Fálkinn - 19.11.1938, Qupperneq 10
10
F Á L K I N N
VETRARKJÓLLINN í TVO VETUR.
Ef þjer eruð svo hamingjusamar að
klæða hvítt um hálsinn, þá er hrein-
asti leikur fyrir yður að dubba upp
á vetrarkjólinn frá í fyrra. Hjerna sjá
ið þjer t. d. mjög snoturt organdi-
vesti þjett sett pípustrimluxn og með
klæðilegri lítilli slaufu í hálsinn.
TAPT, TYLL OG PAILLETTER.
Hvort sem maður er með eða móti
kvöldhattinum verðum við þó að við-
urkenna, að hjer hefir tekist að búa
til höfuðfat, sem hæði er hátíðlegt og
skrautlegt. Kollurinn, sem er þjett
saumaður paillettum fellur alveg að
höfðinu, en barðið hefur flutt sig og
kemur nú frá hnakkanum og lítur út
eins og heljarmikill spánskur kamb-
ur.
FALLEGUR KVÖLDKJÓLL.
Þessi verulega fallegi kvöldkjóll úr
skínandi silkisatin er mjög sjerkenni-
Jegur fyrir þessa svörtu borða og
breiða belli. Pilsið er Jjósblátt, Ijós-
rautt og svart og er mjög vítt að
neðan.
SNOTUR HAUSTDIÍAGT
úr svörtu mjúku ullarefni. Jakkinn
sem er mjög nærskorinn er að of-
anverðu með ferköntuðu innsettu
stykki úr svörtu silkisatin og háls-
málið endar í slaufu, Til tilbreyting-
ar er hafður skinnkantur neðan a
jakkanum af svörtum ref, en aðeir.s
þær sem eru mjög grannar klæðir
það.
NÝR MODELHATTUR FRÁ ERIK.
Hinn þekti danski modelteiknari
Erik, sýnir hjer einn af sínum nýj-
ustu modellum úr dökkbrúnu filti
skreyttu með skemtilegum „appli-
kativum" af marglitum chenilleborð-
um.
LJÓSBLÁ PRJÓNUÐ BARNAFÖT.
Hentug barnaföt sem er hreinasti
lcikur að prjóna, en munið að prjóna
aukabuxur, því eins og þið vitið
verða þær fyrir meira áfalli en blús-
an.
VILHELMINA DROTNING.
í sumar voru liðin fjörutíu ár frá
því Vilhelmína Hollandsdrotning
kom til ríkis. t tilefni af þvi voru
mikil hátíðahöld um jjvert og endi-
langt Holland. Myndin sem hjer
fylgir er tekin af Vilhelminu þegar
hún tók við ríkjum, en þá var hún
aðeins 18 ára gömul.
Tryggur fjelagi.
Hundur einn, í Grenoble, var ný-
lega sæmdur heiðursmerki fyrir fá-
dæma trygð og fórnfýsi er liann
hafði sýnt. „Dony“, en svo heitir
hundurinn, var tryggur förunautur
99. fótgöngudeildar franska hersins,
og hafði hundurinn oft gert henni
mikið gagn. En mesta afrek sitt vann
„Dony“ í mars í fyrra. Einu sinni
þegar verið var að heræfingum upp
í fjöllunum, skall snögglega á ógur-
legt hriðarveður, og nú lá mikið á
að komast til bygða sem allra fyrst.
Einn hermaðurinn hrasaði og fót-
brotnaði á hægri fæti. Tveir fjelagar
hans, sem fundu hann höfðu til allr-
ar óhamingju tapað af hinum her-
mönnunum. Og j>að var enginn
möguleiki fyrir j>á að koma hon-
til bygða að svo stöddu. Myrkrið var
skollið á og hver hafði nóg með sig,
ef hann vildi bjarga lifi og limum.
Fielagarnir fundu dálítið afdrep og
lögðu ljar særðan vin sinn. Þvj
næst skipuðu þeir „Dony“ að halda
vörð um liann, og fóru! síðan í burtu
í ljungum hug, jiví að þeir voru
mjög hræddir um að maðurinn
mundi ekki lifa af nóttina.
Strax um morguninn, komu jjeir
aftur til baka og sagði maðurinn
jjeim jjá, að hundurinn hefði bjarg-
að lífi hans. ,,Dony“ hafði verið
umhyggjusamari en nokkur maður
hefði getað verið. Fyrir jjessa dáð
fjekk hundurinn svo heiðursmcrkið.
Umferðarlögreglan í Englandi hef-
ir reynt nýja aðferð við ökunið-
inga. í staðinn fyrir að skrifa upp
nöfn þeirra og leiða þá fyrir dóm-
stólana, skírskotar lögregluþjónninn
til sómatilfinningar sökudólganna,
og sýnir þeim skrá úm þá óham-
ingju og sorg, sem bílakstur eins
og jæirra hafi leitt yfir fólk, og
biður þá um að hjálpa umferðar-
lögreglunni. — Þessi aðferð kvað
hafa gefist ótrúlega vel. —
KARNEVALDROTNING
í Englandi hefir verið tekið upp
á því að halda karneval (kjötkveðju-
hátið) að sumarlagi. Myndin sýnir
stúlkuna, sem var valin til þess að
vera karnevalsdrotning.