku, sem vildi sæta lagi að
rjetta aftur við hlut sinn fyrir
Svium.
Fyrstu ríkisstjórnarár Eiriks
sýiía það glögt, að liann hafði
stjórnmálamannshæfileika í
góðu lagi. Hann gerir sjer all
far um að efla einingu ríkisins.
Hann dregur úr valdi ljensherr-
anna með aðstoð ríkisdagsins í
Arboga, en það vald gat orðið
rikinu harla hættulegt. Og hann
kappkostaði að vinna hylli
bændanna og tókst það vel.
í utanríkispólitik sinni var
Eiríkur konungur heppinn.
Hann lagði Estland undir Sví-
þjóð' 1561 og er Svíþjóð með
því orðin sterkasta riki við
Eystrasalt, svo að i raun og
veru á Eiríkur sinn þátt í því
að gera Svíþjóð að stórveldi.
Þó að Eiríkur konungur hefði
stjórnmálavit í góðu lagi, þá
skorti hann hernaðarlegt vit.
Hershöfðingi var hann enginn.
í stríði var hann allra manna
grimmastur, svo að stappaði
nærri brjálæði. Lagði hann ríkl
á við hershöfðingja sína að hlíf-
ast ekki við að drepa og ræna,
brenna og bræla. —
Það var altaf grunt á þvi
góða milli bræðranna, Eiríks
og Jóhanns. Jóhann hafði feng-
ið Finnland að ljeni og sal i
Ábo og bjó þar í hinu fornfræga
sloti, er stendur enn. Hafði
hann haft hug á að vinna Est-
land, en bróðir hans orðið fyrri
til.
Þegar svo var komið leitaði
Jóhann s(yrks hjá Pólverjum
með þvi að kvænast Katharinu
Jagellonicu, systur Póllands-
konungs. Eirík hafði lengi
grunað bróður sinn um drottin-
svik, og tengdir Jóhanns við
pólsku konungsf jölskylduna
gera hann enn órólegri. Hann
lætur þingið i Arhoga dæma
Jóhann til dauða og sendir að
því húnu lier til Finnlands til
að handtaka hann. Dauðadómn-
um lætur Eiríkur ekki full-
nægja, þar sem bróðir hans á
í hlut heldur er Jóhann settur i
fangelsi á Gripshólmi.
Upp frá þessu er konungur
haldinn af taumlausu ofsóknar-
brjálæði. Ýmsir háttsettir em-
bættismenn hans eru verkfæri
til að koma hefndum frani við
þá, sem konungur grunar um
græsku.
Voru þó sumir þeirra, sem
teknir voru fastir hinir konung-
hollustu. Meðal þeirra má nefna
Stúrana, Svanle Sture og svni
hans tvo. Eiríkur konungur
hafði um þessar mundir söld
sjer mjög ofan í stjörnuspáfræði
Té . »
Dómkirkjan i
Abu, ein glæsi-
legasta kirkja
Finnlands,
margra alda
gömul. í kirkjn
}>essari er Kar-
in Mánsdóttir
grafin. Skamt
frá kirkjunni er
höll Jóhanns
jjriðja, er stend
ur enn og er
þar nú þjóð-
menjasafn.